Hoppa í efni

Siðmennt mótmælir tillögum um hækkun sóknargjalda

Sigurður Hólm Gunnarsson | 12.09.2005

Siðmennt sendi frá sér eftirfarandi ályktun í dag:

"Stjórn Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi, leggst alfarið gegn þeim tillögum Þjóðkirkjunnar að hækka beri skatta á almenning sem í dag ganga undir nafninu sóknargjöld. Hvetur Siðmennt stjórnvöld til að hafna öllum slíkum tillögum sem einungis auka óréttmætar álögur á almenning."

Áfram segir í tilkynningunni:

Í dag fær kirkjan yfir 3 milljarða til rekstrar. Tæplega 1,5 milljarður eru sóknargjöld og er það krafa kirkjunnar að þessi upphæð hækki um 50%. Að auki fær kirkjan 1,8 milljarða fjárframlag frá ríkinu á meðan sum trúar- og lífsskoðunarfélög fá hvorki sóknargjöld né aukaframlög. Hér er því um grófa mismunun að ræða.

Ekki hlutverk stjórnvalda að innheimta félagsgjöld
Siðmennt telur að það eigi ekki að vera í verkahring stjórnvalda að sjá um að innheimta félagsgjöld trú- og lífsskoðunarfélaga eða annarra félaga. Siðmennt vill því að almenningur hafi frjálst val um hvort hann greiðir slíkan skatt eða ekki og hvert skatturinn fer sé hann greiddur. Þeir sem ekki vilja greiða hann eigi að hafa möguleika á að hafna slíkum nauðungarsköttum.

Stjórn Siðmenntar
Reykjavík 7. september 2005.

Sjá einnig:
Trúfrelsisstefnu Siðmenntar
http://www.sidmennt.is/trufrelsi/

Grundvöllur fjármála Þjóðkirkjunnar
http://www.kirkjan.is/biskupsstofa/?fjarmal/grundvollur_fjarmala

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.