Nei ráðherra er nýr útvarpsþáttur sem hefur göngu sína á Útvarpi sögu í dag klukkan 17:00. Stjórnendur þáttarins eru undirritaður ásamt þeim Hauki Erni Birgissyni og Hinriki Má Ásgeirssyni. Meginþema þáttarins verður að fjalla um þjóðfélagsmál út frá hugsjónum og ekki síður hugmyndafræði. Rætt verður við áhugaverða einstaklinga sem hafa sterkar skoðanir á þjóðfélagsmálum og þeir spurðir um hugmyndafræði sína og baráttumál. Fyrsti viðmælandi okkar verður Hannes Hólmsteinn Gissurarson en eins og landsmenn vita er hann þekktur fyrir umdeildar skoðanir.
Upptaka: Hannes Hólmsteinn í Nei ráðherra
Skoða 6 athugasemdirFela athugasemdir
COOL!
Þetta verður eflaust besta efni í útvarpi í dag. Hljómar að minnsta kosti ákaflega vel.
Svo virðist vera sem það þurfi tvo jafnaðarmenn til að vega upp á móti einum frjálshyggjumanni. Ég hlakka svo sannarlega til að heyra þennan þátt.
Gangi þér vel með þetta Sigurður.
Jæja, þá er fyrsti þátturinn yfirstaðinn. Til hamingju með það. Mér fannst þetta algerlega frábær þáttur og spyrjendur voru duglegir að fá viðmælanda til að rökstyðja. Mér fannst líka Hannes standa sig nokkuð vel, þó hann hafi verið talsvert diplómatískur í sumum svörum (lesist: talaði í kringum hlutina). Hann virðist ekki vera mikið fyrir að svara beinskeyttum spurningum á beinan hátt og mér þykir votta fyrir ákveðnum utilitarianisma í sumu hjá honum, sbr. hugmyndir hans um að fjölmiðlamarkaður á Íslandi lúti ekki sömu rökum og aðrir markaðir. Mér hefði þótt Haukur mega taka upp hanskann þar og benda á þann geysilega fjölda erlendra miðla sem Íslendingar sækja dagsdaglega á netinu, í bókaverslunum og yfir gervihnetti. Ég get heldur ekki séð neitt því til fyrirstöðu að erlendur miðill sendi út Beðmál í borginni, Leiðarljós, Prúðuleikarana og Húsið á sléttunni.
Takk Rúnar, þetta var skemmtileg reynsla og ég lít björtum augum á framhaldið. Það var gaman að fá að spyrja Hannes Hólmstein um afstöðu hans. Nú ert þú harður frjálshyggjumaður Rúnar, myndir þú kalla Hannes frjálshyggjumann? Væri áhugavert að fá þína skoðun á því.
"Svo virðist vera sem það þurfi tvo jafnaðarmenn til að vega upp á móti einum frjálshyggjumanni. Ég hlakka svo sannarlega til að heyra þennan þátt."
Já við jafnaðarmennirnir treystum á samvinnu 🙂
Já, ég myndi kalla Hannes Hólmstein frjálshyggjumann þó við Hannes værum augljóslega ósammála um hina og þessa hluti. Mér finnst hann vera á frjálslyndari enda sjálfstæðisstefnunnar; frjálshyggjumaður í kenningum og hugsjónum en á sama tíma raunsær á hvað hóphugsun líðandi stundar leyfir og leyfir ekki að koma í verk.
Mér fannst líka gaman að heyra hvernig hann forðaðist að gefa þér eftir spurningar um fyrirmyndarríki og útópíur. Hann á þá fælni sameiginlega með fremri frjáls- og hluthyggjumönnum.
Með allri virðingu fyrir Hannesi þá finnst mér blunda í honum örlítil óvissa um eigin staðfestu, eins og til dæmis að vera tilbúinn að samþykkja að það gætu verið rök fyrir ráðlyndi ríkisins á fjölmiðlamarkaði. Þar finnst mér sjálfstæðismaðurinn, og kannski Íslendingurinn í honum koma upp á yfirborðið.
Ég held að Fisher Ames, frjálshyggjumaður mikill, hafi orðað móteitur við þessari linkind best þegar hann skrifaði í fyrsta viðbæti stjórnarskrár Bandaríkjanna:
"Congress shall make no law abridging the freedom of speech."
Hvenær fær maður svo að heyra upptökurnar?
Til hamingju með þáttinn.
