Jakkafataklæddir hundaflautuleikarar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 04.09.2025

Auðvitað á alltaf að fordæma allar hótanir og ofbeldi. Það segir sig sjálft. Það breytir því þó ekki að jakkafataklæddir hundaflautuleikarar í valdastöðum bera mesta ábyrgð á því hvernig umræða um viðkvæm mál þróast. Fordómar, hatur og ofbeldi þrífast best undir hundaflautuleik. Það má ekki hætta að tala um það þó einhverjir vitleysingar hóti þingmanni.
Talandi um hótanir þá hef ég fengið þær nokkrar í gegnum tíðina, m.a. frá þekktum ofbeldismönnum, fyrir það eitt að tjá mig opinberlega. Hef leitað til lögreglu en aldrei fengið aðstoð. Því fagna ég því að lögregla sé nú að taka hótanir alvarlega.

Sjá einnig á Facebook