Warning: foreach() argument must be of type array|object, null given in /home/u721286725/domains/skodun.is/public_html/wp-content/themes/Divi/includes/builder-5/server/Packages/Module/Options/Css/CssStyleUtils.php on line 196

Brot á alþjóðalögum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.01.2026

Það er ekki í lagi ef stjórnmálamenn eru með óskýr skilaboð um valdaránið í Venesúela. Um er að ræða skýrt og alvarlegt brot á alþjóðalögum. Þá skiptir nákvæmlega engu málið hvað hverjum og einum finnst um Maduro forseta. Hann kann að vera hið mesta fífl. Það breytir því ekki að valdarán eru ólögleg og siðlaus. Trump og bjánarnir hans í ríkisstjórn eru þó ekkert að þykjast að gera góðverk. Þeir beinlínis segja að markmiðið sé að ná yfirráðum yfir olíulindum og öðrum náttúruauðlindum. Semsagt kolólöglegt og siðlaust. Íslensk stjórnvöld verða að mómæla þessu. Þarf ekkert að bæta við að Maduro sé svona eða hinseginn. Það skiptir ekki máli. Að auki. Grænlænd er næst...

Sjá einnig á Facebook