Kæri Fésbókarvinur, Brynjar Níelsson
Eftir að hafa lesið hugvekju sem þú fluttir í Seltjarnarneskirkju á fyrsta degi ársins 2014 efast ég stórlega um að þú skiljir hugtök á borð við trúfrelsi, veraldlegt samfélag og gagnrýni. Kannski ertu bara að tala gegn betri vitund. Hvað veit ég? Hverjar sem ástæðurnar fyrir málflutningi þínum eru þá hef ég áhyggjur af honum. Ég er meira að segja farinn að óttast að þú viljir að hið opinbera reyni að stjórna trúarlífi almennings á Íslandi. Þar sem þú talar mikið um frelsi einstaklingsins kemur málflutningur þinn mér verulega á óvart.
Hér fyrir neðan gagnrýni ég nokkur atriði sem þú fjallaðir um í hugvekju þinni. Ég vona að þú lítir ekki á gagnrýni mína og spurningar sem ófrægingarherferð heldur sem upphaf af uppbyggilegri samræðu.
(Sjá hugvekju Brynjars í samhengi).
1) Gagnrýni er ekki það sama og rægingarherferð eins og þú gefur í skyn. Sá sem gagnrýnir trúarbrögð er ekki að rægja neinn (rógur: ærumeiða; rægja; baknaga; ófrægja) heldur að nýta tjáningarfrelsi til að koma skoðunum á framfæri og hafa áhrif á samfélagið. Gagnrýni er jákvætt hugtak (að rýna til gagns*). Mundu að besta leiðin til að bera virðingu fyrir skoðunum annarra er að ræða þær á gagnrýnan máta. Heilagar hugmyndir sem ekki má gagnrýna eru yfirleitt slæmar hugmyndir sem þrífast í myrkri fáfræðinnar en þola illa upplýsta umræðu.
(Ítarefni: Misskilningurinn um tjáningarfrelsið og gagnrýni)
2) Að banna trúboð og trúboðsgjafir í opinberum skólum er ekki það sama og banna trúuðu fólki að boða trú sína. Í frjálsu samfélagi má trúað fólk iðka og boða trú sína á eigin forsendum, á eigin tíma, á götum úti og í eigin húsum svo lengi sem athafnir þeirra skerða ekki beint réttindi annarra. Ef boða á trú meðal barna er auðvitað sjálfsagt að það sé gert með leyfi foreldra eða forráðamanna. Eins og þú veist er skólaskylda á Íslandi sem þýðir að foreldrar eru skyldaðir til að senda börn sín í skóla. Lágmark er að þegnar landsins séu lausir við trúarlegan áróður í opinberum stofnunum.
(Ítarefni: Fyrirsjáanleg og afhjúpandi umræða um trúboð í skólum, Skóli og trú)
3) Að óska eftir veraldlegu samfélagi er ekki það sama og að stuðla að upplausn samfélagsins. Baráttan fyrir veraldlegu samfélagi er barátta fyrir frelsi og jafnrétti. Veraldlegt samfélag táknar einfaldlega samfélag þar sem hið opinbera, ríkisvaldið, skiptir sér ekki beint af trúarskoðunum fólks. Ekki frekar en af stjórnmálaskoðunum. Hvorki með því að boða ákveðna lífsskoðun, né með því að banna lífsskoðanir (sem skaða ekki aðra með beinum hætti). Erum við ekki sammála um þetta?
(Ítarefni: Sóknarprestur misskilur hugtökin trúfrelsi og veraldlegt samfélag, Ríki og trú)
4) Forsendan fyrir æðruleysi, kærleik og fyrirgefningu er ekki kristin trú. Menn þurfa ekki að vera mjög víðlesnir í sagnfræði, trúarbrögðum eða heimspeki til að átta sig á þessu. Það er þó rétt hjá þér að við fæðumst ekki með þessar dyggðir. Þær þarf að læra og rækta. Hafir þú áhyggjur af ræktun dyggða á Íslandi hvet ég þig til að berjast með mér fyrir því að þjálfun í gagnrýnni hugsun og tjáningu verði ríkari þáttur í skólastarfi. Slík þjálfun kæmi sér til dæmis afar vel inn á Alþingi.
(Ítarefni: Trúarbrögð og siðmenning, Heimspeki, Gagnrýnin Hugsun)
Að lokum vil ég spyrja þig:
5) Ert þú að leggja til að hið OPINBERA hlutist til um trúariðkun landsmanna? Telur þú hlutleysi hins opinbera í trúmálum vera það sama og að „afkristna þjóðina“? Ég vona ekki. Ert þú ekki sammála mér, þó ekki væri nema í nafni frelsisins, að hlutverk hins opinbera í trúmálum sé fyrst og fremst að vernda rétt okkar allra til tjáningar- og trúfrelsis?
Þinn Fésbókarvinur,
Sigurður Hólm Gunnarsson
*Ekki viðurkennd orðabókarskilgreining á hugtakinu samkvæmt gagnrýnisröddum. 🙂
Skoða 6 athugasemdirFela athugasemdir
Verð að segja að Brynjar kom mér á óvart og aldrei þessu vant er ég sammála honum í flestum atriðum
Það er allveg Ótrúlegt að þeir/þau sem telja sig vera "frjálslynd" verða í raun OFUR íhaldssöm þegar kemur að Kristini trú og hversu fljót hið " kristna umburðarlyndi" er fljótt að yfirgefa viðkomandi ef fólk hefur aðrar skoðanir en það sálft!
Tek þar af leiðandi undir þennan pistil hjá Sigurði Sigurður Hólm Gunnarsson. Eins og svo oft áður þá hittir hann naglann algjörlega á höfuðið.
Rúna Hjaltested hefur verið dugleg að skrifa athugasemdir um þessa „leiðinlegu grein“ eftir mig. Takk fyrir áhugann Rúna. Ég verð þó að fá að svara fyrir nokkrar rangfærslur hjá þér. Mundu að með gagnrýni minni er ég ekki að „lúskra á“ þér heldur er ég að reyna að ræða málefnalega um mikilvægt málefni.
1) „Hvaða hvatir eru það sem veldur því að Siðmenntarmenn þurfa eilíflega að vera með athugasemdir og aðfinnslur við allt sem snertir umfjöllun um kristni, meira að segja þó menn haldi ræður í kirkju?“
SVAR: Venjulega er ég nú einfaldlega bara að svara misskilningi eða ósannindum um trúlausa. Það er sjálfsagt að fólk svari fyrir sig þegar rætt er um þá (eða þó hópa sem þeir tilheyra) á opinberum vettvangi. Í raun er það nauðsynlegt. Fyrir örfáum árum þótti það hræðilegt að vera trúlaus maður og gagnrýna trúarbrögð. Þegar ég var að skrifa mínar fyrstu greinar fyrir um 15 árum síðan fékk ég ótal símtöl og bréf frá mjög reiðu fólki. Ættingjar mínir urðu meira að segja stundum fyrir aðka…
Sammála þessari grein þinni Sigurður, nema í einu atriði, en þar ert þú sammála Brynjari, þ.e. að menn fæðist ekki með dyggðir. Ég þykist hafa greint mjög mikinn mun á ungum börnum í þessu tilliti, og það löngu áður en nokkur innræting/uppeldi hefur átt sér stað. Sum börn sýna snemma mikla gæsku, kærleika og hrekkleysi. Hinsvegar er ekki þar með sagt að þau viðhaldi þessum eiginleikum þegar frá líður... eftir nánari kynni af mannlegu samfélagi, s.b. að mestu cynicarnir eru fyrrverandi altrúistar. Er þessi skoðun þín studd einhverjum vísindaniðurstöðum?
Góður pistill!
Kæru gagnrýnendur, meðlimir Siðmenntar og herskárrar Vantrúar
Ég vill minna ykkur á að þó þið séuð boðberar málfrelsis þá eru engar hömlur settar á tjáningarfrelsi þó ákveðnir aðilar séu hundsaðir í opinberri umræðu.
Rúna Hjaltested Guðmundsdóttir er manneskja sem blandar sér í sífellu umræður um veraldleg og trúarleg málefni með mjög skemmandi hætti. Hún hlustar ekki á rök ykkar og sýnir ekki merki um að fara byrja á því fljótlega. Hún er í besta falli tröll og versta falli andkristin manneskja sem lætur þann löst á eftir sér að níðast á þeim sem minna mega sín, fórnarlömbum stríðsátaka, flóttamönnum. Sbr. þáttöku hennar í umræðuhópi á facebook sem elur á mannfyrirlitningu.
Þið hjá Siðmennt vitið vel að innan þjóðkirkjunnar er að finna fjöldan allan af fólki með hreint hjarta og mér finnst mikilvægt að þið beinið orðum ykkar til þeirra því þau munu fara yfir gagnrýni ykkar með miði af ást og alúð Jesús Krists en ekki því haturs því er Rúna Hjaltested Guðmundsdóttir boðar.Annars sn…



