Ég mætti í stutt viðtal í Harmageddon í morgun þar sem ég fjallaði um trúarlegt hlutleysi opinberra skóla.
Hlusta má á viðtalið á vef Vísis:
Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi hefur sett upp sérstaka síðu þar sem fólk getur nálgast leiðbeiningar Mennta- og menningarmálaráðuneytis og ýmissa sveitarfélaga um samskipti skóla og trú- og lífsskoðunarfélaga. Á síðunni er einnig hægt að senda Siðmennt tilkynningu um trúboð eða trúariðkun í opinberum skólum.