Hoppa í efni

Um lýðræðishlutverk fjölmiðla

Sigurður Hólm Gunnarsson | 25.05.2014

Fyrir þessar kosningar hef ég tekið eftir því að fjölmiðlar taka lýðræðishlutverk sitt misalvarlega. Sem dæmi hefur Fréttablaðið ítrekað „sleppt“ því að ræða við fulltrúa Dögunar í umfjöllun sinni um komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Ég veit reyndar fyrir víst að Dögun hefur gert ítrekaðar tilraunir til að fá að taka þátt í umfjöllun Fréttablaðsins en ekki átt erindi sem erfiði.

Hvernig stendur á þessum vinnubrögðum? Ekki er hægt að fela sig á bak við það að Dögun mælist svo lágt í skoðanakönnunum. Dögun mælist með örlítið minna fylgi en Framsókn og flugvallarvinir sem þó fær alltaf að vera með í allri umfjöllun.

Ég get að einhverju leyti skilið að umfjöllun um kosningar þar sem mjög margir eru í framboði sé leiðinlegri í einhverjum skilningi. En hvað með það? Kosningar eru ekki eitthvað skemmtiefni heldur lýðræðið sjálft.

Ef einkareknir fjölmiðlar geta ómögulega fjallað um stefnu allra framboða eru þeir um leið að staðfesta að ríkisfjölmiðill, sem er skyldugur til að fjalla um alla, er nauðsynlegur.

Talsmenn einkarekinna fjölmiðla sem halda eldræður „í beinni“ gegn RÚV ættu að hafa sig hægan þar til ljóst er að þeirra eigin fjölmiðlar eru færir um að valda hlutverki sínu.

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Einar Örn Finnsson 25. maí 2014 · á Facebook

    Sammála.

  2. Sigurður Haraldsson 25. maí 2014 · á Facebook

    Takk takk.

  3. Helga Þórðardóttir 25. maí 2014 · á Facebook

    Takk fyrir að benda á þetta óréttlæti Sigurður. Þetta er mikilvægt fyrir okkur öll sem viljum trúa því að við búum í lýðræðisríki.

  4. Ingibjörg Edda Bjorgvinsdóttir 25. maí 2014 · á Facebook

    Tek undir orðin þín Sigurður.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.