Hoppa í efni

Standa þarf vörð um lýðræðislegt hlutverk RÚV

Sigurður Hólm Gunnarsson | 27.11.2013

Rúv EfstaleitiÍ frjálsu lýðræðissamfélagi er gríðarlega mikilvægt að til séu fjölmiðlar sem bjóða upp á fréttir, fræðslu og gagnrýna umfjöllun um málefni líðandi stundar en eru i senn óháðir fjárhagsöflum og sérhagsmunum.

Ég óttast boðaðan niðurskurð á Ríkisútvarpinu vegna þess að ég veit að margir vilja leggja fjölmiðilinn niður af hugmyndafræðilegum ástæðum. Það eru til valdamiklir hópar í okkar samfélagi sem óttast öfluga, faglega og óháða umfjöllun.  Því þarf almenningur að standa vörð um lýðræðislegt hlutverk RÚV.

Að þessum orðum sögðum tel ég að það sé bæði mikilvægt og eðlilegt að endurskoða ýmislegt þegar kemur að rekstri og starfsemi  RÚV (sjá t.d. Hvert er hlutverk RÚV?).

Það sem má alls ekki gera er að draga úr fréttatengdri þjónustu og fræðslu sem er svo gríðarlega mikilvæg fyrir lýðræðið á Íslandi.

Niðurskurður sem kemur niður á þeim sviðum er beinlínis stórhættulegur. Í raun lítið annað en FOX-NEWS væðing Íslands á tímum sem mikil þörf er fyrir hlutlausa og faglega umfjöllun um samfélagsmál.

Mótmælum niðurskurði á RÚV með því að skrifa undir hér:

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.