Hoppa í efni

Sigmundur Davíð rökræðir við Sigmund Davíð

Sigurður Hólm Gunnarsson | 25.11.2013

Sigmundur Davíð - loftárásirEf Sigmundur Davíð vildi gagnrýna Sigmund Davíð. Hvernig myndi hann gera það? Hugsanlega svona:

Rökræða er forsenda framfara. Því vil ég segja ykkur að forsætisráðherra er ósvífinn lygari. Hann fullyrðir reglulega eitthvað sem stenst enga skoðun og virðist ekki geta sætt sig við raunveruleikann. Ég þarf ekki og að rökstyðja það frekar hvað forsætisráðherra er ósannsögull enda veit ég að boðskapur minn er réttur.

En þó boðskapur minn sé réttur þá tel ég engu að síður að það sé ógnun við lýðræði ef rökræða fær ekki að eiga sér stað, ef ákveðið er frá byrjun að aðeins annar málstaðurinn sé réttur og allt sem styður við þá mynd fær greiða leið i gegn en önnur sjónarmið hverfa.

Framganga nýja forsætisráðherrans er þannig að pirringurinn og ofleikurinn er augljós. Því verður örugglega snúið út úr nánast öllu sem ég segi og einskis svifist í ómerkilegum pólitískum brellum.

Höfum þá í huga að rökræða er forsenda framfara!

Ofangreindur texti er að mestu fenginn að láni frá forsætisráðherra og er byggt á eftirfarandi heimildum:

Annað:

 

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Jón Skafti Gestsson 25. nóvember 2013 · á Facebook

    frábært!

  2. Rajendra Kumar 25. nóvember 2013 · á Facebook

    snerting fyrir tryggja og óörugg lán.

    láni fjárhæð frá 5000GBP að hámark fjárhæð af 5000.000GBP.

    snerting með email.
    rajendrakumar@qq.com

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.