Hoppa í efni

Jafnrétti Silfurskeiðabandalagsins

Sigurður Hólm Gunnarsson | 13.06.2013

Hugsjónir fólks og flokka eru mismunandi eins og gengur. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, hið svokallaða Silfurskeiðabandalag, er með sínar hugsjónir á hreinu. Jafnrétti þeirra er ljóst. Allir eiga að fá skuldir niðurfelldar jafnt. Óháð tekjum eða eignastöðu að öðru leyti. Allir eiga helst að borga sama skatt, sama hvað þeir eru með í laun. Ekki er mikilvægt að niðurgreiða tannlækningar barna frekar en fullorðinna. Sægreifar eiga svo að borga jafn hátt veiðigjald og húsfeður í Vesturbænum (þ.e. helst ekki neitt). Svona er jafnrétti sérhagsmunaaflanna.

Menn ganga hreint til verks. Þegar hefur verið útbúið frumvarp sem hefur í för með sér að tekjur ríkissjóðs af veiðileyfagjaldinu munu verða 3,2 milljörðum lægri árið 2013 en 6,14 milljörðum lægri árið 2014. Ráðherra sjávarútvegsins, sem virðist ekki hafa lesið frumvarp eigin ríkisstjórnar, segir þó ekki ljóst hvert tekjutap ríkissjóðs verður vegna breytinganna.

Af málflutningi ráðamanna má ráða að það komi til greina að laga stöðu ríkissjóðs með því að hætta við niðurgreiðslu á tannlækningum barna (Kemur "til endurskoðunar eins og allt annað"). Svo má örugglega taka lán fyrir restinni. Þannig geta börn morgundagsins einnig tekið þátt í skapa velferðarsamfélag stóreignafólks. Annað væri óréttlátt.

Mér leiðist að segja það en: I told you so!

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.