Í dag var birt viðtal við mig á vefritinu Vantrú. Í viðtalinu fjalla ég um ný lög um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og hvaða áhrif þau munu hafa á starfsemi Siðmenntar. Strax eftir að lögin voru samþykkt sendi Siðmennt inn umsókn um skráningu sem lífsskoðunarfélag. Ef umsókn Siðmenntar verður samþykkt mun það efla töluvert stöðu þeirra sem vilja fullt trúfrelsi á Íslandi og vilja búa í veraldlegu samfélagi.
Nánar:
- Umrætt viðtal á vefsíðu Vantrúar (hefst 30:28)
- Veraldleg lífsskoðunarfélög loksins viðurkennd: Baráttumál Siðmenntar í nær 13 ár (Skoðun)
- Alþingi færir lífsskoðunarfélögum aukið jafnræði með nýju lögum (Siðmennt)



