Hoppa í efni

Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot

Sigurður Hólm Gunnarsson | 17.04.2008

Kápa bókar Als Franken: Rush Limbaugh Is a Big Fat Idiot.Eftir: Al Franken

Umfjöllun:

Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot er einhver fyndnasta bók sem ég hef lesið um ævina. Í henni tekur Al Franken, vinstrisinnaður Demókrati sem er einna þekktastur fyrir að hafa verið hluti af Saturday Night Live genginu um tíma, bandaríska hægrimenn fyrir og gerir stanslaust grín að þeim. Meðal þeirra sem fá að finna fyrir eitruðum penna hans eru þingmenn, fjölmiðlamenn og forystumenn hagsmunahópa eins og Christian Coalition. Það er fátt sem Franken finnur þeim ekki til vansa og enn þá færra sem honum tekst ekki að gera grín að, enda Franken með fyndnari mönnum sem ég man eftir í augnablikinu.

Helsta „söguhetja“ bókarinnar er útvarpsmaðurinn (og fyrrum sjónvarpsmaðurinn) Rush Limbaugh, stór maður og hrokafullur sem lætur móðan mása í útvarpsþáttum og hefur að sögn furðu mikil áhrif á furðu margt fólk sem hlustar á þættina hans. Þó fer fjarri að hann sé eina “söguhetjan” og eins og áður segir er mikill fjöldi frægra bandarískra hægrimanna tekinn fyrir og hæddur. Það er kostur að þekkja nokkuð vel til bandarískra stjórnmálamanna en þeir sem fylgjast með fréttum ættu að kannast við það sem um er rætt.

Þrátt fyrir að Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot sé skrifuð á gamansaman hátt fer fjarri að hún sé ómerkileg, enda tekst Franken á við ýmis vandamál sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir.

Niðurstaðan eftir lestur bókarinnar er að það er vandfundin fyndnari bók.


Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Róbert Björnsson 18. apríl 2008

    Al Franken er frábær náungi!  Mér gafst tækifæri til að hitta hann og spjalla aðeins við hann s.l. haust en þá kom hann í heimsókn í skólann minn til að veiða atkvæði en hann hefur boðið sig fram til öldungardeildarþingsetu hér í Minnesota.   Sjá
    http://robertb.blog.is/blog/robertb/entry/334065/

    Það væri margt skárra í USA ef þeir ættu fleiri "pólitíkusa" eins og Franken.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.