Persónuvernd og vafrakökur

Hér er útskýrt hvernig Skoðun notar staðbundna geymslu í vafra, heimsóknamælingar og efni frá öðrum vefjum. Þú getur lesið greinar og notað leit án þess að samþykkja valkvæða þjónustu.

Val þitt er vistað í vafranum

Cookie consent ProXima vistar samþykkisstillingar undir heitinu shc_consent í staðbundinni geymslu vafrans (localStorage). Þar eru skráðir leyfðir flokkar, tími vals og útgáfa stillinga. Þetta er nauðsynlegt til að muna val þitt og er ekki notað til auglýsinga.

Valið gildir í 180 daga. Geymslufærslan getur verið áfram í vafranum þar til hún er endurnýjuð eða þú hreinsar hana. Val þitt er vistað í þessum vafra og flyst ekki sjálfkrafa milli tækja.

Valkvæð þjónusta og innfellt efni

Virkni: Letur frá Google Fonts, prófílmyndir frá Gravatar og einstakar myndir af öðrum vefjum hlaðast eftir samþykki fyrir virkni. Áður er notað varaletur og utanaðkomandi myndir kunna að vera faldar.

Greining: Þessi flokkur stjórnar valkvæðum greiningarvafrakökum. Eldri Google Analytics-kökur, svo sem _ga, eru hreinsaðar úr aðgengilegum vafrakökum þessa vefjar þegar flokknum er hafnað. Engin virk Google Analytics-tenging fannst við yfirferð 14. október 2026.

Markaðssetning og innfellingar: Sumt eldra efni inniheldur Facebook-færslur, YouTube- og Vimeo-myndbönd, SoundCloud-spilara eða innfellingar frá Vísi, DV og Mannlífi. Þessar innfellingar hlaðast aðeins eftir samþykki fyrir þessum flokki, þar sem þjónustuveiturnar geta notað mælingar eða vafrakökur.

Þegar þú leyfir utanaðkomandi þjónustu tengist vafrinn viðkomandi þjónustuveitu. Hún getur þá fengið tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu og upplýsingar um vafra, og unnið úr þeim samkvæmt eigin persónuverndarstefnu. Venjulegir tenglar á aðra vefi opnast þegar þú smellir á þá.

Staðbundnar heimsóknamælingar

Skoðun notar Independent Analytics til að fá yfirlit yfir heimsóknir. Viðbótin notar ekki vafrakökur fyrir þessar mælingar og gögnin eru vistuð á vefþjóni Skoðunar. Samkvæmt tæknilýsingu framleiðanda er IP-tala notuð við ákvörðun á grófri staðsetningu og útreikning á auðkenni, en ekki vistuð sem óbreytt IP-tala í mæligögnunum.

Þessar mælingar eru aðskildar frá valkvæðum greiningarvafrakökum og halda áfram þótt þeim flokki sé hafnað. Vafrakökuborðinn stjórnar ekki öllum gögnum sem verða til við rekstur vefþjónsins.

Breyta eða afturkalla samþykki

Þú getur opnað Stillingar vafrakaka á hverri síðu, breytt leyfðum flokkum eða hafnað öllum valkvæðum flokkum. Við afturköllun endurhleðst síðan svo áður leyfð þjónusta verði stöðvuð aftur.

Samþykkisviðbótin getur hreinsað þær vafrakökur þessa vefjar sem eru aðgengilegar henni og hafa skilgreinda hreinsunarreglu. Hún getur ekki eytt vafrakökum annarra léna eða HttpOnly-kökum. Þú getur hreinsað þær í stillingum vafrans.

Tengiliður

Skoðun er í umsjón Sigurðar Hólms Gunnarssonar. Fyrirspurnir um persónuvernd og notkun vefjarins má senda á siggi@skodun.is.

Upplýsingar uppfærðar 14. október 2026.