Um Skoðun

Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999 og var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér er vettvangur fyrir gagnrýna og málefnalega þjóðfélagsumræðu um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Á árum áður skrifuðu nokkrir pennar á Skoðun. Í dag birtir stofnandinn, Sigurður Hólm Gunnarsson, hér greinar og hugleiðingar, meðal annars efni sem hann deilir á samfélagsmiðlum.

Ritstjórnarstefna Skoðunar:

(Samin af ritstjóra en að hluta byggð á siðareglum Blaðamannafélags Íslands)

1. Skoðun er vettvangur fyrir gagnrýna og málefnalega þjóðfélagsumræðu.

2. Áhersla er lögð á umræðu um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

3. Pistlahöfundar skrifa undir eigin nafni og bera ábyrgð á öllu sem þeir skrifa.

4. Pistlahöfundar forðast að valda fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu.

5. Pistlahöfundar leitast við að upplýsa um hagsmunatengsl í skrifum sínum. Svo sem með því að upplýsa um tengsl við hagsmunasamtök og stjórnmálahreyfingar.

6. Pistlahöfundar leggja sig fram við að segja rétt frá staðreyndum og eru hvattir til að vísa í heimildir.

7. Pistlahöfundar skrifa samkvæmt eigin sannfæringu og án ritskoðunar innan þess ramma sem ritstjórnarstefna Skoðunar setur þeim.

10. mars 2013

Ritstjórn og tenglar

Sigurður Hólm Gunnarsson, ritstjóri Skoðunar

Ritstjóri:
Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er ritstjóri Skoðunar, iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari. Hann hefur víðtæka reynslu af starfi með ungmennum, fjölskyldum og fólki með geðrænan vanda, auk stjórnunar og fræðslu um samskipti og einelti.

Sigurður lauk BSc-prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2009 og námi í sáttamiðlun hjá Sáttamiðlaraskólanum árið 2019. Hann hefur einnig lokið viðbótarnámi í sáttar- og ábyrgðarmeðferð (ACT) og hugrænni atferlismeðferð (CBT).

Frá 2010 til 2022 var hann forstöðumaður Hraunbergs, skammtímaheimilis fyrir unglinga á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Hann hefur jafnframt stýrt búsetuþjónustu fyrir fólk með geðrænan vanda og skaðaminnkunarúrræðunum Frú Ragnheiði og Ylju hjá Rauða krossinum. Hjá Sjónarhóli sinnti hann fjölskylduráðgjöf og tók þátt í gerð fræðsluefnis.

Eineltismál hafa lengi verið meðal viðfangsefna Sigurðar. Hann er einn höfunda og framleiðenda heimildarþáttarins Einelti – helvíti á jörð, sem hefur verið sýndur á RÚV og notaður sem kennslugagn. Hann hefur einnig haldið erindi hér á landi og erlendis um samskipti og einelti.

Sigurður rekur Allir sáttir, þar sem hann veitir ráðgjöf, sáttamiðlun, handleiðslu og fræðslu. Í starfi sínu leggur hann áherslu á virðingu, skýrt samtal og að fólk fái rými til að segja frá eigin upplifun. Á Skoðun er áhersla lögð á gagnrýna og málefnalega þjóðfélagsumræðu í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.