Skoðun » Tölvur og tækni

Google+ — kynning, leiðbeiningar og gagnlegar íbætur
Ég er búinn að eyða nokkrum kvöldstundum í að kynna mér Google+. En Google+, eða Plúsinn eins og ég kýs að kalla þennan nýja samskiptavef, er svar leitarrisans Google (en ekki hvers?) við Facebook. Ég er á því að Plúsinn gæti slegið gegn. Í fljótu bragði virðist mér sem að Plúsinn sameini kosti Twitter (sem ég reyndar nota lítið) og Facebook. Þar að auki er útlit Plússins stílhreinna og meira aðlaðandi en Facebook.

Ekki spurning um vini, heldur út á að verða „hringaður“

Ólíkt Facebook þarf maður ekki að eiga neina „vini“ til að vera í samskiptum við annað fólk á Google+. Plúsinn gengur ekki út á að eignast vini heldur út á að verða „hringaður“ (sem mér finnst, af einhverjum ástæðum, hljóma hálf dónalega…).

Þannig get ÉG boðið ÞÉR að fylgjast með mér en geri um leið enga kröfu til þess að ÞÚ leyfir mér að fylgjast með þér (náðir þú þessu?). Að hringa einhvern er engin skuldbinding. (Af hverju hljómar þetta svona dónalega?)

Leiðbeiningar

Hægt er að fá fínar leiðbeiningar um Plúsinn hér: http://www.google.com/+/demo/.

Meðfylgjandi veggspjald útskýrir einnig ágætlega hvernig Plúsinn virkar:

Svo bendi ég einnig á þennan fína leiðbeiningabækling sem er reglulega uppfærður (enda höfundarnir rúmlega 120 talsins):

Gagnlegar Chrome íbætur fyrir Google+

Mjög gott er að nota Chrome vafrann með Plúsnum (enda Chrome í eigu Google). Nú þegar eru komnar út nokkrar gagnlegar Chrome íbætur fyrir Google+. Ég nefni hér nokkrar:

1) Replies and more for Google+ bætir viðmótið og auðveldar notendum að deila efni t.d. á Facebook.

2) +Comment Toggle setur athugasemdir við færslur í felliglugga.

3) Extended Share for Google Plus auðveldar þér að deila því sem þú skrifar á Google+ á Facebook, Twitter og LinkedIn.

Samantekt

Plúsinn er glænýr samskiptavefur stofnaður til höfuðs Fésbókarinnar. Vefurinn er augljóslega enn í mótun en byrjunin lofar góðu.

p.s. Hringaðu mig!

WordPress 2.5
Þá er ég búinn að uppfæra WordPress umsýslukerfið hjá mér í útgáfu 2.5. Í fljótu bragði sýnist mér nýja útgáfan vera verulega til bóta. Það kemur betur í ljós á næstu dögum.

Hingað til hefur WordPress reynst mér afar vel og vona ég að sú verði raunin áfram.

Með 1287 skeyti í innhólfinu
Þegar ég byrjaði að vinna í uppáhalds vinnunni minni (eða þannig) í dag gerði ég það sem ég geri alltaf í byrjun vinnudags, þ.e. sótti tölvupóstinn minn. Nú 20 mínútum síðar er ég enn að. Enda ekki með nema 1287 skeyti í innhólfinu mínu. Mikið fyrirlít ég þessa tölvunörda sem hafa ekkert annað við tíma sinn að gera en að búa til tölvuvírusa!

Hvernig á að svindla í kosningum
Hingað og ekki lengra. Ég er búinn að fá mig fullsaddann á tilvísunum manna í niðurstöður einhverra skoðanakannana á netinu. Ég er þó aðallega orðinn þreyttur á öllum þeim ruslpósti sem ég fæ reglulega sendan frá hinum og þessum sjálfskipuðu „spindocturum“ þar sem ég er hvattur til að taka þátt í einhverri ömurlegri skoðanakönnun á Silfri Egils, Pressunni eða öðrum ágætum vefmiðlum. Ástæðan er auðvitað sú að netkannanir eru svo ómarktækar að upplýsingagildi þeirra er nákvæmlega ekki neitt. Til þess að sýna fólki fram á þessa staðreynd, og í veikri von um að losna við ruslpóst, hef ég ákveðið að sjóða saman einfaldar leiðbeiningar um hvernig má auðveldlega svindla í netkönnunum.

Áður en ég hefst handa við að sýna ykkur hve auðvelt er að svindla í netkosningum vil ég segja eftirfarandi: Þó að ekki væri hægt að svindla í þessum kosningum þá væru niðurstöður þeirra engu að síður algjört bull. Það eru svo margir aðferðafræðilegir gallar á þessum könnunum að ég get ómögulega skilið hvers vegna fjölmiðla- og fréttamönnum dettur yfirleitt í hug að fjalla um niðurstöður þeirra.

Tvær ofureinfaldar leiðir til að svindla

1) Notaðu alla vafrana þína

Ólíkt þeim skoðanakönnunum sem eitthvað mark er takandi á er ekkert sem hindrar mann í því að kjósa oft í netkönnunum. Ef þú ert bæði með vafrana Internet Explorer og Netscape setta upp á tölvunni þinni þá getur þú til dæmis auðveldlega kosið með þeim báðum. Þú getur í raun sett fjölmarga vafra í tölvuna þína og kosið með þeim öllum ef þú vilt. Einfaldara getur það varla verið.

2) Slökktu á cookies

Eina ástæðan fyrir því þú getur yfirleitt bara kosið einu sinni í netkönnunum er sú að vefsvæðið sem geymir netkönnunina setur nokkurskonar merkimiða (mín þýðing á enska orðinu cookies) með upplýsingum um þig á vafrann þinn þegar þú nýtir þér kosningarétt þinn. Næst þegar þú ferð á síðuna „sér“ vefsíðan þennan merkimiða og bannar þér að kjósa aftur. Málið er að þú sem notandi getur ráðið því hvort vefsíður setja slíka merkimiða á vafrana þína. Hér koma einfaldar leiðbeiningar um hvernig þú kemur í veg fyrir að vafrinn þinn taki við slíkum merkimiðum:

Fyrir Internet Explorer notendur:

Farðu með músarbendillinn á valstikuna og veldu Tools og svo Internet Options…. Þegar Internet Options valmyndin birtist smelltu þá á Security-flipann. Veldu þar Custom Level og þá birtist gluggi sem kallast Security Settings. Í Security Settings eru að finna ýmsar stillingar en það eina sem þú þarft að gera er að finna orðið Cookies og smella á Disable þar sem stendur „Allow cookies that are stored on your computer“ og „Allow per session cookies [not stored]„.

Fyrir Netscape notendur:

Farðu með músarbendillinn á valstikuna og veldu Edit og svo Preferences…. Þegar Preferences valmyndin er komin á skjáinn skaltu smella á orðið Advanced sem þú finnur vinstra megin í glugganum. Veldu síðan Disable cookies.

Til hamingju. Nú getur þú kosið eins oft og þú vilt í flestum skoðanakönnunum á netinu. Ef þú hefur áhyggjur af því að uppáhalds stjórnmálaflokkurinn þinn sé að verða undir í einhverri könnuninni á netinu þá þarftu ekki að ónáða vini þína með leiðinlegum ruslpósti. Þú getur einfaldlega stillt vafrann þinn og séð sjálfur um að leiða þína menn örugglega til sigurs. En mundu, það er ljótt að svindla.