Skoðun » Stjórnmál
Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
Nú hef ég nokkrum sinnum tekið þátt í mótmælum og ég hef margoft tjáð mig opinberlega um þjóðfélagsmál. Ég hef þó aldrei öskrað, kastað eggjum eða öðru lauslegu og aldrei heimtað „bara eitthvað annað“. Það er að mínu viti lágmarkskrafa að fólk, sem vill láta taka sig alvarlega, rökstyðji skoðanir sínar og hlusti á málflutning annarra en hegði sér ekki eins og heimtufrekir og óþekkir krakkar.
Hverju er verið að mótmæla?
Ríkisstjórninni? Er hrun bankakerfisins, krónan, atvinnuleysið, verðbólgan, spillingin og skuldir heimilanna núverandi ríkisstjórn að kenna? Hvernig? Nú má ekki lengur minnast á það að Jóhanna og Steingrímur tóku við landinu í rúst eftir efnahagshrun sem seint verður hægt að klína á vinstrimenn. „Það eru mörg ár síðan“ segja sumir mótmælendur og krefjast þess að allt verði lagað þegar í stað. Hægrimenn í atvinnulífinu krefjast þess að ríkisstjórnin reddi málunum strax og vinstrisinnaðir mótmælendur líka.
Margir gera sér þó grein fyrir að ástandið er ekki núverandi ríkisstjórn að kenna en gagnrýna þó að uppbyggingin gangi ekki nógu hratt. Það kann vel að vera og þar sem að ég er fullviss um að fólkið sem situr á Alþingi er ekki fullkomnara en annað fólk þá veit ég að mistök hafa verið gerð. Því er mikilvægt að benda á þau mistök og sýna yfirvöldum aðhald með málefnalegri gagnrýni og aðhaldi. Mér finnst ekki nóg að hrópa „þið eruð ekki að standa ykkur nógu vel, fíflin ykkar“ og „ég vil eitthvað annað“. Bara „EITTHVAÐ“ annað.
„Ég vil kosningar!“ – Hvað á að kjósa og hvers vegna? Hvers vegna er stjórnarandstaðan betri? Og hvers vegna í ósköpunum er „eitthvað annað“ betra?
Ógeðsleg orðræða
Netið getur verið frábær vettvangur fyrir gagnlegar umræður og gagnrýni en gubbið sem frussast út úr fólki á hinum ýmsu netmiðlum er vægast sagt ógeðfellt. Skoðum nokkrar athugasemdir á vefmiðlum sem settar hafa verið á vefinn í dag (ég nenni ekki að taka saman allar Facebook athugasemdir þar sem menn eru kallaðir „fífl“, „hálfvitar“, „aumingjar“, „þjóðernissvikarar“ o.s.frv.):
„…um Orðhengil og Heimaskítsmátsdrottningu íslenska“ lýðveldisins“?“
„Óttalegur vesalingur ertu maður, en svona eru nú einu sinni vinstri grænir, ótrúlegir aumingar og vesalingar upp til hópa. eitthvað sem maður mundi kalla mannleg úrhrök,“
„Þvílíkur aumingi, þessum vesalingum þarna er best líst með því að geta ekki staðið af sér eitt andskotans hænuegg!“
„Smafylkingar liðið fer í fýlu ef það er púað á þetta prumpu lið“
„Sódóníska raðlygarann Jóhrannar erkisauð.“
„Fullt egg hitti tómann haus. (hátt bylur í tómri tunnu)“
„efast um að það sé hægt að skemma nokkuð í þessum haus eða öðrum í kollegum hans…“
Minni reiði og meira knús
Þessi ókurteisi, ofsafengna reiði og ósanngjörnu kröfur gera ekkert gagn. Við munum aldrei komast upp úr þessari kreppu nema með gagnrýnu hugarfari, málefnalegri umræðu og yfirveguðum aðgerðum.  Má ég leggja til minni reiði og meira knús?
Sammála Þjóðkirkjunni
Aldrei þessu vant er ég hjartanlega sammála talsmanni Þjóðkirkjunnar. Ég tel málflutning Vilborgar Oddsdóttur, félagsráðgjafa hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, um starf hjálparstofnanna  vera til fyrirmyndar. Ég er henni sammála um að það sé nauðsynlegt að setja reglur um starf hjálparstofnanna, sérstaklega ef þær eru studdar af hinu opinbera.
Burt með kreppuklámið
Ég er orðinn svolítið þreyttur á endalausum dómsdagsfréttum af matarbiðröðum hjá hjálparsamtökum. Ekki vegna þess að ég vil ekki vita að til er fólk í sárri neyð á Íslandi. Ég veit mætavel að margir hafa það skítt fjárhagslega og þurfa aðstoð. Það sem fer í mig er hvernig brugðist er við vandanum. Ég er einfaldlega á móti því að „einkarekin“ hjálparsamtök, sjálfeignastofnanir og  aðrir einkaaðilar sjái um að veita fjárhagsaðstoð og félagsþjónustu. Það á að vera hlutverk velferðarkerfisins.
Neyðarklám
Þegar einkaaðilar taka að sér að veita sjálfsagða velferðarþjónustu er voðinn vís. Þeir sem veita slíka þjónustu eru alltaf háðir styrkjum til að starfsemin gangi upp. Styrkirnir eru svo fengnir frá einstaklingum, fyrirtækjum og jafnvel hinu opinbera.  Þegar harðnar á dalnum verður eðlilega erfiðara að afla styrkja. Þá þarf einhvern veginn að auglýsa starfsemina og benda á mikilvægi hennar. Niðurstaðan verður alltaf nokkurskonar neyðarklám. Öll tækifæri eru nýtt til að auglýsa hversu margir hafa það ömurlegt með tilheyrandi niðurlægingu gagnvart þeim sem á aðstoðinni þurfa að halda. Þetta á við nú þegar í hverri viku eru sagðar fréttir af fátæku fólki í biðröðum, úti í kuldanum, að bíða eftir mat. Ég kalla slíkar fréttir kreppuklám.
Hlutverk velferðarkerfisins
Þó ég hafi sjálfur stutt bæði Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd er ég á móti því að hið opinbera styðji slík samtök skilyrðislaust. Hlutverk velferðarkerfisins er að greina raunverulegan vanda fólks og bregðast við honum með viðeigandi hætti.  Hratt og örugglega. Til þess að það sé hægt þarf að tala við þá sem leita eftir mataraðstoð og fá upplýsingar um aðstæður þeirra.  Þeir sem þurfa aðstoð eiga að fá hana.
Ég veit að mörgum finnst erfitt og jafnvel niðurlægjandi að leita til félagsþjónustunnar eftir aðstoð. En er það eitthvað erfiðara en að standa úti í biðröð eftir mat? Jafnvel með sjónvarpsmyndavélar í andlitinu? Ég held ekki.
Verkefni stjórnvalda
Stjórnvöld eiga að taka sig saman í andlitinu og gera hjálparsamtök sem útdeila mat óþörf hið snarasta. Þetta á reyndar að vera sameiginlegt markmið stjórnvalda og hjálparsamtaka.
Stjórnvöld og hjálparsamtök þurfa að vinna saman að því að kortleggja vandann og svo á hið opinbera að tryggja að allir sem á því þurfa að halda fái viðeigandi aðstoð. Til dæmis með aukinni fjárhagsaðstoð eða útgáfu matarkorta. Hjálparsamtök geta síðan aðstoðað þá áfram sem ekki eru í brýnni neyð.
Félagsmálayfirvöld þurfa líka að vera duglegri við að benda fólki á hvar og hvernig það getur leitað sér aðstoðar. Miðað við hvernig ástandið virðist vera í dag væri kannski ekki vitlaust að senda fulltrúa frá félagsþjónustunni til fólksins sem stendur í biðröðum með upplýsingar.
Hjálparstofnanir á móti matarkortum?
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði í fréttum RÚV í kvöld að hjálparstofnanir hefðu ekki sýnt áhuga á að taka þátt í útgáfu svokallaðra matarkorta. En með innleiðingu slíkra korta væri hugsanlega hægt að útrýma niðurlægjandi biðröðum fyrir utan hjálparstofnanir. Ég átta mig því ekki á því af hverju hjálparstofnanir sýna hugmyndinni ekki áhuga.
Ég vil gjarnan fá útskýringar á þeirri afstöðu.
Eru hjálparsamtök komin í einhverja samkeppni við stjórnvöld um þjónustu við fólk í fjárhagsvanda?
Ef hægt er að koma í veg fyrir biðraðir eftir mat með matarkortum eiga allir að taka höndum saman og vinna að verkefninu.
Ekki náðist í ritstjóra Morgunblaðsins…
Davíð Oddsson er góður penni, hann hefur sterkar skoðanir og gífurlega þekkingu á öllu því sem tengist íslenskum stjórnmálum. Allt ákjósanlegir eiginleikar fyrir ritstjóra Morgunblaðsins. Það að Davíð sé augljóslega Sjálfstæðismaður er nánast aukaatriði. Allir ritstjórar Morgunblaðsins hafa verið Sjálfstæðismenn. Ekkert nýtt þar á ferð.
Þau atriði sem gera Davíð þó algerlega óhæfan, þrátt fyrir aðra kosti, til að ritstýra virtasta dagblaði landsins eru þó mun veigameiri í mínum huga. Hann var forsætisráðherra frá 1991 til 2004 og utanríkisráðherra frá 2004 til 2005. Maðurinn stýrði ríkisstjórn Íslands þegar bankarnir voru einkavæddir og þegar útrásarvíkingarnir hófu að galdra peninga úr oft engu nema íslensku lofti. Hann var seðlabankastjóri Íslands þegar bankarnir hrundu. Ef marka má helstu aðdáendur hans hefur Davíð Oddsson borið höfuðábyrgð á  þróun íslensks samfélags undanfarin ár. Reyndar hafa grúppíurnar nú aðeins dregið í land og segja Davíð einungis bera ábyrgð á því góða í íslensku samfélagi, hrunið er vondu kapítalistunum að kenna.
Hvaða skoðun sem fólk hefur á ábyrgð Davíðs á íslenska efnahagsundrinu/hruninu er ljóst að stöðu sinnar vegna (sem ráðherra og seðlabankastjóri) á Davíð eftir að vera stórleikandi í fjölda frétta í nánustu framtíð. Hvað gerist þegar út koma skýrslur um bankahrunið? Hvað gerist ef nýjar upplýsingar koma upp á yfirborðið sem tengja Davíð við fall bankanna? Er líklegt að ritstjóri Morgunblaðsins verði reiðubúinn að veita öðrum fjölmiðlum viðtöl og svara spurningum þeirra? Heldur einhver að Davíð sé tilbúinn að veita öðrum fjölmiðlum upplýsingar sem gætu orðið að mikilvægri forsíðufrétt? Nei, auðvitað ekki.
Hvað með Morgunblaðið sjálft? Sjá menn það virkilega fyrir sér að blaðamenn þess blaðs grafi upp óþægilegar staðreyndir um Davíð, hringi svo í skiptiborðið til að fá samband, og krefji svo yfirmann sinn svara við erfiðum spurningum? Ætli þeir séu margir blaðamennirnir sem eru tilbúnir að taka slíka áhættu í kreppunni?  Ég býst ekki við því.
Þegar aðrir fjölmiðlamenn reyna að ná í Davíð mun það sjaldnast takast og margar fréttir munu enda á  „ekki náðist í ritstjóra Morgunblaðsins til að fá viðbrögð við umræddri frétt“.
Davíð Oddsson er fréttaefni, ekki efni í ritstjóra.
Af hverju ég kýs Samfylkinguna
Í fyrsta skipti í nokkuð langan tíma hef ég tekið virkan þátt í kosningabaráttu fyrir alþingiskosningar. Ástæðan er sú að ég tel afar mikilvægt að eftir kosningar taki við vinstri-jafnaðarstjórn undir forystu Samfylkingarinnar. Nú vita þeir sem þekkja mig að ég er varla mjög flokkshollur maður og oft ósammála fulltrúum Samfylkingar. Það þarf því nokkuð til að ég nenni að taka þátt í kosningabaráttu. Eins og staðan er í dag tel ég þó að valkostirnir hafi sjaldan verið skýrari. Ástæðurnar fyrir því að ég kýs og styð Samfylkinguna heils hugar nú eru eftirfarandi:
1)	Jóhanna Sigurðardóttir
Ég treysti engri manneskju betur til að standa vörð um velferðakerfið, hag heimilana og réttindi þeirra sem minna mega sín en Jóhönnu Sigurðardóttur. Á þetta sérstaklega við ástandið eins og það er nú. Íslenska ríkið er stórskuldugt og augljóst er að einhversstaðar þarf að draga saman seglin og skera niður. Ég veit að Jóhanna mun gera sitt besta til að tryggja að sá niðurskurður komi sem allra minnst niður á þeim sem verst hafa það.
2)	Sækja þarf um aðild að ESB
Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur það á stefnuskrá sinni að sækja um aðild að ESB og leggja aðildarsamning undir dóm kjósenda. Það hefur verið karpað um ESB í um 20 ár og enginn botn komist í þá umræðu. Menn geta rætt um kosti og galla ESB þar til þeir verða bláir í framan, niðurstaða fæst ekki þar til við setjum okkur samningsmarkmið, sækjum um aðild og sjáum hvaða samningum við náum. Best væri auðvitað að ríkisstjórn Samfylkingar og VG sjái um aðildarviðræður. Samfylkingarfólk er flest mjög hlynnt inngöngu í ESB á meðan meðlimir í VG eru margir hverjir algerlega á móti. Samningaviðræður undir stjórn þessa tveggja flokka tryggir að umræðan verður ekki of einhliða.
3)	Kominn tími á vinstristjórn
Nú, eftir bankahrun í boði Sjálfstæðisflokksins, er kominn tími á vinstristjórn þar sem félagsleg gildi eru sett á oddinn. Ég hef ekki alltaf verið þessarar skoðunar. Hef til að mynda oft verið hlynntur samstarfi jafnaðarmanna og frjálslyndra sjálfstæðismanna. Ekki nú. Nú er kominn tími til að þjóðin fái langa hvíld frá Sjálfstæðisflokknum.
4)	Frjálslynd jafnaðarstjórn
Mikilvægt er að næsta stjórn (vonandi vinstristjórn) verði hér eftir kosningar undir forystu Samfylkingarinnar. Ég viðurkenni að mér hefur þótt Vinstri grænir oft allt of íhaldssamir og forsjárhyggjusinnaðir fyrir minn smekk. Því er mikilvægt að Samfylkingin leiði væntanlegt samstarf vinstriflokkanna. Samfylkingin er að mestu leyti frjálslyndur flokkur og umburðarlyndur. Frjálslynd vinstristjórn verður ekki mynduð án forystu Samfylkingarinnar.
5)	Spilin upp á borðið
Á næsta kjörtímabili þurfa að fara fram mikilvæg uppgjör. Það þarf að rannsaka orsakir og afleiðingar bankahrunsins, vinda ofan af spillingu og sjá til þess að þeir sem bera ábyrgð beri hana. Aftur treysti ég engum stjórnmálamanni betur en Jóhönnu Sigurðardóttur til þeirra verka. Hún hefur ávalt barist gegn spillingu og fyrir lýðræðislegum leikreglum og verið gagnrýnd fyrir vikið.
Þetta eru, í stuttu máli, ástæðurnar fyrir því að ég styð Samfylkinguna heilshugar nú. X-S.
Stuðningsyfirlýsing
Ég hvet kjósendur Samfylkingarinnar til að fjölmenna á prófkjör til að kjósa Jón Baldvin Hannibalsson og Pétur Tyrfingsson og tryggja þeim þannig þingsæti. Þetta eru báðir „no bullshit“ frambjóðendur sem eru með skýra stefnu og eiga auðvelt með að tjá skoðanir sínar.
Ég hef aldrei geta leynt aðdáun minni (t.d. I – II) á Jóni Baldvini og er ég sannfærður um að hann myndi gera þjóðinni gott ef hann kæmist á þing. Enginn hefur útskýrt gildi jafnaðarstefnunnar betur en Jón Baldvin að mínu mati.
Pétur Tyrfingsson hefur verið duglegur að halda uppi gagnrýnni umræðu um heilbrigðismál  (I) og jafnaðarstefnuna. Það besta við hann er að hann er ekki að þykjast vera einhver pólitíkus. Hann segir einfaldlega það sem honum finnst. Vonandi heldur hann því áfram.
Fyrir utan að vera með hugmyndafræðina á hreinu eru Jón Baldvin og Pétur líka þeim kostum gæddir að þeir eru báðir frjálslyndir. Þeir eru ekki fyrir óþarfa boð og bönn.
Auðvitað styð ég fleiri einstaklinga en þessa menn í komandi prófkjöri.  Ég vil einfaldlega opinbera stuðning minn sérstaklega við þessa menn því það hefur lengi verið skortur á frjálslyndum jafnaðarmönnum í íslenskum stjórnmálum. Ég hvet því alla frjálslynda jafnaðarmenn til að koma þessum ágætu mönnum að.
Málefnasamningur um ekki neitt
Ólafur F. Magnússon tjáir sig ekki í fjölmiðlum án þess að segja að meirihlutinn í Reykjavík sé grundvallaður á málefnum en ekki völdum. Ég man ekki eftir einu einasta viðtali við borgarstjórann þar sem hann sleppir því að minnast á þetta. Það skýtur því skökku við að hann virðist vera ósammála sjálfstæðismönnum í nánast öllum meginmálum.
Ólafur krefst þess að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Kosningabarátta hans gekk út á að tryggja að flugvöllurinn færi ekki neitt.
Gísli Marteinn og fleiri innan Sjálfstæðisflokksins hafa margítrekað að þeir vilji flugvöllinn burt. Ljóst er að sjálfstæðismenn stefna að því flytja flugvöllinn strax eftir næstu kosningar.
Ólafur er mikill húsafriðunarsinni og fékk í gegn að Reykjavíkurborg keypti nokkra kofa á mörg hundruð milljónir. Þetta var eitt af skilyrðum hans fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðismenn eru almennt á móti slíkum kaupum. Morgunljóst er að samþykki sjálfstæðismanna fyrir kaupunum var leikur þeirra í valdabaráttu um borgina. Sjálfstæðismenn samþykktu ekki kaupin af hugsjón.
Kjartan Magnússon og fleiri sjálfstæðismenn vilja selja einkaaðilum REI, dótturfélag Orkuveitunnar. Þetta er skýr vilji mjög margra sjálfstæðismanna.
Borgarstjórinn segir að ekki komi til greina að selja einkaaðilum hlut í REI. Það kemur ekki til greina!
Maður hlýtur að velta því fyrir sér á hvaða málefnaforsendum Ólafur F. getur starfað með Sjálfstæðisflokknum. Samstarfið er augljóslega byggt á völdum en ekki málefnum. Þetta veit Ólafur F. og ég efast ekki um að honum líði illa með það. Ég held að honum sé raunverulega annt um borgina og þau mál sem hann berst fyrir. Hann var einfaldlega gabbaður til samstarfs af sjálfstæðismönnum.
Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot
Eftir: Al Franken
Umfjöllun:
Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot er einhver fyndnasta bók sem ég hef lesið um ævina. Í henni tekur Al Franken, vinstrisinnaður Demókrati sem er einna þekktastur fyrir að hafa verið hluti af Saturday Night Live genginu um tíma, bandaríska hægrimenn fyrir og gerir stanslaust grín að þeim. Meðal þeirra sem fá að finna fyrir eitruðum penna hans eru þingmenn, fjölmiðlamenn og forystumenn hagsmunahópa eins og Christian Coalition. Það er fátt sem Franken finnur þeim ekki til vansa og enn þá færra sem honum tekst ekki að gera grín að, enda Franken með fyndnari mönnum sem ég man eftir í augnablikinu.
Helsta “söguhetja” bókarinnar er útvarpsmaðurinn (og fyrrum sjónvarpsmaðurinn) Rush Limbaugh, stór maður og hrokafullur sem lætur móðan mása í útvarpsþáttum og hefur að sögn furðu mikil áhrif á furðu margt fólk sem hlustar á þættina hans. Þó fer fjarri að hann sé eina “söguhetjan” og eins og áður segir er mikill fjöldi frægra bandarískra hægrimanna tekinn fyrir og hæddur. Það er kostur að þekkja nokkuð vel til bandarískra stjórnmálamanna en þeir sem fylgjast með fréttum ættu að kannast við það sem um er rætt.
Þrátt fyrir að Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot sé skrifuð á gamansaman hátt fer fjarri að hún sé ómerkileg, enda tekst Franken á við ýmis vandamál sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir.
Niðurstaðan eftir lestur bókarinnar er að það er vandfundin fyndnari bók.
Hannes Hólmsteinn og vísindaleg vinnubrögð
Hvers vegna er verið að fá Hannes Hólmstein í viðtal um vísindaleg málefni? Maðurinn á víst að kallast fræðimaður en reynslan sýnir að hann lætur vísindin ekkert trufla pólitískan málflutning sinn. Sem dæmi þá var hann á Rás 2 í dag að fjalla um Al Gore og hnattræna hlýnun. Hannes hélt því þar fram að það ætti sér stað kólnun á Jörðinni en ekki hlýnun eins og vísindamenn eru flestir sammála um. Hvernig komst hann að þessari niðurstöðu? Jú því ef við skoðum hitatölur frá 1996 (sem er hlýjasta ár frá upphafi) til dagsins í dag hefur hitastig í heiminum lækkað! Þar sem ég tel mig vita að Hannes er ekki alfáfróður um hnattræna hlýnun verð ég að álita að þarna sé hann vísvitandi að nota talnaleik til að blekkja almenning. Að mínu mati er slíkur blekkingarleikur mun alvarlegri en sparsemi hann á gæsalöppum í bók um Laxnes.
Þar sem Hannes Hólmsteinn er fræðimaður og prófessor við Háskólann veit hann fullvel að það er út í hött að velja örfáar tölur úr stóru talnasafni og draga ályktun út frá þeim. Veðurfræði eru flókin vísindi og augljóslega margt sem hefur áhrif á hitastig Jarðar. Ljóst er að hitastig sveiflast mikið til á milli ára og ómögulegt að draga ályktun út frá einstökum mælingum. Sveiflur á meðalhita milli ára eru eðlilegar.  Sama hvaða skoðun menn hafa á því hver ástæðan er fyrir hlýnun Jarðar er flestum ljóst að hitastigið hefur hækkað (Sjá línurit hér fyrir neðan). Þetta veit Hannes Hólmsteinn en kýs að afneita því og snúa út úr. Slík vinnubrögð háskólaprófessors eru óafsakanleg.