Skoðun » Siðmennt

Hugvekja um hugsanaskekkjur
Hulda Þórisdóttir, Ph.D. í sálfræði, flutti afar áhugaverða hugvekju á vegum Siðmenntar fyrir alþingismenn í gær. Ég hvet alla til að lesa hugvekjuna í heild á vefsíðu Siðmenntar. Hulda fjallar um hugsanaskekkjur sem geta auðveldlega haft áhrif á okkur öll.

Hulda segir meðal annars:

„Þekkingarfræði húmanista tekur mið af því að áreiðanleg þekking um okkur sjálf og heiminn verði til við stöðugt ferli athugunar, rannsóknar og endurskoðunar. Í þessu felst að húmanistar leggja sérstaka áherslu á mikilvægi þess að við vöndum okkur við hugsun og ákvarðanir. Að við forðumst í lengstu lög að fella sleggjudóma, draga rangar ályktanir eða fljóta sofandi að feigðarósi þegar við hefðum betur staldrað við og hugsað málið. Og þið, ágætu þingmenn, þurfið að taka fleiri og afdrifaríkari ákvarðanir en við flest hin.“

Um staðfestingaskekkju:

„Algengasta skekkjan og sú sem hrjáir stjórnmálin líklega mest er staðfestingarskekkjan. Staðfestingarskekkjan leiðir af þeirri þumalfingursreglu að almennt er mun skilvirkara að staðfesta það sem við teljum okkur sjá og vita, heldur en að draga það í efa. Ef mér virðist ég sjá vin minn tilsýndar er mun skilvirkari leið til að ákveða hvort þetta sé raunverulega hann að bera saman skynjun mína við þá mynd sem ég hef af honum í minninu heldur en að bera skynjunina saman við alla aðra einstaklinga í minni mínu. Þessi afar skilvirka þumalfingursregla getur þó leitt til skekkju. Þegar fólk vill komast að ákveðinni niðurstöðu, hvort sem það er meðvitað um þann vilja sinn eða ekki, þá meðtekur það upplýsingar og vinnur úr þeim í takt við þessa æskilegu niðurstöðu. Einnig eru upplýsingar sem ganga gegn hinni æskilegu niðurstöðu endurtúlkaðar, hunsaðar eða dæmdar ógildar. Þetta er sérstaklega líklegt til að gerast þegar um er að ræða margbrotin mál þar sem tína má til margskonar staðreyndir.“

Hvernig hagsmunasamtök nýta sér hugsanaskekkjur:

Hagsmunasamtök nýta sér reglurnar um tiltæki og tilfinningar þegar þau reyna að hafa áhrif á stjórnmálamenn. Takist þeim að láta málefni sitt snúast um tilfinningar og halda því stöðugt á lofti, er nær öruggt að bæði fjölmiðlar og stjórnmálamenn munu veita því athygli og setja á dagskrá. Í Bandaríkjunum er frægt hvernig repúblikanar börðust með mjög áhrifaríkum hætti gegn erfðaskatti á stóreignafólk með því að endurnefna hann dauðaskatt og mála þar með ógeðfellda og tilfinningahlaðna mynd sem auðvelt er fyrir fólk að kalla fram. Hver gæti mögulega verið hlynntur því að leggja skatt á dauðann? Einnig má sjá hér á landi að tilfinningahlaðin málefni með öfluga talsmenn fá oft meira vægi í samfélagsumræðunni en ætla mætti af mikilvægi þeirra. Ég hugsa að staðgöngumæðrun gæti fallið þarna undir.

Að lokum segir Hulda:

Ágætu þingmenn, ég vona þessi lestur um galla mannlegrar hugsunar sendi ykkur ekki niðurlúta út í slagviðrið. Það er í anda húmanisma að horfast í augu við galla mannsins en gefast ekki upp fyrir þeim heldur reyna að bæta okkur sjálf – og þar með mannkynið. Eins og segir í stefnuyfirlýsingu húmanista:  Við veljum bjartsýni en ekki svartsýni, von en ekki örvæntingu, lærdóm en ekki kreddur, sannleika en ekki fáfræði, gleði en ekki sekt eða synd, umburðarlyndi en ekki ótta og skynsemi en ekki blinda trú eða afneitun rökréttrar hugsunar.

Sjá hugvekju Huldu í heild sinni á vef Siðmenntar

Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Tilkynning frá Siðmennt:

Siðmennt boðar til fundar næstkomandi þriðjudag, 20. september, í Norræna húsinu og hefst hann kl. 17:00.

Fundarefni er mannréttindakafli í tillögu Stjórnlagaráðs um nýja stjórnaskrá. Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnlagaráðsfulltrúi og Bjarni Jónsson, varaformaður Siðmenntar, verða með stutt erindi en síðan verða fyrirspurnir og svör.

Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis.

Stjórn Siðmenntar

Sjá nánar:

Vefsíða Siðmenntar

www.sidmennt.is

Siðmennt á Facebook

www.facebook.com/sidmennt

Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
Innanríkisráðuneytið vinnur nú að frumvarpi að lögum sem eiga að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á Íslandi. Þetta kom fram í svari Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, við fyrirspurn Baldurs Þórhallssonar um stöðu lífsskoðunarfélaga. Þetta er fagnaðarefni. Ég hef reyndar alltaf verið þeirrar skoðunar að hið opinbera eigi að skipta sér sem minnst að trúar- og lífsskoðunum fólks. Um leið tel ég að ef stjórnvöld ætla sér að styðja trúfélög og önnur lífsskoðunarfélög þá verði að vera jafnræði í slíkum stuðningi.

Nánar:

Greinar um ríki og trú á skodun.is

Umfjöllun um trúfrelsi á vef Siðmenntar

Úr trúfrelsisstefnu Siðmenntar:

„Stjórn Siðmenntar telur að markmið stjórnvalda eigi að vera að tryggja frelsi einstaklinga og vernda rétt þeirra til að lifa samkvæmt þeim lífsskoðunum sem þeir sjálfir kjósa. Stjórnvöld eiga að vera hlutlaus, óháð trúarbrögðum og eiga ekki að hygla ákveðnum lífsskoðunum umfram önnur. Þess vegna verður að aðskilja ríki og kirkju. Aðskilnaður ríkis og kirkju felur m.a. í sér að jafna lagalega, fjárhagslega og félagslega stöðu þeirra hópa sem aðhyllast ólíkar lífsskoðanir. Öðruvísi verður trúfrelsi, og þar með frelsi einstaklingsins, ekki tryggt.“

Ný vefsíða Siðmenntar
Undanfarnar vikur hef ég tekið að mér að setja upp nýja vefsíðu fyrir Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi. Nýja síðan er loksins orðin virk. Hvet alla til að kíkja á www.sidmennt.is og kynna sér starfsemi Siðmenntar. Siðmennt er virkilega flott félag, þó ég segi sjálfur frá, sem hefur haft gríðarleg, og að mínu mati jákvæð, áhrif á íslenskt samfélag.

Staðlausir stafir um Siðmennt
[Þessi grein var birt í Morgunblaðinu 3. febrúar 2010]

„Fordómar Siðmenntar gagnvart kristinni trú og fagmennsku kennara eru löngu orðnir augljósir og þegar rök þeirra eru úr lausu lofti gripin færi betur á að ritstjórar blaðanna stöðvuðu slíkar greinar. En í þessu sem öðru þurfa forsvarsmenn Siðmenntar ætíð að hafa síðasta orðið og því fróðlegt að sjá hvenær næsta grein birtist.“

Með þessum orðum lýkur grunnskólakennarinn Fjalar Freyr Einarsson grein sem hann skrifar um Siðmennt. Grein sem ber titilinn „Staðlausir stafir Siðmenntar“.

Titillinn og lokaorðin eru áhugaverð af ýmsum ástæðum. Þó helst þeim að innihald greinarinnar er lítið annað en samansafn af staðlausum stöfum um Siðmennt og þeirri ótrúlegu tillögu grunnskólakennarans, uppfræðara barna, að greinar frá Siðmennt verði ritskoðaðar að hætti Google í Kína.

Afstaða kennarans til tjáningarfrelsis er að mörgu leyti skiljanleg þegar hún er sett í sögulegt samhengi. Ritskoðun hefur í gegnum tíðina verið helsta vopn þeirra sem hafa valdið og ekki síður þeirra sem hafa vondan málstað að verja. Ef ritstjórar Morgunblaðsins ákveða að hlýða kennaranum og ákveða að koma í veg fyrir birtingu þessarar greinar fá lesendur blaðsins seint að vita að fullyrðingar kennarans um Siðmennt eru rangar eða með öðrum orðum staðlausir stafir.

Í grein sinni fullyrðir Fjalar að Siðmennt sé á móti fræðslu um trúarbrögð. Þetta er vitleysa sem hefur svo oft verið leiðrétt að það eru aðeins til tvær líklegar ástæður fyrir því að kennarinn fer með þessa staðlausu stafi. Annað hvort er hann ótrúlega fáfróður um efnið sem hann skrifar um eða hann er beinlínis að segja ósatt málstað sínum til framdráttar. Hvorug skýringin ber vott um vönduð eða heiðarleg vinnubrögð af hálfu uppfræðara barna.

Sannleikurinn er auðvitað sá að Siðmennt styður eindregið öfluga kennslu um trúarbrögð, siðfræði og gagnrýna hugsun. Þetta hefur alltaf verið stefna félagsins og hefur það komið skýrt fram í opinberum stefnuskrám Siðmenntar, ótal blaðagreinum, opinberum erindum og fjölmiðlaumfjöllun. Það sem Siðmennt hefur gagnrýnt er trúboð og trúariðkun innan opinberra skóla. Slíkt er ekki það sama og fræðsla um trú og trúarbrögð. Fjölmörg dæmi um umkvartanir foreldra vegna trúboðs og trúariðkunar í skólum má finna á vef Siðmenntar, www.sidmennt.is. Þar má líka finna stefnuskrár, opinber erindi og blaðagreinar þar sem afstaða Siðmenntar kemur skýrt fram. Ég hvet kennarann til að kynna sér þar stefnu Siðmenntar áður en hann nýtir sér næst tjáningarfrelsið og hvetur til ritskoðunar.

Að lokum vil ég nota tækifærið og vitna í stefnuskrá Siðmenntar, sem væntanlega er til vitnis um „fordóma“ og „umburðarleysi“ félagsins:

„Siðmennt lítur svo á að sannfæringarfrelsi, trúfrelsi og tjáningarfrelsi teljist til almennra lýðréttinda. Þau skuli ná til allra og þau megi hvorki afnema né skerða undir neinum kringumstæðum. Félagið telur að hið opinbera (ríkið, stjórnkerfið, þingið, dómskerfið, mennta- og heilbrigðiskerfið) eigi að starfa eftir veraldlegum leikreglum og án merkimiða einstakra trúar- eða lífsskoðunarfélaga. Félagið fer því fram á aðskilnað ríkis og kirkju og berst fyrir breytingum á lagaákvæðum sem mismuna þeim er standa utan trúfélaga.“

Höfundur situr í stjórn Siðmenntar.

Siðmennt býður alþingismönnum upp á valkost við þingsetningu
Sjá á vef Siðmenntar (www.sidmennt.is)

Alþingismenn eiga valkost við guðsþjónustu við þingsetningu

Löng hefð er fyrir því að setning Alþingis hefjist með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Í ár verður breyting þar á þar sem alþingismönnum sem ekki kjósa að ganga til kirkju munu hafa annan valkost. Siðmennt félag siðrænna húmanista á Íslandi býður alþingismönnum að koma á Hótel Borg áður en þing er sett föstudaginn 15. maí kl. 13:30 og hlýða á Jóhann Björnsson heimspeking flytja hugvekju um mikilvægi góðs siðferðis í þágu þjóðar. Allir alþingismenn eru hjartanlega velkomnir til að eiga stutta samverustund óháð öllum trúarsetningum áður en þeir ganga til þingstarfa.

Siðmennt eignast nýja vefsíðu
Undanfarna daga hef ég staðið í ströngu við að útbúa nýja vefsíðu fyrir Siðmennt. Afraksturinn er hægt að skoða á www.sidmennt.is.

Biskupi svarað
Siðmennt hefur sent frá sér opið svarbréf við svarbréfi Karls Sigurbjörnssonar biskups.  Biskup dró ekki til baka né baðst afsökunar á ummælum sínum um að Siðmennt væru „hatrömm samtök“. Það sem meira er þá heldur biskup því enn fram að Siðmennt hafi verið á móti fræðslu um kristna trú í skólum en sé nú búið að skipta um skoðun. Þetta er auðvitað alrangt eins og fram kemur í svari Siðmenntar. Ég hvet alla til að lesa svarið hér fyrir neðan eða á vefsíðu Siðmenntar.

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur borist svarbréf biskups Íslands við opnu bréfi félagsins frá 4. desember 2007 þar sem stjórn félagsins óskaði eftir afsökunarbeiðni biskups vegna orða hans í fjölmiðlum. Biskup verður ekki við afsökunarbeiðninni og gefur upp ástæður þess. Af því tilefni vill Siðmennt benda á eftirfarandi og eru tilvitnanir í svarbréf biskups breiðletraðar í gæsalöppum.

“Félagar Siðmenntar hafa undanfarið gengið hart fram gegn kirkju og kristni með einstrengingslegum málflutningi og kröfum um boð og bönn.”

Siðmennt hefur ávallt einsett sér að koma fram af virðingu gagnvart viðmælendum sínum þrátt fyrir að ágreiningur sé um lífsskoðanir og útfærslu mannréttinda. Í svari sínu getur biskup þess að félagið hafi „amast við“ ýmsum athöfnum í opinberum skólum sem að mati félagsins flokkast undir trúboð, m.a. „að lita og teikna trúarlegar myndir“. Þar er hann að vísa í bréf sem Siðmennt hefur sent yfirvöldum menntamála á Íslandi undanfarin ár t.d. til Menntaráðs Reykjavíkur.

Við þetta stendur félagið, en það er ekki Siðmennt sem upphaflega setti fram þá skilgreiningu sem vitnað er í heldur er hún sótt í smiðju Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.  Í lok ársins 2005 samþykkti nefndin einróma ályktun vegna máls foreldra og barna þeirra í Noregi. Foreldrarnir höfðu krafist  þess að yfirvöld menntamála þar í landi virtu hinn veraldlega grunn sem fylgja á í skólastarfi.  Hér að neðan birtum við þau atriði sem teljast til trúarathafna og tilheyra EKKI skólastarfi samkvæmt áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna:

- að læra og fara með bænir

- að syngja sálma og trúarleg lög

- að taka þátt í trúarathöfnum

- að fara í skoðunarferðir í kirkjur

- hverskonar trúarlegar yfirlýsingar

- lita eða teikna trúarlegar myndir

- þátttaka í helgileikjum

- að þurfa að taka á móti trúarlegu efni s.s. biblíum (nú eða Nýja testamentinu) eða þátttaka í hverskonar samkomum með trúarlegum áherslum

Það eru mannréttindi allra að fá að lifa eftir eigin lífsskoðun svo lengi sem hún brýtur ekki á öðrum. Það eru einnig mannréttindi að fá frið fyrir trúboði í opinberum skólum. Trúfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar tryggir þann rétt. Krafa um trúfrelsi felur ekki í sér aðför að trú eða trúarbrögðum, hvorki kristnum né öðrum.

“Ýmsir talsmenn Siðmenntar hafa leyft sér þann málflutning að tala niðrandi um trú og krefjast banns við helgileikjum og jólaguðspjöll í skólum. Ég leyfi mér að nota orðið „hatrammur“ um þennan málflutning.”

Því miður endurtekur biskup að málflutningur Siðmenntar sé hatrammur. Samkvæmt orðabókum þýðir orðið; sá sem hatar sterkt. Siðmennt fær ekki skilið hvernig gagnrýni félagsins á afskipti trúfélaga í opinberum skólum geti talist hatrömm eða hvernig hún getur talist niðrandi tal um trú. Siðað fólk heldur uppi rökræðu um ágreiningsefni sín án þess að hatast eða nota gífuryrði.

“Í tillögum sem Siðmennt lagði fram á fundi Menntaráðs Reykjavíkur í febrúar 2005 segir: “Í stað þess (letur breyting KS) að einskorða kennslu við kristinfræði er

heillavænlegt að kenna almenna siðfræði, heimspeki og gagnrýna hugsun.” Ég fagna því ef Siðmennt vill nú styðja kristinfræðikennslu og trúarbragðafræðslu í skólum eins og fram kemur í opna bréfi félagsins til mín. Það er sannarlega gleðilegt ef Siðmennt vill taka þannig höndum saman við Þjóðkirkjuna.” [undirstrikun Siðmenntar]

Siðmennt áréttar að félagið hefur alltaf verið hlynnt fræðslu um trúarbrögð, þar á meðal um kristni. Þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar gefur biskup enn í skyn að um sé að ræða nýja stefnu félagsins. Af einhverjum ástæðum telur biskup að Siðmennt hafi verið á móti fræðslu um kristna trú af því félagið vill ekki einskorða trúarbragðakennslu við kristna trú. Orðið „einskorða“ merkir að sjálfsögðu ekki að Siðmennt vilji enga fræðslu um kristna trú.  Siðmennt vill trúarbragðafræðslu á breiðari grundvelli.

Siðmennt hefur frá upphafi lagt áherslu á trúarbragðafræði, siðfræði, heimspeki og gagnrýna hugsun. Innan trúarbragðafræðinnar er eðlilegt að kristni og ásatrú séu gerð sérstaklega góð skil í ljósi sögu þjóðarinnar. Einnig er þó mikilvægt  að fræða nemendur um mikilvægi upplýsingarinnar, efahyggju og húmanisma og áhrif þessara hugmyndakerfa á þróun frelsis og mannréttinda.

Siðmennt tekur undir orð biskups að mikilvægt sé að allir læri um sögu trúarbragða og evrópska menningu.

„Ég legg mikla áhersla á að trúarbragðafræðsla, kristinfræði OG fræðslu um ólík lífsviðhorf fari fram á faglegum forsendum skólans og að fyllsta tillit sé tekið til mismunandi lífs-og trúarskoðana af virðingu og umburðarlyndi. Það gerist ekki með því að útiloka hinn trúarlega þátt og kærar hefðir eins og hatrammlega hefur verið kallað eftir í umræðunni undanfarið.“

Að mati félagsins er það trúboð þegar prestar, djáknar og guðfræðingar  koma í reglubundnar heimsóknir í skóla. Til trúboðs og trúarlegrar starfsemi telur félagið einnig Vinaleið kirkjunnar. Kennsla í trúarbragðafræði, kristinfræði, heimspeki og siðfræði á að vera í höndum fagmanna – kennara. Kirkjan hefur húsnæði, starfsfólk og fjármagn til þess að sinna boðunarstarfi í kirkjum sínum. Trúarlegt uppeldi barna er á ábyrgð foreldra þeirra og geta þeir sem það vilja sótt aðstoð kirkju sinnar án þess að það gerist í opinberum skólum. Trúarlegi þátturinn á ekki að vera hluti af skólastarfi.  Skólar eru ekki trúboðsstofnanir. Siðmennt hefur heldur ekki krafist sinnar aðkomu að skólum og heldur sín fermingarnámskeið utan þeirra.  Siðmennt hefur ekki farið fram á afnám neinna hefða í íslensku þjóðlífi – allt tal um annað eru rangfærslur.

Siðmennt hefur áhyggjur af ófriði um skólastarf og vill leggja sitt af mörkum til þess að friður náist um það. Friður kemst ekki á nema skólar verði lausir undan ágangi trúboðs.

9. desember  2007

Hope Knútsson

Formaður Siðmenntar

Kristileg kærleiksblóm spretta
Merkilegt hvað umburðarlyndið er mikið gagnvart Siðmennt. Síminn hefur varla stoppað hjá formanni félagsins þar sem hann er ásakaður um að vera nasisti, kommúnisti og annað miður skemmtilegt. Svo virðist það fara í taugarnar á sumum að formaður Siðmenntar skuli vera ættaður frá útlöndum. Hér er ein falleg orðsending sem Siðmennt barst í gær:

„Niður með þetta ógeðslega fyrirbæri sidmennt,bara orðið sjálft er hallærislegt ,hvað þýðir það?

Og snauti Hope Knútsson aftur til Amríku til ruglaða fólksins sem þar býr.“

Það má með sanni segja að kristileg kærleiksblóm spretti þessa dagana.

Útúrsnúningur og áróður
Umræðan síðustu daga um Siðmennt og meint stefnumál félagsins hefur verið ótrúleg. Þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar halda launaðir þjónar kirkjunnar áfram að snúa út úr orðum Siðmenntarmanna. Það er allt að verða vitlaust í bloggheiminum út af þeirri einföldu kröfu Siðmenntar ríkið sé hlutlaust í trúmálum.

Ég hvet lesendur sérstaklega til að lesa eftirfarandi guðfræðingablogg (Athugið að mikilvægt er að lesa andsvörin sem birtast í athugasemdakerfum líka. Það er mikið reynt til að snúa út úr málflutningi okkar í sjálfum greinunum).

1) Stefán Einar Stefánsson, guðfræðinemi, er þekktur fyrir að vera með miklar yfirlýsingar sem oft eru innistæðulausar.

Sjá sérstaklega:

Hrunadans Siðmenntar

Varaformaður Siðmenntar og litlu jólin

Áhugavert líka að skoða fyrri samskipti mín við guðfræðinemann hér:

Mótmælandi Íslands

2) Svavar Alferð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, fer á kostum í umræðum sínum um Siðmennt. Hann nær nýjum hæðum í útúrsnúningi sínum í greininni:

Siðmennt???

(Hér er einstaklega mikilvægt að skoða andsvör mín)

3) Annall.is er guðfræðiblogg þar sem nokkrir guðfræðingar koma saman og ræða ýmis mál. Áhugaverð síða þar sem oft er að finna ágætis pistla. Umræðan um málefni síðustu daga er nokkur þarna. Sjá:

Annáll.is