Skoðun » Kvikmyndir

GNARR – skemmtileg mynd, ómetanleg heimild
Ég fór á sérstaka forsýningu myndarinnar GNARR í gær og hló úr mér lungun. GNARR er ómetanleg heimild um Besta Flokks byltinguna.

Framleiðendur myndarinnar fegnu leyfi til að fylgja Jóni Gnarr eftir frá því hann bauð sig fram og alveg þar til að hann var orðinn borgarstjóri. Myndskeið af hugarflæðisfundum flokksins þar sem „stefnumálin“ voru fundin upp eru sérstaklega áhugaverð og myndirnar sem sýndar eru af svipbrigðum fjölmiðlafólks, kjósenda og pólitíkusa  við „ruglinu“ í Gnarr og félögum eru óborganlegar.

Persónulega veit ég ekki enn hvað mér finnst um Jón Gnarr sem borgarstjóra eða um Besta flokkinn almennt. Ég treysti mér ekki til að kjósa hann, þó mig hafi langað að gera það á tímabili. Það er samt eitthvað svo dásamlegt við þetta framboð og í raun held ég að það hafi verið nauðsynlegt.

Jón Gnarr er miklu klárari en hann lítur oft út fyrir að vera í fjölmiðlum. Enda kemur fram í myndinni að hann hafi sérstaklega ákveðið í hinum ýmsu viðtölum að leika „simpleton“ eða einfeldning. Jón Gnarr setti upp leikrit til að hrista upp í fólki. Hann skipulagði fyrirfram að ganga út af fundum, segja eitthvað heimskulegt eða þykjast ekkert vita bara til þess að athuga viðbrögðin.

Ég hvet alla til að fara á þessa mynd í bíó. Ekki bara vegna þess að myndin er virkilega skemmtileg og mikilvæg heimild. Heldur líka vegna þess að ég veit að myndin var framleidd án nokkurra styrkja og fjármögnuð fyrst og fremst af framleiðindunum  sjálfum þeim Sigvalda Kárasyni og Birni Ófeigssyni. Báðir þessir menn eru miklir töffarar og eiga ekkert nema gott skilið fyrir gera svona skemmtilega mynd.

Tímalaus ást
Fór á myndina The Time Traveler’s Wife í kvöld og er nokkuð sáttur. Myndin er byggð á samnefndri bók sem ég hef lesið tvisvar. Fyrst fyrir líklegast þrem árum. Myndin er góð en bókin frábær. Í stuttu máli er þetta falleg ástarsaga um mann að nafni Henry DeTamble sem ferðast óviljugur fram og aftur um tímann og kynnist ástinni á ferðalagi sínu. Ólíkt bókinni er framvinda myndarinnar nokkuð línuleg. Áhorfandinn fylgist með DeTamble (sem Eric Bana leikur) og ferðalagi hans í fortíð, nútíð og framtíð. Í bókinni er sagan sögð frá sjónarhóli tveggja einstaklinga og oft óljóst hvaða tímaskeið er í miðpunkti. Í bókinni er sagan sögð bæði frá sjónarhóli DeTambles og Clare Abshire, stúlkunni sem síðar verður kona tímaferðalangans ( leikin af Rachel McAdam). Ég mæli með myndinni og sérstaklega bókinni sem er listilega vel skrifuð og reyndar mun meira spennandi en myndin.

Það skal tekið skýrt fram að þetta er ekki vísindaskáldsaga þó sagan snúist um tímaferðalög. Um er að ræða fyrsta flokks sögu um tímalausa ást og vináttu.

Umfjöllun um myndina á IMDB

Umfjöllun um bókina á Amazon

Michael Moore svarar gagnrýni á Sicko
Fyrir nokkrum dögum fjallaði ég um Sicko, nýjustu mynd Michael Moore sem fjallar um heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. Eins og við mátti búast hafa margir gagnrýnt framsetningu Moore með misjöfnum árangri. Ég sé að Matti bendir á nokkur áhugaverð viðtöl á vefsíðu sinni (www.orvitinn.com) þar sem Moore svarar gagnrýni sem fram hefur komið. Afar áhugaverð viðtöl þar sem Moore tekur gagnrýnendur í bakaríið.

Sjá nánar:

USA – þar sem tryggingar snúast um fólk?

(Umfjöllun mín um Sicko)

Umfjöllun á www.orvitinn.com

CNN Gets Blitzed by Michael Moore

Michael Moore vs. Sonjay Gupta pt1

Michael Moore vs. Sonjay Gupta pt2

Michael Moore vs. Sonjay Gupta pt3

Michael Moore svarar rangfærslum á vefsíðu sinni.

USA – þar sem tryggingar snúast um fólk?
Ég horfði á Sicko – nýjustu áróðursmynd Michael Moore – áðan. Umfjöllunarefnið er heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum og fórnarlömb þess. Mynd Moore er, eins og hans fyrri myndir, áróðurskennd og einhliða en engu að síður afar áhugaverð. Spilað er á tilfinningar áhorfenda og er það gert vel. Ekki er laust við að rakastigið í mínum augum hafi aukist nokkuð á meðan myndinni stóð. Hvað sem menn vilja annars segja um Moore og vinnubrögð hans er öllum ljóst að eitthvað er verulega rotið í Kanaveldi.

Sicko fjallar ekki sérstaklega um þær 47 milljónir Bandaríkjamanna sem hafa enga sjúkratryggingu (af því þeir hafa ekki efni á henni) heldur er einblínt á þá sem eru svo „heppnir“ að vera tryggðir. Því eins og margir tryggingartakar vita þá eiga slagorð eins og „Ef þú ert tryggður, þá færðu það bætt“ oft til að vera innantóm (mundu að lesa smáaletrið).

Flestir Íslendingar þekkja sögur af hrakförum einstaklinga við að fá tjón sitt bætt hjá tryggingafélögunum. Hvað sem auglýsingarnar annars segja þá reyna tryggingafélögin alltaf að komast undan því að greiða. Tryggingar eru buisness! Það sama á við hvort um er að ræða bílatryggingar eða sjúkratryggingar.

Samkvæmt því sem fram kemur í Sicko fá starfsmenn sjúkratryggingafélaga t.a.m. bónus og launahækkanir ef þeir eru duglegir við að koma vinnuveitanda sínum hjá því að greiða fyrir læknismeðferð viðskiptavina sinna. Því færri sem fá þjónustu því meira græðir fyrirtækið. Trygginga- og lyfjafyrirtækin greiða svo fúlgur fjár á hverju ári til að lobbíera gegn öllum lagabreytingum sem gætu komið þeim illa. Sýni bandarískir stjórnmálamenn minnsta stuðning við opinbera heilbrigðisþjónustu eru þeir umsvifalaust stimplaðir kommúnistar og bendlaðir við Stalín og aðra brjálæðinga. „Opinber heilbrigðisþjónusta? Hvað næst? Samyrkjubú og myndir af Maó formanni inn á öll heimili?“ Það kemur því vart á óvart að algengasta gagnrýni á myndina og Moore er sú að myndin sé „kommúnistaáróður“ og Moore hreinræktaður „Bandaríkjahatari“ sem eigi að halda kjafti og hypja sig til Kanada, eða jafnvel enn verr til Frakklands.

Ég mæli semsagt með Sicko þó eflaust megi gagnrýna Moore fyrir áróðurskennd vinnubrögð. Bandaríska heilbrigðiskerfið er rotið og víti til að varast.

Sjá nánar:

Sicko (IMdb)

Hotel Rwanda
Ég mæli eindregið með myndinni Hotel Rwanda sem nú er sýnd á Icelandic film festival. Í myndinni er fjallað á áhrifaríkan hátt um þjóðarmorðin sem áttu sér stað árið 1994 í Rwanda. Á aðeins 100 dögum var um milljón manns slátrað með sveðjum og öðrum frumstæðum vopnum. Vesturveldin neituðu að bregðast við þessum fjöldamorðum og friðarsveitir Sameinuðu þjóðanna gerðu lítið annað enn að vernda erlenda túrista á meðan átökunum stóð. Fjöldamorðin fengu litla umfjöllun í fjölmiðlum og engin alþjóðahersveit var send inn til að bjarga saklausu fólki. Ekki var farið af stað með  “Operation Rwanda freedom” (samanber “Operation Iraqi Freedom”) þrátt fyrir að frekar fámennt herlið hefði þurft til að stoppa fjöldamorð framin með sveðjum.

Hotel Rwanda fær mann til hugsa til hvers friðarsveitir Sameinuðu þjóðanna eru til staðar ef það má ekki nota þær til að koma í veg fyrir fjöldamorð á saklausu fólki. Hvers vegna þótti stórveldum Vesturlanda mikilvægt að ráðast án tafar inn í Írak en höfðu engan áhuga á því að vernda saklaust fólk sem var verið að slátra í Rwanda? Ekki var verið að myrða milljón manns á örfáum dögum í Írak.

Svarið virðist vera augljóst. Herbrölt Vesturvelda er ekki knúið af mannúð og umhyggju fyrir saklausu fólki, heldur af völdum, olíu og peningum.

Áhugaverð kvikmyndahátíð
Ég á til með að mæla með nokkrum pólitískum heimildarmyndum sem sýndar eru í Háskólabíói þessa dagana.  Þetta eru myndirnar Outfoxed: Rupert Murdoch’s War on Journalism, The Corporation, The Yes Men og Bush’s Brain. Outfoxed og The Corporation eru áhugaverðastar enda báðar mjög vandaðar myndir. Outfoxed fjallar um “sanngjörnu og hlutlausu “fréttastöðina”” Fox, sem er hvorki sanngjörn né hlutlaus, og varla fréttastöð. Í The Corporation er fjallað um áhrif stórfyrirtækja á líf okkar allra, lýðræðið og umhverfið.

The Yes Men og Bush’s Brain eru mun síðri myndir að mínu mati en þó nokkuð áhugaverðar. Í The Yes Men er sagt frá nokkrum andstæðingum alþjóðavæðingar sem ferðast um heiminn og þykjast vera fulltrúar The World Trade Organization. Á ferðalögum sínum komast þeir upp með það að halda ræður þar sem þrælahald er réttlætt út frá viðskiptasjónarmiðum, og fáir virðast kippa sér upp við þá hugmynd. Í Bush’s Brain er Karl Rove, einn helsti ráðgjafi Bush, aðalviðfangsefnið. Nokkuð ljóst er að sá maður er siðspilltur pólitíkus sem gerir hvað sem er til að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína. Áhugaverð, en frekar illa gerð mynd.

Ég hvet alla sem hafa áhuga á pólitík og blaðamennsku til að kíkja á þessar myndir, sérstaklega Outfoxed og The Corporation.

Umfjöllun um ofangreindar myndir á Internet Movie Database:

Outfoxed

The Corporation

The Yes Men

Bush’s Brain

Fahrenheit 9/11
Nýjasta mynd Michael Moore, Fahrenheit 911 (F9/11), hefur fengið verðskuldaða athygli í Bandaríkjunum. Enda fjallar hún á beittan hátt um George Bush Bandaríkjaforseta og tengsl hans, og bandarískra stjórnvalda, við fjársterk fyrirtæki, fjölmiðla, vopnaframleiðendur, olíuiðnaðinn, einræðisherra og eftirlýsta hryðjuverkamenn svo eitthvað sé nefnt. Þessi gagnrýni fer afskaplega illa fyrir brjóstið á Repúblíkönum um allan heim, þar á meðal íslenskum. En eins og fer framhjá fáum þá sjá fjölmargir íhaldssamir Sjálfstæðismenn vart sólina fyrir Bush og Repúblíkanaflokknum.

Síðan sýningar á F9/11 hófust í Bandaríkjunum hafa íhaldsmenn keppst við að fullyrða að nánast allt sem fram kemur í myndinni sé byggt á blekkingum og lygum. Sannleikurinn er hins vegar sá að stór hluti þessarar gagnrýni er hins vegar sjálfur byggður á blekkingum og lygum.

Það ætti ekki að fara framhjá neinum að F9/11 er langt frá því að vera hlutlaus mynd. Moore hefur margsinnis lýst því yfir að markmið hans sé meðal annars að koma Bush frá völdum. Þeir sem vita eitthvað um Moore vita líka að hann gefur sig út fyrir að vera kaldhæðinn. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að í F9/11 er Bush bæði harðlega gagnrýndur og hæddur.

En eru þær staðreyndir sem Moore teflir fram hins vegar sannar? Langflestar eru það. Sumar eru óljósar, aðrar umdeilanlegar en flest af því sem kemur fram í myndinni er sannleikanum samkvæmt og ætti að vekja fólk til umhugsunar.

Fjallað var um F9/11 í Kastljósi Sjónvarpsins í gær og var blaðamaðurinn Ólafur Teitur einn þeirra sem tók þátt í umræðunni. Ólafur Teitur var greinilega nýbúinn að lesa leiðarvísi íhaldsmanna um myndina “Fifty-nine Deceits in Fahrenheit 9/11” eftir Dave Kopel og virtist sannfærður um F9/11 væri meira eða minna skáldskapur. Það sem Ólafur Teitur vissi væntanlega ekki var að ásökunum Kopels hefur verið svarað nokkuð ítarlega lið fyrir lið. Bæði af Moore sjálfum og á vefsíðunni Daily Kos (“Debunking the 59 Deceits”).

Það er ástæða til þess að hvetja alla þá sem hafa séð, eða ætla að sjá, F9/11 til að kynna sér þá ítarlegu umfjöllun sem átt sér hefur stað um myndina og komast að sinni eigin niðurstöðu.

Nauðsynlegt ítarefni fyrir þá sem hafa séð F9/11:

Fifty-nine Deceits in Fahrenheit 9/11

Debunking the 59 Deceits: Deceits 1-2

Debunking the 59 Deceits: Deceits 3-7

Debunking the 59 Deceits: Deceits 8-16

Debunking the 59 Deceits: Deceits 17-23

Debunking the 59 Deceits: Deceits 24-31

Debunking the 59 Deceits: Deceits 32-38

Debunking the 59 Deceits: Deceits 32-38

Debunking the 59 Deceits: Deceits 39-49

Debunking the 59 Deceits: Deceits 50-59

Fahrenheit 9/11 Notes + Sources

Mulholland Dr.
Ég fór í bíó í gær með Binna vini mínum á Mulholland Dr. Það er skemmst frá því að segja að þessi mynd er mögnuð. Örugglega súrrealískasta mynd sem ég hef á ævinni séð. Leikstjóranum, David Lynch, tekst alltaf að búa til einstaklega draumkenndar mynd. Það má segja að honum takist að gera óraunveruleikann sem felst í draumkenndu ástandi raunverulegan.

Nú langar mig mikið til að sjá Lost Highway aftur en ég hef ekki séð hana síðan hún var sýnd í Laugarásbíói fyrir nokkrum árum. Ég man að ég gekk út úr þeirri mynd hugsandi með sjálfum mér: ,,Vá, þessum leikstjóra tókst að kvikmynda martröð“. Óraunveruleikinn sem felst í martröð var sérstaklega raunverulegur í Lost Highway.