Skoðun » Klámvæðing

Niðurlægðir og misnotaðir karlkyns stripparar?
Hún var áhugaverð umfjöllun Stöðvar 2 í gær um konukvöld Players þar sem karlkyns stripparar trylltu dömurnar. Tekið var viðtal við Auði Alfífu Ketilsdóttur ritstjóra Stúdentablaðsins og hún spurð álits á konukvöldinu. (Viðtalið má sjá á vef Vísis og lesa hér fyrir neðan.)

Viðbrögð Auðar við strippinu eru athyglisverð. Fyrir utan hvað henni þykir nektardansinn hallærislegur þá telur hún kvennakvöldið vera lögreglumál, enda stripp bannað á Íslandi.  Augljóst er að Auði þykir eitthvað siðferðilega rangt við nektardansinn og virðist hún gera ráð fyrir því að þarna  hafi karlarnir verið hlutgerðir, misnotaðir og niðurlægðir.

Er rétt að álykta að nektardans feli sjálfkrafa í sér misnotkun og niðurlægingu? Voru konurnar á þessu skemmtikvöldi að misnota og niðurlægja þá menn sem þarna komu fram? Ég efast stórlega um það. Um leið tel ég það vægast sagt vafasamt að banna fullorðnu fólki með lögum að fækka fötum.

Spennandi verður að sjá hvort umræðan verður jafn heit og umræðan um konustripp var fyrir tíu árum. Einnig verður áhugavert að sjá hvort nektin verðu kærð til lögreglu…

Umfjöllun Stöðvar 2

Munur á karl- og kvenstrippi (sjá upptöku)

Kynnir: „Er munur á því að konur dansi hálfnaktar fyrir karla og eða að karlar dansi fyrir konur. Sindri [fréttamaður á Stöð 2] leitaði svara við þessari spurningu en konukvöld Players var haldið á dögunum þar sem að karlkyns stripparar virtust trylla stelpurnar.“

Sindri: „Auður, er einhver munur á þessu og þegar karlar sækja þessa staði?“

Auður: „Ég gæti sagt já og nei. Það er sko alsber kona er ekki það sama og alsber karl í menningunni hjá okkur. Yfirleitt eru alsberar konur notaðar sem kyntákn og eiga að vera sexy meðan þá alsberir karlar eru eitthvað skrítið eða fyndið. Það er algengara að alsberir karlar sé brandarar heldur en kyntákn.

Sindri: „Þér finnst ekki á þessum myndum eins og að þessum konum þyki þessir menn sexy?“

Auður: Eh [hlátur] ég veit það nú ekki og ég ætla ekki endilega að fullyrða um það, en eiginlega finnst mér það ekki aðalatrið. Aðalatriði finnst mér að svarið við hérna gagnrýni á nektardans kvenna er ekki að karlar stundi nektardans og hvort sem þetta er í samhenginu til að vera sexy eða til að vera fyndið þá finnst mér þetta vera hallærisleg hugmynd. Fyrir utan það sem mér finnst eiginlega mikilvægast í þessu er að nektardans er ólöglegur og búinn að vera það síðan 1. júlí í sumar og að því leitinu finnst mér bara kjánalegt að við séum að ræða þetta, að þú sért að ræða þetta við mig frekar en bara lögregluna eða þá sem kemur þetta við.“

Sindri: „En ja, bara af þessum myndum að dæma. Það er mikið búið að vera að tala um þetta alla veganna þar sem ég vinn. Það lítur alla veganna út fyrir að konan hafi mjög til dæmis gaman af því að koma þarna við bringuna á manninum og hún er skellihlæjandi.  Ef við snúum þessu við þá myndu einhverjir segja eitthvað.“

Auður: „Já augljóslega myndu margir segja ýmislegt. Ég væri örugglega mjög brjáluð líka. En hérna og aftur að því sem ég er að segja að þetta er á vissan hátt það sama og það sem mér finnst eiginlega merkilegt í þessu öllu saman er hvað við erum æst í að svona normalísera það að fólk komi alsbert fram og skemmti.

Það sem mér finnst merkilegt í þessu samhengi er að hérna þegar við erum að tala um nektardans, sem hefur yfirleitt verið karlar að horfa á konur er að horfa á hvað er að gerast þegar við snúum því við. Þegar valdakeðjan er orðin öfug, hvað er þá að verki? Þá erum við mjög oft að tala um konur í valdastöðu gagnvart þeim körlum sem þær eru þá að hlutgera eða horfa á sem kyntákn og þess vegna höfum við mótmælt nektardansi kvenna af því að konur eru jú undirskipaðar í menningunni.

Þær eiga minni peninga, þær fá minna kaup, þær verða frekar fyrir ofbeldi og svo framvegis. Þess vegna er áhugavert að skoða þegar konur hlutgera karla. Þá eru það oft mjög ríkar konur eða miðaldra konur sem þá hlutgera yngri menn eða fátæka. Og eins mjög merkilegur vinkill í þessu samhengi eru vestrænar konur vs. þá svartir menn eða þá latínó menn sem er einhvern veginn í lagi að tala um sem kyntákn en ekki bara manneskjurnar sem þær eru. Mér finnst það svolítið áhugaverður punktur að skoða ef við ætlum að horfa á þessi kynskipti. Þetta er ekki svo einfalt að þetta sé bara karl eða kona.“

Sindri: „Þannig að við getum í raun sagt að kynin séu eins það fer bara eftir því í hvaða stöðu við erum?“

Auður: „Við getum sagt að valdastaðan réðist af mörgu og vissulega er kyn eitt af því sem ræður valdastöðunni en já valdið er eitt af því sem við þurfum að skoða í þessu samhengi.“

Sindri: „Þannig að nú þurfum við þegar konur, eru að komast í betri stöður og fá hærri laun að þá þurfum kannski að fara að vernda karlana?“

Auður: „Já við þurfum að vera vakandi fyrir því hvaða valdakeri eru til þess að niðurlægja fólk og af hverju þurfum við alltaf að vera að niðurlægja fólk? Hvaða hugmynd er þetta um skemmtun? Við getum horft á það að fólk sem er í valdastöðu er alltaf í þeirri hættu að misnota vald sitt.“

Sindri: „Þannig að kynin eru jafn slæm með þetta, þetta snýst bara um stöðu?“

Auður: „Viltu fá mig til að segja það [hlátur]?“

Sindri: „Já mér heyrist þú vera að segja það.“

Auður: „Ég segi að fólk sem er við völd er alltaf í hættu á að misnota og þarf að vera meðvitað um vald sitt og í skjóli hvaða valds það skákar.“

Að horfa ekki á konu í heitum potti
Femínistum misbýður víst ný auglýsing frá líkamsræktarstöðinni Hreyfingu, og segja þær auglýsinguna vera „afbragðsdæmi um staðalmyndir kynjanna“. Í þessari hneykslanlegu auglýsingu sést maður sitja í heitum potti horfa á konu fara ofan í sama pott.  Oj bara. Hér verður augljóslega eitthvað að banna.

Ég verð að viðurkenna að ég hef stundum lent í þessari vandræðalegu aðstöðu. Ég hef setið í heitum potti þegar kona í bikiníi hefur skyndilega birst, án nokkurrar viðvörunar, og gengið í átt að pottinum. Þegar þetta hefur komið fyrir hef ég yfirleitt lokað strax augunum og kallað kröftuglega „vík burt Satan“. Þetta virkar oftast því þær hlaupa allar í burtu. Nema kærasta mín, hún er orðin vön þessum viðbrögðum – Guð blessi hana.

Hver er munurinn á barnaníðingum og klámframleiðendum?
Ef marka má ummæli sumra femínista, stjórnmálamanna og annarra góðborgara er enginn, eða í að minnsta lítill, munur á barnaníðingum og nauðgurum annars vegar og klámframleiðendum hins vegar. Þar með hafa þessir aðilar gert lítið úr því alvarlega ofbeldi sem felst í barnaníðingshætti og öðrum kynferðisafbrotum.

Nú er mér slétt sama hvort klámframleiðendur koma í skemmtiferð til Íslands eða ekki og því tapa ég litlum svefni yfir því að fyrirhuguð klámráðstefna hér á landi hafi verið blásin af. Ég hef þó töluverðar áhyggur af því þegar stór hópur fólks sér ekki muninn kynlífi, nekt, erótík og klámi annars vegar og kláru ofbeldi hins vegar.

Það að neyða einstaklinga til kynlífsathafna er siðleysi og glæpur. Það að nýta sér varnarleysi fólks sem á við andleg vandamál að stríða í kynferðislegum tilgangi er viðurstyggð. Að nota börn í kynferðislegum tilgangi er að sama skapi viðbjóður. Um þetta eru væntanlega allir sammála.

Það er hins vegar ekkert að því að fullorðnir og sjálfráða einstaklingar framleiði erótískt efni (klám), þ.e. stundi kynlíf með jafnokum sínum fyrir framan myndavél. Það skiptir engu máli hversu ógeðfellt mér eða öðrum kann að þykja slíkt efni. Fullorðið fólk hefur umráðarétt yfir eigin líkama.

Þegar sjálfskipaðir siðgæðisverðir setja blákalt samansem merki milli kláms og barnaníðingsháttar eru þeir ekki aðeins að tala gegn betri vitund, heldur einnig að gera lítið úr alvarlegustu glæpum sem fyrirfinnast í okkar samfélagi. Vonandi hafa þessir aðilar það í huga í framtíðinni.

Klámbanar láta í sér heyra
Siðferðispostular standa í ströngu þessa dagana við það að kæra bókabúðir og einstaklinga fyrir sölu á klámi. Nú síðast kærðu tvær ungar „hugsjónakonur“ Pennann-blaðdreifingu fyrir „innflutning, sölu og dreifingu á klámi í ágóðaskyni“. Þessum ungu konum „ofbýður klámvæðingin“ og því telja þær nauðsynlegt öllum verði bannað að neyta kláms. Verður þetta að teljast forsjárhyggja af verstu gerð.

Nú hefur fólk fyllilega rétt á því að finnast klám leiðinlegt og jafnvel viðbjóðslegt, það hefur hins vegar engan rétt á því að banna öðrum að hafa gaman af sama efni. Það er ekkert siðferðilega rangt við klám svo lengi sem enginn hlýtur beinan skaða af framleiðslu þess. Sjálfsagt er að banna klámefni sem vitað er að er framleitt með ólöglegum hætti. Klám þar sem einstaklingar undir lögaldri koma við sögu á að vera stranglega bannað og einnig allt klámefni sem hefur verið framleitt þannig að einhver hefur hlotið beinan skaða af.

Ekkert siðferðilega rangt er hins vegar við klámefni sem framleitt hefur verið af fullorðnum óþvinguðum einstaklingum. Ef viðkvæmum siðferðispostulum líður eitthvað illa yfir slíku klámefni er það ráðlegging mín til þeirra að horfa ekki á slíkt efni. Önnur ráðlegging er sú að þræða ekki allar bókabúðir, klámverslanir og bensínstöðvar í leit að klámritum. Það kemur kannski á óvart en sumir vísindamenn telja að slíkt athæfi auki jafnvel líkurnar á því að viðkomandi sjái klám.

Sænsku lögin gagnrýnd
Félagslegi mannfræðingurinn Petra Östergren fjallaði um rannsóknir sínar á sænsku vændislögunum í Norræna húsinu í gærkvöldi. Eins vitað er vilja íslenskir femínistar ólmir herma eftir frændum okkar í Svíþjóð og banna kaup á vændi. Þetta vilja femínistarnir þrátt fyrir að fjölmargar rannsóknir og athuganir bendi til þess að bann við kaupum á vændi muni gera illt verra. Málflutningur Petru var yfirvegaður, málefnalegur og ekki síst athyglisverður.  Í stuttu máli kemst Petra að sömuniðurstöðum og sá sem þetta skrifar. Boð og bönn leysa sjaldnast félagsleg vandamál.

Félagsfræðingar, afbrotafræðingar, lögreglan, vændiskonurnar sjálfar og aðrir þeir sem eitthvað vita um þessi mál virðast langflestir vera sammála um bönn leysi ekki neitt. Félagsleg vandamál verða ekki leyst nema með félagslegum úrræðum. Lög og fordæmingar gera meira ógagn en gagn, auk þess sem lög sem ná yfir kynlífsathafnir fullorðins fólks hljóta að teljast afar siðferðislega varasöm.

Sjá nánar:

Vefsíða Petru Östergren

Vændi og félagsleg úrræði
Flestir gera sér grein fyrir því að vændi er alvarlegt vandamál. Sem betur fer eru allir sammála því að það er hræðilegt að til sé fólk sem neyðist til að selja líkama sinn. Staðreyndin er hins vegar því miður sú að þessi neyð er til staðar. Hver ástæða neyðarinnar er skiptir ekki höfuðmáli. Siðmenntað samfélag þarf að bregðast við þessari neyð. Ekki með lögum, heldur með félagslegum úræðum.

Femínistar virðast vilja, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, berjast gegn vandanum með því að setja lög. Lagasetning gegn vændi er hins vegar ekki aðeins siðferðislega varasöm heldur einnig fyrirtaks friðþæging. Til hvers að beita félagslegum úrræðum þegar einfaldlega er hægt að banna og fordæma vandann?

Nú veit ég að þetta er einföldum hjá mér. Þeir sem vilja banna kaup á vændi með lögum vilja líklegast einnig beita félagslegum úrræðum. Af umræðunni að dæma virðist áhuginn á mannúðlegum og félagslegum aðferðum hins vegar ekki vera mikill.

Ef áhugi er fyrir hendi er hægt að gera ýmislegt til að hjálpa því fólki sem stundar vændi vegna neyðar. Til að mynda væri hægt að stofna aðgerðarhóp sem hefur það eina markmið að koma upplýsingum til þessa ólánsfólks um hvernig það getur leitað sér hjálpar. Hvernig það getur fengið aðstoð við að koma sér upp úr skuldum, fíkniefnaneyslu og úr viðjum vændis. Ef úræðin sem eru til boða eru markviss og fórnarlömbum vændis gert auðvelt að leita sér aðstoðar væri hægt að gera mikið til að koma í veg fyrir óþarfa böl og þjáningu. Það er ef áhugi er fyrir hendi.

Neyðin bönnuð með lögum
Á nýliðnu landsþingi Samfylkingarinnar var nokkur umræða um hina svokölluðu „sænsku leið“ i vændismálum og þá lagabreytingatillögu um vændi sem liggur nú fyrir Alþingi. Í henni er lagt til að kaup á vændi verði gert að refsiverðu athæfi. Tilgangur lagana er vitaskuld góður en það er ekki nóg. Ólíkt því sem fram hefur komið í íslenskum fjölmiðlum hefur „sænska leiðin“ verið gagnrýnd víðs vegar í Svíþjóð og verið bent á að hún dragi alls ekki úr vændi. Bannið ýtir vændinu undir yfirborðið og þar með versnar staða þeirra sem stunda vændi umtalsvert.

Íslenska leiðin gagnrýnd

1. Frumvarpið sem nú liggur fyrir þinginu um að banna kaup á vændi er mun frekar táknræn en praktísk löggjöf og tekur lítið mið af nýlegum skýrslum sem komið hafa fram um vændi á Íslandi. Í þessum skýrslum kemur fram að vændi vegna neyðar er í langflestum tilfellum tengt fíkniefnaskuldum. Fulltrúar meðferðaraðila hafa tekið undir þessa niðurstöðu. Löggjöfin mun að engu gagni koma í slíkum tilfellum.

2. Frumvarpið er of víðtækt. Samkvæmt því væri hægt að túlka kaup á Playboy riti sem brot á lögunum og varðar því allt að tveggja ára fangelsi.

3. Greinargerðin með frumvarpinu er gagnrýniverð. Ekki virðist hafa verið leitað álits afbrotafræðinga, lögreglu, lögmannafélagsins, félagsráðgjafa eða annarra sem þurfa að framkvæma lögin.

4. Sænska leiðin er rómuð í greinargerð og í málflutningi þeirra sem styðja löggjöfina. Í ritgerð sem Dr. Maria Kaspersson við Portsmouth háskóla skrifaði gagnrýnir hún harkalega sænsku leiðina.

Sænska leiðin gagnrýnd

Þegar Svíar lögðu til að kaup á vændi yrði bannað með lögum voru margir til þess að gagnrýna þá tillögu. Meðal þeirra sem gagnrýndu tillöguna voru þekktir lagasérfræðingar, sænska dómsmálaráðuneytið, félagsráðgjafar og vændiskonurnar sjálfar.

Í greinagerð með umræddu lagafrumvarpi segir m.a.:

„Á málstofu sem Stígamót gengust fyrir undir yfirskriftinni „Baráttan gegn verslun með konur – Bestu leiðirnar á Evrópuvettvangi“ flutti Gunilla Ekberg erindi um „sænsku leiðina til að stemma stigu við vændi og mansali“, en hún starfar sem sérstakur ráð gjafi sænsku ríkisstjórnarinnar í slíkum málefnum. Í máli hennar kom fram að árangurinn af hinni nýju löggjöf leyni sér ekki, þannig hafi götuvændi í sænskum borgum nánast horfið og glæpahringirnir, sem áður seldu konur í þúsundatali til Svíþjóðar, sniðgangi nú landið. Nú sé talið að einungis 200–500 konur komi árlega ólöglega inn í landið til að stunda vændi.“

Hvergi kemur hins vegar fram að Glæpavarnardeild sænska ríkisins (Rikspolisstyrelsen) telur að verslun með konur hafi orðið ofbeldisfyllri í kjölfar laganna og vegna bannsins er nú erfiðara að uppljóstra um vændisstarfsemi enda er mun erfiðara að fá þá sem kaupa vændi til að vitna gegn dólgunum. Þetta hefur haft meðal annars afar neikvæð áhrif á stöðu erlendra kvenna sem hafa verið seldar mansali til Svíþjóðar. Sama deild fullyrðir að þó götuvændi hafi minnkað hafi vændi þess í stað aukist í heimahúsum, hóteldum og á netinu. Glæpavarnardeildin bendir á að vændið hafi alls ekki horfið, heldur hafi það horfið undir yfirborðið.

Í skýrslum lögreglunnar kemur einnig fram að erfiðara sé að berjast gegn vændi eftir að núverandi lög voru sett. Lögreglan bendir á að vald dólganna fari nú vaxandi. Dólgarnir hóta nú vændiskonunum því að þær geti ekki leitað til lögreglu sé þeim misþyrmt. Einfaldlega vegna þess að viðskiptavinirnir muni ekki bera vitni þar sem kaup þeirra eru ólögleg. Engin vitni, engin sakfelling.

Embætti sænsku ríkislögreglunnar segir lögin bæði gagnslaus og hættuleg. Í skýrslu ríkislögreglustjórans kemur fram að vændiskonum hefur alls ekki fækkað í kjölfar lagana. Götuvændið er einungis minna áberandi. Starfsemin er því ekki minni heldur meira undir yfirborðinu. Lögreglan bendir á að þar með sé nú erfiðara að ná til þeirra sem stunda vændi og veita þeim aðstoð. Lögreglan hefur einnig bent á að ólöglegum vændishúsum hafi fjölgað og sífellt færist í aukanna að viðskiptin fari fram með hjálp síma, internetsins, hótela og næturklúbba.

Staða þolenda versnar

Ólíkt því sem ráða má af umfjöllun á Alþingi og í íslenskum fjölmiðlum hefur gagnrýni á sænsku leiðina verið allmikil. Afbrotafræðingar hafa fullyrt að staða þolenda sé nú mun verri. „Þessir kvenmenn lifa hræðilegu lífi nú,“ er haft eftir einum afbrotafræðingnum.

Þolendurnir hafa sjálfir bent á að lögin gera meiri skaða en nokkuð annað. „Lögin eru hreinlega að myrða fíkla. Stelpur sem hafa hingað til aðeins getað greitt fíkniefnaskuldir sínar með því að stunda vændi á götum úti eru í miklum vanda þar sem viðskiptavinum þeirra hefur fækkað. Þá svipta þær sig einfaldlega lífi,“ segir sænsk vændiskona um lögin.

Vændiskonur hafa margar hverjar sagst vera á móti lögunum en vilja frekar að vændi verði gert löglegt. Þannig gætu þær stofnað hagsmunasamtök þar sem þær gætu með samtakamætti tryggt frekar réttindi sín og aðstæður. Með því að hafa vændi sem mest á yfirborðinu er einnig mun auðveldara að veita þolendum aðstoð og hjálp.

Neyð verður ekki bönnuð

Vændi er vitaskuld afleiðing neyðar en ekki orsök hennar. Félagsleg vandamál verða ekki leyst með því að banna þau. Ef raunverulegur vilji er fyrir hendi á hinu háa Alþingi fyrir því að draga úr vændi vegna neyðar og koma þeim sem stunda vændi til hjálpar þarf að beita félagslegum úrræðum.

Femínistar á rangri leið
Ég er að hugsa um að skella mér á nektardansstað í kvöld. Ofbeldisvarnarhópur Femínistafélags Íslands hefur nefnilega ákveðið að selja barmmerki með áletruninni ,,Ég kaupi konur“ fyrir utan nektardansstaðinn Goldfinger í Kópavogi í kvöld.

Samkvæmt fréttatilkynningu félagsins er tilgangurinn með þessari sölustarfsemi að ,,vekja neytendur kynlífsiðnaðarins til umhugsunar um hlutverk sitt innan iðnaðarins þar sem þeir mynda eftirspurn eftir kvenlíkömum.“

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sagði einn fulltrúi Femínistafélagsins þetta með tilgang barmmerkjasölunnar:

,,Það sem mig langar til að segja við karla sem koma og kaupa sér konur á svona nektardansstöðum, að mig langar til að vekja þá til umhugsunar um það að miðað við mansalsiðnaðinn sem er í gangi í heiminum í dag að þá eru töluverðar líkur á því að konur sem koma hingað til Íslands að dansa hafi verið seldar mansali. Líkurnar benda til þess að einhver þeirra hafi verið seld mansali. Þess vegna vil ég hvetja þá til þess að hugsa sig um þegar þeir fara inn á svona staði að stúlkan sem er að dansa fyrir framan þá getur hugsanlega hafa verið seld mansali og þeir geta aldrei verið vissir.“

Gott og vel. Mansal, eða nútímaþrælahald er auðvitað viðbjóðslegt og verðugt viðfangsefni að berjast gegn því. Það er hins vegar fáránlegt að ráðast á nektardansstaði í þeirri baráttu nema vitað sé að viðkomandi staður hafi tekið þátt í mansali. Það er nefnilega ekkert að því dansa eða horfa á nektardans ef engin þvingun á sér stað.

Rétt eins og við eigum að leggja okkur fram við að sniðganga fataverslanir, veitingastaði og aðra þjónustu sem nýtir sér börn og/eða býður starfsmönnum sínum í þriðja heiminum upp á hræðileg laun og mannskemmandi vinnuaðstæður. Við eigum samt ekki að sniðganga alla þá sem bjóða upp á slíkar vörur. Bara þá sem hafa brotið af sér. Annað er auðvitað siðlaust.

Ef Femínistafélagið myndi reyna að gera eitthvað uppbyggilegt, eins og að reyna að finna og ná til þeirra kvenna sem hafa verið seldar mansali (ef einhverjar eru hér á landi) og aðstoða þær við að komast úr þeim aðstæðum myndi ég glaður aðstoða félagið. Femínistarnir virðast hins vegar vilja banna þessa starfsemi og gera lítið úr þeim sem vinna við og sækja nektardansstaði. Öllum, þar á meðal nektardansmeyjunum sjálfum, til mikillar bölvunar.

Stórhættuleg verndarhendi yfirvalda
Það er orðið opinbert. Dómsmálaráðherra hefur samþykkt og skrifað undir bann við einkadönsum á svokölluðum nektardansstöðum borgarinnar. Þessi gjörningur yfirvalda sýnir okkur a.m.k. tvennt. Í fyrsta lagi að yfirvöldum er alveg sama um stjórnarskrá Íslands og þann mikilvæga rétt að allir séu jafnir fyrir lögum. Í öðru lagi er augljóst að yfirvöldum gæti ekki verið meira sama um hagsmuni þeirra sem vinna á nektardansstöðunum, sérstaklega hagsmuni þeirra sem stunda þessa atvinnu af einhvers konar neyð.

Hverja er verið að vernda?

Það er deginum ljósara að ríkisvaldið er að skapa neyð með þessum aðgerðum. Neyð sem jafnvel og líklega mun reka stúlkur út í vændi. Ef sumar þeirra sem vinna á nektardansstöðum borgarinnar eru að dansa einkadans vegna fjárhaglegrar neyðar, eins og yfirvöld halda oft fram, hvað munu þær þá gera nú? Ef raunveruleg fjárhagsleg neyð er fyrir hendi, þá bjarga þær sér varla með því að vinna í Bónus eða á skrifstofu Dómsmálaráðherra. Nei, ætli eina lausnin fyrir sumar þeirra sé ekki að stunda vændi, einhversstaðar bak við tjöldin og í skítugum kjöllurum þar sem enginn er til að vernda rétt þeirra. Ætli borgaryfirvöld og hæstvirtur dómsmálaráðherra telji það ekki bara vera ásættanlegan fórnarkostnað? Þeim hefur þó allaveganna tekist að koma í veg fyrir ,,ógeðslegan“ einkadans.

Ofangreindar aðgerðir yfirvalda eru góð dæmi um stórhættulega verndarhendi yfirvalda. Yfirvöldum virðist vera alveg sama um einstaklingana sem eru að reyna að vinna fyrir sér í þessum atvinnugeira. Eina sem skiptir þá máli er að vernda ferkantaða heimsmynd smáborgarans þar sem himnaríki verður til með boðum og bönnum. Sorglegt og um leið stórhættulegt.

Þrælar almenningsálits

Ef stjórnmálamenn hefðu einhvern vott af umhyggju fyrir umbjóðendum sínum og hugrekki til að berjast fyrir bættum lífskjörum þeirra myndu þeir ekki bregðast við eins og dómsmálaráðherra hefur nú gert. En umhyggjuna skortir og stjórnmálamenn virðast almennt skorta hugrekki til að berjast fyrir réttlæti en eru þess í stað þrælar almenningsálits.

Með banninu á einkadönsum hefur stjórnarskráin að öllum líkindum verið brotin, aðstaða nektardansmeyjanna verið stórlega sköðuð, ýtt hefur verið undir ólöglegt vændi og eigendum nektardansstaða líklegast verið afhent óútfyllt ávísun. Greiðendur eru ég og þú!

Hvar værum við stödd án verndarhandar yfirvalda?

Góð ályktun!
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík mánudaginn 10 júní 2002.

Ályktun um starfsemi nektardansstaða

Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík (UJR) harma þá ákvörðun borgaryfirvalda að banna einkadansa á svokölluðum nektardansstöðum borgarinnar. Ástæða bannsins eru m.a. ,,sterkar vísbendingar um að vændi þrífist í skjóli einkadansins”. UJR telja aldrei réttlætanlegt að refsa mönnum eða fyrirtækjum vegna gróusagna eða ,,vísbendinga”. Þar að auki bendir allt til þess að gjörningur borgaryfirvalda sé ólöglegur þar sem bannið brýtur klárlega gegn 75. grein stjórnarskrár Íslands þar sem segir:

,,Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Í lögum skal kveða á um rétt manna til að semja um starfskjör sín og önnur réttindi tengd vinnu.”

Mönnum skal refsað fyrir að brjóta lög, ekki fyrir grun um að brjóta lög

Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík minna einnig á að starfsmenn nektardansstaða eru líka fólk sem er umhugað um æru sína, og því ekki við hæfi að stjórnmálamenn bendli þá beint eða óbeint við lögbrot. Ungir jafnaðarmenn hvetja yfirvöld til að viðhalda lögum í landinu og refsa þeim sem sannarlega brjóta lögin með viðeigandi hætti en benda um leið á að í lýðræðisþjóðfélagi eru allir menn jafnir fyrir lögum og jafnframt saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð.

Ef banna á starfsemi nektardansstaða vegna gruns um að þar þrífist vændi þá hljóta yfirvöld næst að banna alla þá skemmtistaði þar sem grunur er um að seld hafi verið ólögleg eiturlyf eða þar sem menn hafa verið beittir líkamlegu ofbeldi. Þar sem kvartanir vegna hinna ýmsu ,,hefðbundnu“ skemmtistaða eru mun fleiri en gagnvart nektardansstöðunum og þar sem ólöglegt athæfi hefur sannanlega oftar viðgengist á þeim stöðum þar sem nekt kemur ekki við sögu þá hljóta yfirvöld að banna alla þá skemmtistaði líka, eða láta í það minnsta flytja alla þá staði sem grunaðir eru út fyrir miðbæjarmörkin.

Í núverandi lagaumhverfi er hórmang, eiturlyfjasala og þrælahald bannað. Því er eðlilegt að þeir aðilar sem stunda slíka iðju séu kærðir og dregnir fyrir dóm, algerlega óháð því hvort þeir sem eru sekir eru tengdir nektardansstöðum, almennum skemmtistöðum eða hvort þeir reka bakarí. Glæpur er glæpur óháð því hvar hann er framinn. Það er því alger óþarfi að banna nektardansstaði sérstaklega vegna ofangreindra glæpa. Staðirnir verða nefnilega sjálfkrafa ólöglegir ef ólöglegar athafnir eru vísvitandi stundaðar þar. Betur færi á því að íslensk stjórnvöld endurskoði vinnuréttarlöggjöfina sem snýr að vinnu útlendinga á Íslandi og sporni gegn meintum lögbrotum með almennum aðgerðum í stað þess að kippa fótunum undan löglegri atvinnugrein.

Að gefnu tilefni vilja Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík taka það skýrt fram að með þessari ályktun er félagið ekki að leggja blessun sína yfir vændi eða hvetja til þess að það sé stundað.

Stjórn Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík