Skoðun » Hæðni

Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
Nokkurn veginn svona hljómar rökstuðningur Friðriks Schrams Kristskirkjuprests í Fréttablaðinu í dag.

Það er ekkert að því að vera trúaður, svo lengi sem hinn trúaði iðkar ekki trú sína. Ég ítreka að trúhneigð er ekki það sama og trúariðkun. Við verðum að gera greinarmun á þessu tvennu og það geri ég. Til er trúað fólk sem biður ekki bænir og fer aldrei í kirkjur jafnvel þó því langi mikið til þess. Við eigum að elska hinn trúgjarna þótt við hötum trúna. Það stendur örugglega í einhverju mörg þúsund ára gömlu riti skrifuðu af fólki sem hélt að tunglið væri ostur.

Gáfulegt? Nei.

Já Friðrik þú gerir öðrum mein

Friðrik spyr í greininni:

„Ef maður lætur í ljós andúð á einhverri hegðun, er maður þá orðinn hættulegur þjóðfélaginu, og settar skorður a.m.k. hér í Reykjavík. Hef ég gert einhverjum mein og er ég núna undir smásjá mannréttindaráðs borgarinnar? Ég bara spyr.“

Já. Fordómar þínir gagnvart samkynhneigðum eru hættulegir og já þú gerir öðru fólki mein með orðum þínum. Til er fólk á öllum aldri sem líður vítiskvalir vegna fornaldarfordóma þinna og annarra gagnvart samkynhneigð. Til er fólk sem, ótrúlegt en satt, trúir bullinu í þér og heldur virkilega að það sé að syndga með kynhneigð sinni (fyrirgefðu, ég meina með því að stunda kynlíf sem þér þóknast ekki). Fordómar þínir og fáfræði valda vanlíðan, þunglyndi og jafnvel dauða. Eigðu það við samvisku þína…

Það er ekki það sama Jón og séra Örn Bárður Jónsson
Starfsmaður á leikskóla sem skrifaði í hálfkæringi á Facebook síðu sína að hann vildi kyrkja barn var umsvifalaust rekinn. Sviðsstjóri hjá Eflingu segir uppsagnir vegna slíkra ummæla vera algengar.  Aðallega er það fólk sem sinnir börnum og öldruðum sem fær að fjúka fyrir ósæmileg ummæli um skjólstæðinga sína. Þegar slík orð eru látin falla er erfitt að „grípa til varna“ segir sviðsstjórinn.

Örn Bárður Jónsson, prestur og einn helsti talsmaður Guðs á Íslandi, vísar 15 ára barni sem skrifaði athugasemd á bloggsíðu prestsins á geðdeild Landspítalans. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Örn Bárður sýnir fólki sem leyfir sér að vera ósammála skoðunum hans rakinn dónaskap og óvirðingu.

Örn Bárður verður þó aldrei rekinn. Fær ekki einu sinni áminningu. Líklegast fær hann bara „high five“ frá Biskupsstofu fyrir að tækla syndugar gagnrýnisraddir.

Samhengi hlutanna: Ég er ríkur
Ég er miklu ríkari en Finnur Ingólfs og Jón Ásgeir. Það er auðvelt að útskýra ef við ímyndum okkur að ef ég fengi allar tölur réttar í Víkingalottói næsta miðvikudag. Þá gæti ég unnið tvo milljarða króna. Þá væri ég heppinn. Ég gæti keypt mér flott einbýlishús með sundlaug, hætt að vinna, borgað upp skuldir mínar* og í raun skuldir allra í minni nánustu fjölskyldu. Ég gæti gefið tugi milljóna í hjálparstarf og ferðast svo um heiminn. Í stuttu máli þyrfti ég ekki að hafa áhyggjur að fjármálum svo lengi sem ég lifi**.

En ef Finnur Ingólfsson myndi vinna væri hann ekki eins heppinn. Hann gæti aðeins greitt helming af því sem einkafélag hans FS7 skuldar. Helming! Og þá á hann eftir að borga yfirdráttinn.

Og Jón Ásgeir. Hann gæti greitt heil 4% af þeim 50 milljörðum sem félag hans Gaumur ábyrgist vegna skuldar við Arion banka. Lottópotturinn þyrfti að vera 26 sinnum stærri til að Jón Ásgeir gæti haft það jafn gott og ég.

Stundum er gott að hafa í huga að ekki eru allir jafn góðum málum og ég.

*Ég skulda Lánasjóði íslenskra námsmanna og er ekki vongóður um að sú skuld verði felld niður.

**Hér geri ég ráð fyrir því að ég verði ekki mikið eldri en 150 ára.

Óskaði formaður Flokksins eftir ritskoðun?
Nú hefur Hreinn Loftsson, sem er aðaleigandi DV, fullyrt í eigin fjölmiðli að Bjarni Ben, formaður Flokksins, hafi óskað eftir ritskoðun um mál sem tengjast honum. Bjarni neitar þessu eins og búast mátti við. Hann viðurkennir þó að hafa hringt í eiganda DV til að kvarta yfir blaðamanni blaðsins.

Þar sem Bjarni á að vita að eigendur eiga ekki að skipta sér af ritstjórnum eigin fjölmiðla verður símtal hans eigandans að teljast ansi taktlaust. Algerlega óháð því hvort hann bað formlega um ritskoðun eða ekki.

Hvað ef símtalið hefði þróast eins og neðangreint samtal? Hefði Bjarni sagt nei hefði Hreinn boðist til að hafa áhrif á fréttaflutning DV?

Áður óbirt (og skáldað) samtal Bjarna Ben og Hreins Loftssonar:

Bjarni Ben (BB): Sæll félagi Hreinn, hvað er að frétta?

Hreinn Loftsson (HL): Blessaður, allt ljómandi takk.

BB: Já, einmitt, ha. Jæja já mér var eitthvað hugsað til þín í matarboði um daginn. Manstu þegar þú varst í stjórn Heimdallar?

HL: Já auðvitað í kringum 75 til 77 ef ég man rétt. Góðir tíma.

BB: Já, ég sem var bara í stjórn Hugins í Garðabænum og nú orðinn formaður Flokksins, og þú bara blaðabransanum, haha. Nei ég segi nú bara svona.

HL: Aha. Hmm. Var það eitthvað sérstakt annars?

BB: Tja, já sko. Djöfull er ég ósáttur við suma blaðamenn á DV!

HL: Nú?

BB: Æji já þeir eru alltaf að rifja upp einhverjar neyðarlegar fjárfestingar sem ég tók þátt í með Vafningi í útlöndum. Leiðindamál sem ég bar nú enga sérstaka ábyrgð á.

HL: Ég skil.

BB: Já, ég vildi bara láta þig vita af því að mér þykja skrifin á DV um þetta mál óvönduð og vinnubrögðin í raun óásættanleg.

HL: Ok. Heyrði á ég bara ekki að tala við ritstjórann og biðja hann um að tóna þessa umræðu aðeins niður?

BB: Ha? Jú það væri vel þegið félagi. Takk.

HL: Áfram Heimdallur!

BB: Haha, Heimdallur er bara fyrir einhverja fátæklinga. Huginn rúlar!  Sjáumst félagi, takk fyrir.

HL: Haha. No problem. Heimdallur best. Bless!

Detox læknar óttast að vera drepnir af lyfjafyrirtækjum
Jónína Benediktsdóttir hefur loksins gefið trúanlega útskýringu á því hvers vegna ekki hafa verið birtar neinar fræðilegar rannsóknir um gagnsemi detox meðferðar. Ástæðan er ótti detoxlækna við útsendara lyfjafyrirtækja.

„Pólsku læknarnir sem rannsaka detox hafa báðir sagt við mig að þær þori ekki að birta nokkuð um detoxið af ótta við að vera drepnar af lyfjafyrirtækjunum.“ [leturbreytingar SHG] -  Þetta segir Jónína Ben í faglegri umræðu um detox á netinu (en ekki hvar?).

Hér er augljóslega um stórfrétt að ræða sem ég treysti að íslenskir blaðamenn skoði ofan í kjölinn.  Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum af vefsíðu Detox á Íslandi skilar detox meðferðin undraverðum árangri. Þannig hafa skjólstæðingar Jónínu losnað við þunglyndi, kvíða, vefjagigt, liðagigt, sýkingar, háan blóðþrýsting, exem, sykursýki og einn hefur jafnvel losnað við einkenni MS (Multiple sclerose).  Detox virðist því næstum því vera álíka öflug meðferð og Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, Bowen tækni, hómópatía og lithimnufræði.

Vandinn er að hingað til hafa engar rannsóknir sýnt fram á þessi byltingarkenndu áhrif detox meðferðar. Gagnsemisupplýsingarnar eru komnar frá skjólstæðingum Jónínu sem dásama meðferðina með „vitnisburði“* sínum.  En nú er semsagt komið kjörið tækifæri til að breyta þessu. Íslensk stjórnvöld geta nú veitt detoxlæknunum pólitískt hæli hér á landi svo þeir geti birt rannsóknir sínar óáreittir. Ég get hugsað mér fátt betra fyrir ímynd Íslands en að veita tveim verðandi nóbelsverðlaunahöfum í læknisfræði öruggt skjól.

*Skemmtileg tilviljun að orðið „vitnisburður“ er einatt notað á trúarstöðinni Omega þar sem hinir trúuðu útskýra hvernig þeir hafa læknast með hjálp Jesú*.

Sjá nánar:

Hvers vegna EKKI detox! (eftir Svan Sigurbjörnsson lækni)

Ég á bara Diet Coke, það er nóg…
Ég er á því að Jón Ásgeir sé efni í ágætis textasmið, svo hefur hann auðvitað poppstjörnulookið. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var hann spurður að því hver fjárhagsleg staða hans væri.

Svarið var klassískt: „Ég á fyrir Diet Coke, það er nóg“.

Minnir óneitanlega á textann í laginu Prinsessan mín með Buff:

[Breytingar mínar og Jóns Ásgeirs]

Ég á enga spariskó, engan lúxusjeppa.

Ég á bara Diet Coke, það er nóg.

Ég á enga spariskó, enga einkaþotu

Ég á bara Diet Coke, það er nóg

….það er nóg

Á fullu í útrásinni, hann pabbi þinn er kóngur.

Hann var í réttum flokki þegar hann var ungur.

Ég á enga spariskó, ekkert fótboltafélag.

Ég á bara Diet Coke, það er nóg

Ég á enga spariskó, enga einkaeyju

Ég á bara Diet Coke, það er nóg

Ég á bara Diet Cooooooke….það er nóg

….það er nóg

….það er nóg

….það er nóg

….það er nóg

Handbolti er undarleg íþrótt
Fyrir nokkrum árum datt ég inn á sjónvarpsþátt sem kallaðist að mig minnir Weird sports. Þar var fjallað um undarlegar íþróttir eins og kanínuhlaup, froskafitness og auðvitað handbolta. Ég man að þáttastjórnandinn átti varla orð yfir hvað handbolti væri undarleg íþrótt og talaði greinilega þannig að hann var viss um að enginn sinna áhorfenda hefði áður heyrt um þennan stórfurðulega leik.

Handbolti er ekki eins „stór“ íþrótt út í heimi og Íslendingar halda. Það breytir því ekki að það hefur verið frábært að fylgjast með strákunum í þessari keppni. Ég hef sjaldan skemmt mér eins mikið við að horfa á íþróttaleik. Áfram Ísland!

Til gamans langar mig að taka saman nokkur dæmi af umfjöllun um handbolta á vefnum:

Top 5…Weirdest Olympic ‘Sports’

3 – Handball

When we originally watched a highlights package of handball, it actually looked like a lot of fun. And then we watched an entire game.

Weird? Oh yes. There doesn’t seem to be any structure to it – the players run down one end, try to throw the ball into the goal, and then run back down to defend, without even bothering to try and get the ball off the opposition. It’s just so (too..?) chaotic.

If anyone can explain the rules of handball to us, please do – but until then, handball’s staying in the weird column.

Handball…wtf?

Ok, so I went out and partied a bit last night and got in around 4:00 Salt Lake time. I stumble into my room, turn on the TV and crawl into bed, where I begin to doze off. But before I do, I notice this weird sport on my television screen. It’s the Olympics and it’s a bunch of guys running down an inside court throwing a small ball at each other. Like soccer, but with a smaller ball and the use of hands.

Then I fell asleep.

When I awoke, it was the first thing that I thought of and couldn’t even begin to tell you what sport it was. So I did some searching and it’s Handball. When the hell did handball become an Olympic sport?

Yesterday afternoon i turned on the olympics and they were showing handball. It is just like soccer, but you use your hands to pass and shot. Mixture really of soccer and water polo. I only saw women playing it so there may not be a mens side of this sport, but if there is this may be the average mans shot at making the olympics. I mean, I saw no athletic prowess involved in this sport other than running and throwing. It seems like anybody in average shape could play this and „excel“ at it. Even the fat kid can play in goal.

This was such a weird sport to watch. I wonder if this is even around in the U.S.

Did anyone see this? What other sports in the Olympics have you seen that the average man could excel in or are there any other bizarre sports out there?

Á Yahoo answers er spurt:

Handball at the olympic

„Wtf [What the fuck] is handball?“

„Yeah Im with you, I dont know what it is either, dont worry handball is a very rare sport like no 1 plays it so dont worry if you dont know what it is.“

„I agree What the Hell is handball?“

„I played it in gym and thought my teacher made it up for fun lol. I was goalie  “

Umfjöllun um undarlegar íþróttir á Ólympíuleikunum.

That’s the Olympic spirit

My final sport – handball – is hugely popular, but only in places like Scandinavia, Croatia and Germany (where it is the second biggest sport after football). Having joined the Olympia Handball Club, an east London team, for a training session, I’m not sure we’re missing out on all that much. The game is fast and fairly skilful, but it’s essentially a combination of basketball and seven-a-side football – you pass or dribble the ball with your hands and then attempt to throw it in the goal – and less interesting than either. It’s the kind of thing you play in PE at school as a warm-up.

What the hell is this team handball thing?!

it looks like soccer. only with hands. and they can bounce a ball, like basketball byt they can’t dribble.  and there’s a goalie, and a goal area that looks like it takes up one fourth of the indoor field.  indoors!  and the ball is like a volleyball.

what is this sport?  who plays this sport?

this sport is weird.  this sport looks stupid.  this looks like some kid invented it one day at P.E. where they had a free period

dude, it’s like team soccer and dodgeball…

Ég er því ekki viss um að velgengni íslenska handknattleiksliðsins sé efni í alþjóðlega stórfrétt. En vissulega er gaman hjá okkur Íslendingum.

Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot
Eftir: Al Franken

Umfjöllun:

Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot er einhver fyndnasta bók sem ég hef lesið um ævina. Í henni tekur Al Franken, vinstrisinnaður Demókrati sem er einna þekktastur fyrir að hafa verið hluti af Saturday Night Live genginu um tíma, bandaríska hægrimenn fyrir og gerir stanslaust grín að þeim. Meðal þeirra sem fá að finna fyrir eitruðum penna hans eru þingmenn, fjölmiðlamenn og forystumenn hagsmunahópa eins og Christian Coalition. Það er fátt sem Franken finnur þeim ekki til vansa og enn þá færra sem honum tekst ekki að gera grín að, enda Franken með fyndnari mönnum sem ég man eftir í augnablikinu.

Helsta “söguhetja” bókarinnar er útvarpsmaðurinn (og fyrrum sjónvarpsmaðurinn) Rush Limbaugh, stór maður og hrokafullur sem lætur móðan mása í útvarpsþáttum og hefur að sögn furðu mikil áhrif á furðu margt fólk sem hlustar á þættina hans. Þó fer fjarri að hann sé eina “söguhetjan” og eins og áður segir er mikill fjöldi frægra bandarískra hægrimanna tekinn fyrir og hæddur. Það er kostur að þekkja nokkuð vel til bandarískra stjórnmálamanna en þeir sem fylgjast með fréttum ættu að kannast við það sem um er rætt.

Þrátt fyrir að Rush Limbaugh is a Big, Fat Idiot sé skrifuð á gamansaman hátt fer fjarri að hún sé ómerkileg, enda tekst Franken á við ýmis vandamál sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir.

Niðurstaðan eftir lestur bókarinnar er að það er vandfundin fyndnari bók.

Að horfa ekki á konu í heitum potti
Femínistum misbýður víst ný auglýsing frá líkamsræktarstöðinni Hreyfingu, og segja þær auglýsinguna vera „afbragðsdæmi um staðalmyndir kynjanna“. Í þessari hneykslanlegu auglýsingu sést maður sitja í heitum potti horfa á konu fara ofan í sama pott.  Oj bara. Hér verður augljóslega eitthvað að banna.

Ég verð að viðurkenna að ég hef stundum lent í þessari vandræðalegu aðstöðu. Ég hef setið í heitum potti þegar kona í bikiníi hefur skyndilega birst, án nokkurrar viðvörunar, og gengið í átt að pottinum. Þegar þetta hefur komið fyrir hef ég yfirleitt lokað strax augunum og kallað kröftuglega „vík burt Satan“. Þetta virkar oftast því þær hlaupa allar í burtu. Nema kærasta mín, hún er orðin vön þessum viðbrögðum – Guð blessi hana.

Kannski er kattargreyið með smitandi sjúkdóm?
Á Eyjunni.is er vitnað í frétt um kött sem að „veit“ hvenær fólk á hjúkrunarheimili mun deyja.

„Ef hann hjúfrar sig við rúm sjúklings á hjúkrunarheimilinu þar sem hann hefur búið síðan hann var kettlingur er sá sjúklingur venjulega dáinn innan fjögurra klukkutíma.”

Væri ekki skynsamlegra að fjarlægja kvikindið af hjúkrunarheimilinu en að dást að meintum skyggnigáfum hans? Kattargreyið þjáist örugglega af bráðsmitandi sjúkdómi.

Sjá nánar:

Kötturinn Óskar veit hvenær sjúklingar eru að deyja

(eyjan.is)