Skoðun » Gagnrýnin hugsun

Skottulækningar í boði Reykjavíkurborgar?
Ég rakst á undarlega frétt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: „Ókeypis Bowen meðferð í Vesturbæjarlaug“. Í fréttinni kemur fram að Halla Himintungl*, „menntaður Bowentæknifræðingur“, ætli að bjóða upp á ókeypis Bowen meðferð fyrir gesti Veturbæjarlaugar. Í ítarefni sem fylgir fréttinni segir svo að Bowen tækni „virki vel“ á fólk sem „þjáist af bakverkjum, brjósklosi, mígreni, hnémeiðslum, liðagigt, háls- og herðaverkjum, astma, kvíða, ofvirkni, þunglyndi og svefnleysi.“ Enn fremur eru börn, unglingar og ófrískar konur sérstaklega hvattar til að nýta sér meðferðina.

Vandinn er sá að engar rannsóknir hafa verið birtar í ritrýndum fræðiritum sem sýna fram á þennan stórkostlega lækningarmátt Bowen tækninnar. Þetta er auðvitað ekki tekið fram í umræddri frétt. Enda kannski óþarfi?

Það er gagnrýnivert að skottulækningar séu auglýstar og kynntar með þessum hætti á opinberum vef Reykjavíkurborgar. Sérstaklega þegar börn og unglingar eru hvattir til að nýta sér þessa meðferð. Sem borgari hlýtur maður að geta gert ráð fyrir því að meðferð í boði borgarinnar sé byggð á einhverju öðru en sandi.

* Ég er ekki að grínast. Það skal tekið fram að Halla Himintungl er líka sérfræðingur í tarrotlestri, stjörnuspeki, reiki, tunglgöldrum og fleiri ósannreyndum aðferðum.

Tengt efni:

Óhefðbundinn fréttaflutningur (um gagnrýnislausa umfjöllun fjölmiðla um Bowen tækni)

Um ristilskolanir og geðsjúka gagnrýnendur
„Þeir sem ástunda náttúrulækningar hafa sérstakt dálæti á að nota stólpípur til að losa eitur úr líkamanum. Svo virðist sem þeir telji að það sé „náttúrlegt“ að smeygja slöngu upp endaþarm og spúla hann með miklu magni af vatni. Um leið telja hinir sömu að það sé eitthvað „ónáttúruleg“ við það að taka inn lyf, sem í mörgum tilfellum eru unnin úr efnum sem finnast í náttúrunni.„

Þetta segir meðal annars í bók Martin Gardner „Fads & Fallacies in the name of science“ (á íslensku gæti þetta útleggst: „Tískubylgjur og rökvillur í nafni vísindanna“) sem kom út árið 1952, eða fyrir tæpum 60 árum síðan.

Í ljósi umræðunnar síðustu daga um Detox Jónínu Ben er áhugavert að sjá hvað lítið hefur breyst frá því þessi áhugaverða bók kom út. Fyrir meira en hálfri öld voru náttúrulæknar sannfærðir um að ristilskolun væri langbesta leiðin til að lækna fólk af ýmsum kvillum eins og sýfilis, botnlangabólgu, og berklum.  Sögðu þeir um leið að lyfin gerðu oftar en ekki illt verra.

Bestu vopnin gegn allri vanheilsu voru stólpípa (ristilskolun), eimböð, sólböð, heitir bakstrar, innrautt ljós, titringur og ýmislegt fleira.  Lyf voru sögð að mestu skaðleg og að þau væru aðeins seld vegna mikils þrýstings frá „lyfjarisum“ og „læknasamtökum“.

Þá voru ekki til nein haldbær vísindaleg gögn sem sýndu fram á gagnsemi ristilskolunar. Ekki frekar en nú.

Þrátt fyrir þennan undarlega skort á vísindalegum rannsóknum heldur Jónína Ben því ennþá fram að ristilskolun sé allra meina bót og kallar meðferðina „læknismeðferð“.  Enginn gögn eru lögð fram en þess í stað er umræðan kaffærð með reynslusögum um gagnsemi ristilskoðunar, fúkyrðum og persónuárásum.

Á vefsíðu detox.is má þannig lesa „vitnisburð“ fólks sem telur sig hafa læknast af MS-sjúkdómnum, háum blóðþrýstingi, þunglyndi, sykursýki, exemi,  „óheilbrigðum“ ristli og mörgu fleiru. Hvergi kemur fram á vefsíðu Detox að taka beri sjálfsgreiningar með miklum fyrirvara. Þvert á móti eru reynslusögurnar kjarninn í málflutningi Jónínu Ben. Engin vísindaleg gögn, engar sannreyndar aðferðir kynntar heldur er áherslan lögð á „vitnisburð“ að hætti trúfélaga. Enda kemur í ljós að detox meðferðin er hálfgerð kraftaverkasamkoma ef marka má frásagnir skjólstæðinga Jónínu:

„Maður sá kraftaverkin gerast, blóðþrýstings- ofnæmis- og blófitulyf [sic] fengu m.a. að fjúka og ekki virtist neinum verða meint af, þvert á móti.“ – Tekið af detox.is

Um geðsjúka, þröngsýna og vanhæfa gagnrýnendur sem leggja Jónínu Ben í einelti

Nokkrir einstaklingar, þar á meðal undirritaður, hafa í gegnum tíðina fjallað um gagnrýnisleysið sem virðist yfirtaka fjölmiðla þegar kemur að umfjöllun um „óhefðbundnar“ lækningar.* Þegar kemur að gagnrýni á Detox Jónínu Ben hefur Svanur Sigurbjörnsson, læknir, verið hvað duglegastur. Hefur hann fjallað um ristilskolun af bæði yfirvegun og þekkingu. Rökin sem hann hefur beitt í umræðunni standa óhögguð. Eins og oft vill verða þegar fólk er rökþrota þá grípur Jónína Ben til persónuárása og skítkasts.

Ég lýk umfjöllun minni með því að vitana beint til orða Jónínu Ben. Viðbrögð hennar við gagnrýni segja allt sem segja þarf.

Bréf til landlæknis dagsett 9. september  2009:

„Matthías [Halldórsson - þáverandi landlæknir] þröngsýni þín segir mér að þú sért starfi þínu ekki vaxinn.“

Bréf til landlæknis dagsett 15. desember 2009:

„Mín skoðun, og fleiri, er að Svanur [Sigurbjörnsson] þarfnist geðrannsóknar við.“

„Ég legg til að þú kynnir þér hvað ég er að gera hér áður en þú eyðir orku þinni í svona bull.

Sjálf hef ég boðist til þess að útskýra fyrir þér þessa meðferð. Þú [Matthías Halldórsson - þáverandi Landlæknir] hefur ekki sýnt því nokkurn áhuga og ert að mínu viti ekki starfi þínu vaxinn. Endar ertu að hætta og það að níða það sem vel er gert í heilsugeiranum verður örugglega þitt síðasta verk !“

„Ef þú [Matthías Halldórsson] og þetta fólk heldur áfram þessu einelti á hendur mér, starfsfólki mínu og fyrirtæki mun ég kæra þig og þau til dómstóla fyrir ítrekaðan atvinnuróg. „

Ofstækisfullur málflutningur á Facebook

Jónína Ben fjallar einnig af stakri yfirvegun um Detox og gagnrýnendur á Facebook síðu sinni sem er öllum opin:

13. maí 2010 (tengist ekki detox en passar ágætlega inn í umræðuna)

„“Sannleikurinn mun gera yður frjálsa“ Joh. 8:32

Lifum lífi okkar samkvæmt því og leysum okkur sjálf og aðra úr eymd lýginnar og blekkingarinnar.“

31. maí 2010

„Getur þú ekki sofið á nóttunni ? Þarftu svefnlyf ? Detoxmeðfeðrin kemur svefninum í lag. Þú þarft að hreinsa þig í 14 daga.“

„Detoxmeðferðin vinnur gegn þunglyndi. Bóka sig núna !! 5128040.“

3. júní 2010

„Detox er málið og heilbrigði og hamingja fylgja fast á eftir. Ég átti ekki krónu með gati þegar ég fór fyrst í Detox.“

9. júní 2010

„Síminn minn er xxx xxx xxx xxxx Ef það er eitthvað sem ykkur liggur á hjarta og viljið ekki lyf við því  “

10. júní 2010

„Ég hvet læknasamtökin til þess að fara yfir öfgaskrif, níðskrif, blekkingarleik, lyfjasýki, trú-leysiisofstæki [sic], tengsl við Hreiðar Má, áráttuhegðun og lygar þessa manns. Ég og fleiri höfum fengið nóg af skrifum hans sem einkennast af ofsóknaræði. Hann er lyflæknir og matar landlækni á þvælu. Tékkið á tengslum hans við …þá sem ég hef verið að gagnrýna í viðskiptalífinu og þá sér fólk hvað liggur að baki þessu ef það er þá ekki hrein geðveila. Ég hef fengið kvartanir undan honum ítrekað.“

11. júní 2010

„Má borða hollan mat ? Vara að hugsa það áðan hvort að við íþróttakennarar ættum að banna Svani að kenna Crossfit ? Bara að hugsa upphátt.“

12. júní 2010

„Þegar ég horfði upp sá ég bottninn [sic]…………..en Guð leiddi mig í detox.“

„Það er ekki hægt að rökræða um Detoxmeðferðina frekar en um áhrif þess að vera á lyfjum.“

13. júní 2010

„20% afsláttur á ristilskolun ef þið bókið á morgun. Enginn notar sömu slönguna, allir fá sótthreinsun. Enginn sýkist. Landlæknir Matthías froðufellir og Svair [sic] geta ekki sungið. Bókið ykkur 5128040“

„Ristilskolun losaði mig við „vefjagigt“ sjúkdómur sem að setur hundruðir á örorkubætur án þess að vísindalegar ástæður liggja að baki.“

Sjá einnig:

Greinargerð vegna svokallaðrar detoxmeðferðar [Landlæknir]

Lyf eða ekki lyf? [Svanur Sigurbjörnsson]

Jónína Ben og Matthías Halldórsson fyrrverandi landlæknir á Bylgjunni 14. júní 2010

Jónína Ben og Detoxið gagnrýnd í kvöldfréttum [Kristinn Theódórsson]

* Nokkrar greinar sem tengjast óhefðbundnum lækningum og gagnrýnisleysi fjölmiðla

Detox læknar óttast að vera drepnir af lyfjafyrirtækjum

Ó nei, tunglið er fullt (umfjöllun um staðfestingahneigð)

Óhefðbundinn fréttaflutningur

Nýöldin á Stöð 2 – Ábyrgð fjölmiðlamanna

Vörumst skottulækningar

Opinberi meðferðarfulltrúinn Jesús

Skipholtsapótek selur snákaolíu

Jónína Ben og  Detoxið gagnrýnd í kvöldfréttum

Detox læknar óttast að vera drepnir af lyfjafyrirtækjum
Jónína Benediktsdóttir hefur loksins gefið trúanlega útskýringu á því hvers vegna ekki hafa verið birtar neinar fræðilegar rannsóknir um gagnsemi detox meðferðar. Ástæðan er ótti detoxlækna við útsendara lyfjafyrirtækja.

„Pólsku læknarnir sem rannsaka detox hafa báðir sagt við mig að þær þori ekki að birta nokkuð um detoxið af ótta við að vera drepnar af lyfjafyrirtækjunum.“ [leturbreytingar SHG] -  Þetta segir Jónína Ben í faglegri umræðu um detox á netinu (en ekki hvar?).

Hér er augljóslega um stórfrétt að ræða sem ég treysti að íslenskir blaðamenn skoði ofan í kjölinn.  Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum af vefsíðu Detox á Íslandi skilar detox meðferðin undraverðum árangri. Þannig hafa skjólstæðingar Jónínu losnað við þunglyndi, kvíða, vefjagigt, liðagigt, sýkingar, háan blóðþrýsting, exem, sykursýki og einn hefur jafnvel losnað við einkenni MS (Multiple sclerose).  Detox virðist því næstum því vera álíka öflug meðferð og Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, Bowen tækni, hómópatía og lithimnufræði.

Vandinn er að hingað til hafa engar rannsóknir sýnt fram á þessi byltingarkenndu áhrif detox meðferðar. Gagnsemisupplýsingarnar eru komnar frá skjólstæðingum Jónínu sem dásama meðferðina með „vitnisburði“* sínum.  En nú er semsagt komið kjörið tækifæri til að breyta þessu. Íslensk stjórnvöld geta nú veitt detoxlæknunum pólitískt hæli hér á landi svo þeir geti birt rannsóknir sínar óáreittir. Ég get hugsað mér fátt betra fyrir ímynd Íslands en að veita tveim verðandi nóbelsverðlaunahöfum í læknisfræði öruggt skjól.

*Skemmtileg tilviljun að orðið „vitnisburður“ er einatt notað á trúarstöðinni Omega þar sem hinir trúuðu útskýra hvernig þeir hafa læknast með hjálp Jesú*.

Sjá nánar:

Hvers vegna EKKI detox! (eftir Svan Sigurbjörnsson lækni)

Áhugavert spjall um detox
Það er ákveðið detox æði á Íslandi í dag enda hefur sú meðferð fengið gríðarlega mikla umræðu undanfarið. Í nánast öllum tilfellum hefur verið rætt við fólk sem hefur farið í detox og er afskaplega ánægt. Minna hefur verið fjallað gagnrýnið um detox meðferð enda virðast fjölmiðlamenn almennt gera ráð fyrir því að þetta sé allra meina bót. Á vefsíðu detox er enda talað um að ristilskolun geti læknað ólíklegustu kvilla eins og gigt, psoriasis, astma, ofnæmi, há- og lágþrýsting, höfuðverk, nikótín- áfengis- og lyfjaeitrun svo eitthvað sé nefnt.

En eru til einhverjar vísindalegar rannsóknir sem staðfesta gagnsemi þessarar undrameðferðar? Stutta svarið er nei.

Í Vísindaþættinum á Útvarpi Sögu var tekið viðtal við Svan Sigurbjörnsson lækni, félaga minn, þar sem hann fjallar um nauðsyn þess að allar meðferðir gangist undir vísindalegar próanir. Hann bendir réttilega á að fátt bendi til þess að detox skili þeim árangri sem lofað er og því sé vægast sagt vafasamt að auglýsa meðferðina sem töfralausn. Ég hvet alla til að hlusta á þetta fróðlega viðtal.

Sjá nánar:

Viðtal við Svan Sigurbjörnsson, lækni, í Vísindaþættinum

Grein Svans um detox

Vefsíða Vísindaþáttarins

Vefsíða Detox á Íslandi

Hver skapaði sýkla?
Margir vilja nú að reistur verði minnisvarði um Helga Hóseasson á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann stóð oft og mótmælti. Ég styð þá kröfu, enda hafði Helgi töluverð áhrif á íslenskt samfélag. Einhverjir hafa talað um að reisa styttu eða eitthvað álíka. Það er rugl og örugglega eitthvað sem Helgi hefði verið ósáttur við. Ég vil frekar að minnisvarðinn verði í formi skiltis eða skilta með helstu slagorðum Helga. Til dæmis „Hver skapaði sýkla?“.

The Demon-Haunted World
The Demon-Haunted World  – Science as a Candle in the Dark

Eftir: Carl Sagan

Umfjöllun:

Í The Demon-Haunted World fjallar Sagan um gildi gagnrýnnar hugsunar og skaðsemi þess að trúa einhverju í blindni. Sagan hrekur listilega vel hér ýmsar kenningar sem byggja á rökleysu og trú. Þessi bók ætti að vera skyldulesning í skólum.

Nokkrar skemmtilegar (eða öllu heldur skelfilegar) staðreyndir úr The Demon-Haunted World:

Í skoðanakönnunum kemur fram að rúmlega helmingur Bandaríkjamanna trúa á tilvist djöfulsins.

Aðeins um 9% Bandaríkjamanna viðurkenna þá niðurstöðu vísindamanna að maðurinn og önnur dýr hafi þróast á löngum tíma án afskipta einhverrar yfirnáttúrulegrar veru.

67% fullorðinna Bandaríkjamanna vita ekki að síðasta risaeðlan dó áður en að fyrsti maðurinn varð til.

75% vita ekki að sýklalyf drepa aðeins bakteríur en ekki veirur.

57% vita ekki að rafeindir eru minni en atóm.

42% vita ekki hvar Japan er.

38% hafa ekki hugmynd um hvað átt er við með hugtakinu helförin (holocaust).

Helmingur Bandaríkjamanna hefur ekki hugmynd um að Jörðin ferðast í kringum Sólina og að það ferðalag tekur hana eitt ár!.

Gaman væri að vita hvernig Íslendingar myndu svara þessum spurningum.

Það kemur væntanlega ekki á óvart að Carl Sagan hvetur til þess að auknum fjármunum verði varið til menntunar og að aukin áhersla verði lögð á kennslu í vísindum og rökrænni hugsun í skólum.

Think to Win
Eftir: S. Cannavo

Umfjöllun:

Gagnleg og fræðandi bók fyrir þá sem vilja auka færni sína í rökræðum og rökhugsun. Því miður er kennsla í rökfræði ekki hluti af almennu námi í skólum hér á landi. Það er sorglegt því fátt er eins mikilvægt og að geta vegið og metið upplýsingar.

Ólíkt því sem margir halda þá er rökhugsun ekki meðfæddur hæfileiki heldur lærður. Auðvitað á fólk misauðvelt með að tileinka sér rökhugsun en það sama má segja um lestur. Við erum fædd misvel undir það búin að læra að lesa en öll höfum við augljóslega gott af því að fá kennslu og æfingu í lestri. Það sama á við um rökhugsun. Þessi bók er vel skrifuð og er ætluð almenningi. Lesandi þarf ekki að vita neitt um heimspeki til að geta skilið þessa bók. Fyrir utan það að vera gagnleg er þessi bók mjög skemmtilegt aflestrar.

Skipholtsapótek selur snákaolíu
Skipholtsapótek auglýsir nú reglulega að það selji öll hómópatíulyf í sínum verslunum.  Það hlýtur að teljast siðlaust þegar apótek ákveða að græða á „meðferð“ sem vitað er að er algerlega gagnslaus.  Ég er afskaplega hræddur um að stór hluti viðskiptavina apóteka geri ráð fyrir því að „lyf“ sem seld eru í apótekum hafi raunverulega verkun. Að sama skapi er ég nánast alveg viss um að starfsmenn apótekanna láti viðskiptavini sína ekki vita af því hómópatíulyf séu gagnslaus.

Þegar snákaolía er seld í apótekum er verið að blekkja veikt fólk vísvitandi. Eigendur þessara apóteka ættu því að skammast sín.

Sjá nánar:

Homeopathy: The Ultimate Fake

Vörumst skottulækningar
Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur, ritar áhugaverða grein í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag þar sem hann gagnrýnir svokallaða „höfuðbeina – og spjaldhryggsjöfnun“ (H.S. jöfnun) sem hann segir réttilega vera skottulækningar. Það er því miður sjaldgæft að menntaðir heilbrigðisstarfsmenn gagnrýni „óhefðbundnar lækningar“ og því fagna ég framtaki Péturs.  Sérstaklega í ljósi þess að fjölmiðlar leyfa sér nánast aldrei að fjalla gagnrýnið um óhefðbundnar meðferðir.

Margir virðast vera þeirrar skoðunar að það sé rangt að gagnrýna óhefðbundnar lækningar.  Fólk eigi að hafa val og það sé vont að svipta fólk voninni.  Í grein um H.S. jöfnun á doktor.is má til að mynda lesa:

„Verum því fordómalaus og opin og vinnum ávallt í kærleikanum. Tökum aldrei vonina frá fólki því að margar leiðir eru í boði til að bæta heilsubrest okkar. Kynnum okkur vel það sem í boði er og verum óhrædd að vísa hvert á annað og síðast en ekki síst, höfum hugfast að ,,Gjöful hendi er fögur hvaðan sem hún kemur“.“

Rökum sem þessum hafna ég alfarið. Það er þvert á móti rangt að fullyrða að ákveðin meðferð skili árangri þegar fáar eða jafnvel engar rannsóknir benda til þess. Þeir sem lofa upp í ermina á sér með þessum hætti eru að misnota sér aðstöðu sjúklinga og aðstandendur þeirra. Vekja upp falskar vonir og verða jafnvel til þess að sjúklingar leita sér ekki sannreyndrar meðferðar.

Töframeðferðir sem lækna nánast allt

Það sem einkennir oft skottulækningar eru órökstuddar fullyrðingar um að ákveðin meðferð eða einstök lyf lækni aragrúa af kvillum. Töframeðferð læknar næstum því allt. Þannig kemur fram í grein skrifaðri af Margréti Árnadóttur hjúkrunarfræðingi að H.S. jöfnun geti „komið að gagni við nánast hvaða aðstæður sem er.“ Eftirfarandi kvilla má víst bæta með  H.S. jöfnun:

„Höfuðverkur, Mígren, Tíðaverkir, Asthma, Sinusitis, Bronchitis, Blöðrubólga, Frosin öxl, Liðagigt, Ischias, Langvinn tognun á ökkla, Vandamál í liðum, RSI, Meltingarvandamál, Whiplash skaðar, Hryggskekkjur,

Bakverkir, Hálsverkir, Viðvarandi sársauki hvar sem er í líkamanum, Spenna, Kvíði, Svefnleysi, Sjóntruflanir,

Þrekleysi, Vandamál á meðgöngu og eftir meðgöngu, Þunglyndi, Fylgikvillar skurðaðgerðar, Samgróningar,

Ungbarnakveisa, Pyloric Stenosis, Vandamál tengd fæðugjöf ungbarna, Miðeyrabólgur, Vökvi í eyrum, Tonsillitis, ENT vandamál, Samþjöppun á höfuðkúpu vegna erfiðrar fæðingar ásamt öllum þeim truflunum sem því getur fylgt, Námserfiðleikar, Lesblinda, Rangeygi, Augnleti, Ofvirkni, Einhverfa, Flogaveiki, Cerebral Palsy, Hegðunarvandamál, Bræðisköst, Þráhyggjuhegðun, Tannvandamál og TMJ vandamál,

Höfuðskaðar og hin hárfínu áhrif þeirra á persónuleika og andlegt ástand, Heilahimnubólga og langvinnir fylgikvillar hennar, Post Viral Syndrome, ME, Glandular Fever, Síþreyta, Fylgikvillar hvaða langvinnra veikinda eða veiklandi sjúkdóms sem er.“

Það munar ekki um það. Töframeðferðin læknar þunglyndi, vökva í eyrum, námserfiðleika, rangeygi, ofvirkni og jafnvel einhverfu! Gott ef satt væri. Staðreyndin er sú að rannsóknir styðja ekki þessar fullyrðingar. Þannig kemur fram í ítarlegri samantekt líffræðingsins Steve E. Hartman og lífeðlisfræðingsins James M. Norton um gildi H.S. jöfnunar að vísindarannsóknir bendi eindregið til þess að H.S. jöfnun hafi enga virkni. Í stuttu máli eru ekki til neinar vísindalegar rannsóknir sem styðja fullyrðingar um lækningarmátt H.S. jöfnunar.

Kannski hafa vísindamenn rangt fyrir sér. Ef til vill er H.S. jöfnun sú töframeðferð sem H.S. jafnarar halda fram. En þar til vel hannaðar vísindalegar rannsóknir sýna fram á gildi meðferðarinnar hvet ég þá sem málið varðar að leita til læknis eða annarra heilbrigðisstarfsmanna sem beita sannreyndum aðferðum .

Sigurður Hólm Gunnarsson

Varaformaður Siðmenntar og nemandi í Iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri.

Kannski er kattargreyið með smitandi sjúkdóm?
Á Eyjunni.is er vitnað í frétt um kött sem að „veit“ hvenær fólk á hjúkrunarheimili mun deyja.

„Ef hann hjúfrar sig við rúm sjúklings á hjúkrunarheimilinu þar sem hann hefur búið síðan hann var kettlingur er sá sjúklingur venjulega dáinn innan fjögurra klukkutíma.”

Væri ekki skynsamlegra að fjarlægja kvikindið af hjúkrunarheimilinu en að dást að meintum skyggnigáfum hans? Kattargreyið þjáist örugglega af bráðsmitandi sjúkdómi.

Sjá nánar:

Kötturinn Óskar veit hvenær sjúklingar eru að deyja

(eyjan.is)