Skoðun » Einelti

Grimmd – Sögur af einelti
Fór á heimildarmyndina The Bully Project („Grimmd – Sögur af einelti“ samkvæmt íslenskri þýðingu) í kvöld.  Þetta er hin ágætasta mynd sem hafði töluverð áhrif á mig. Ég felldi nokkur tár og fann fyrir reiði sem er svosem ekkert nýtt þegar kemur að umfjöllun um einelti.

Það góða við þessa mynd er að hún vekur athygli á einelti og fær fólk til að hugsa og taka afstöðu. Eins og alltaf þegar viðkvæm mál eru rædd örlar á tilfinningaklámi sem mér er illa við en kannski er það óhjákvæmilegt. Ofbeldi gagnvart börnum á að vekja upp tilfinningar. Það er hræðilegt að vita til þess að börn svipti sig lífi vegna eineltis. Margir eiga bágt með að trúa því að slíkt gerist og telja að alltaf þurfi eitthvað annað að hafa komið upp á. Í mörgum tilfellum er það líklegast raunin en ekki alltaf. Hvaða máli skiptir það svo þó að eineltinu sé aðeins að hluta til að kenna? Ekki neinu. Mörgum líður gríðarlega illa vegna eineltis og því verður að gera eitthvað í því. Sjálfur á ég yndislega fjölskyldu, marga góða kennara og átti gott heimili. Ég íhugaði sjálfsvíg oft. Ég átti mér líka fantasíur um að mæta í skólann með vopn og lúskra á samnemendum mínum. Sem betur fer var ég of hræddur til þess að láta ekki verkin tala.

Það sem ég set einna helst út á The Bully Project er að hún er svolítið bandarísk og á ekki að öllu leyti við íslenskan veruleika. Trúaráhrifin og fordómarnir gagnvart samkynhneigðum eru ekki eins miklir hér (vona ég). Hér er líka ólíklegt að börn skjóti sig eða aðra þar sem lítið er um byssueign.

Þar að auki fannst mér vanta góða umfjöllun um faglegar lausnir á eineltisvandanum. Hvað er hægt að gera til að vinna á einelti annað en að vekja athygli á því? Kannski var markmið myndarinnar fyrst og fremst að vekja athygli á vandanum? Það í sjálfu sér gott.

Um The Bully Project:

http://thebullyproject.com/

Nánari umfjöllun um einelti á skodun.is:

http://skodun.is/einelti/

Heimildarþáttur um einelti settur á netið
Ég ákvað að setja inn heimildarþáttinn um einelti sem ég tók þátt í að gera árið 2002 á netið. Kannski að einhver hafi gagn af því að skoða hann.

Sjá: http://skodun.is/einelti/einelti-helviti-a-jord-myndband/

Mannskemmandi einelti
Mig langar að segja eitthvað en ég veit ekki hvað né hvort það sé viðeigandi. Ég veit þó að einelti er mannskemmandi og það þarf að ræða.

Umfjöllun um einelti á www.skodun.is

Eineltisumræða
Einelti hefur verið töluvert í umræðunni síðustu daga og það er jákvætt. Þetta er þörf umræða. Sífellt fleiri verða meðvitaðri um alvarleika eineltis í skólum, vinnustöðum, inn á heimilum og almennt í samfélaginu. En betur má ef duga skal. Því fagna ég allri umræðu og vitundarvakningu.

Á miðvikudaginn síðasta hélt Mannréttindaskrifstofa málþing  með yfirskriftinni Dagur án eineltis.  Ég komst því miður ekki á það málþing en mér skilst að það hafi heppnast vel. Var þar meðal annars sýnt úr heimildarmynd Viðars Freys Guðmundssonar sem enn er í vinnslu. Vinnuheiti  myndarinnar er Einelti: ofbeldi meðal barna.  Sýnist mér að um metnaðarfulla mynd sé að ræða sem mun án vafa vekja töluvert umtal þegar hún kemur út (vonandi síðar á árinu).

Í dag buðu svo Liðsmenn Jerico, Landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda, upp á stórgóðan fyrirlestur um Einelti á vinnustöðum, heimilum og skólum og sjálfsvíg, forvarnir og sorg. Fyrirlesararnir voru kaþólsku prestarnir Sr. Tony Byrne og systir Kathleen Maguire, en þau hafa lengi unnið með þolendum eineltis ásamt því að hafa sinnt öðru mannúðarstarfi. Ég fór á þennan fyrirlestur og var afskaplega ánægður með hann.  Fyrirlesturinn var bæði skemmtilegur og gagnlegur. Ekki skemmdi fyrir að fyrirlesararnir geisluðu af manngæsku og kærleik.  Ég stefni að því að fjalla betur um fyrirlesturinn síðar.

Svo var einnig í dag fjallað um reynslusögur mínar í DV. Umfjöllunin er byggð á greinum sem ég birti fyrir nokkru hér á Skoðun. Ég veit reyndar ekki hvort ég sé mjög ánægður með fyrirsögnina. Svolítið dramatísk. En svona var þetta samt stundum.

Vegna átaks gegn einelti
Í tilefni þess að Heimili og skóli standa nú fyrir sérstöku átaki gegn einelti langar mig til að deila með ykkur þeirri reynslu sem ég lenti í þegar ég var í grunnskóla. Umræddar reynslusögur voru um tíma til sýnis hér á Skoðun, en af einhverjum ástæðum tók ég þær út aftur. Þessar sögur voru upphaflega settar inn á vefinn þegar ég tók þátt í að framleiða stuttan heimildarþátt um einelti: Einelti – Helvíti á Jörð árið 2003.

Vonandi geta þessar sögur vakið einhverja til umhugsunar:

Eineltisminningar 1: Siggi slef

Eineltisminningar 2: Ég hataði leikfimi

Eineltisminningar 3: Eftirminnileg slagsmál

Eineltisminningar 4: Þegar girt var niður um mig

Eineltisminningar 5: Veggurinn

Nánari umfjöllun um einelti má svo finna hér:

Einelti – www.skodun.is

Um heimildarþáttinn:  Einelti – Helvíti á Jörð

Einelti í grunnskólum kemur okkur öllum við. Einelti getur haft mjög alvarleg og varanleg áhrif á þá sem lenda í því. Þegar foreldrar senda barn sitt í skólann treysta þau því að það sé í öruggu umhverfi. En því miður er það ekki alltaf þannig.

Markmiðið með þessum heimildarþætti er að varpa ljósi á einelti. Hvað veldur því, hvaða áhrif það hefur og hvað hugsanlega er hægt að gera til að draga úr því.

Tekin hafa verið viðtöl við þekkta sem óþekkta Íslendinga sem tengjast einelti á einn eða annan hátt. Fórnarlömb, aðstandendur, sálfræðinga, kennara og marga fleiri.

Höfundar eru Kristbjörn H. Björnsson og Sigurður Hólm Gunnarsson. Þeir sjá um allan undirbúning og framkvæmd þáttarins.

Upptökur og tæknistjórn eru í höndum Björns Ófeigssonar og Sigurðar Pálmasonar hjá 8mm productions.

Það er einlæg von okkar að þessi heimildarþáttur verði til þess að vekja fólk til umhugsunar um alvarlegar afleiðingar eineltis og um nauðsyn þess að öllum ráðum verði beitt til þess að koma í veg fyrir að börn verði fyrir slíkri reynslu.

Sigurður Hólm Gunnarsson (siggi@skodun.is)

Kristbjörn H. Björnsson (khb@hi.is)

Eineltisdraugar
Fyrir nokkrum dögum varð ég vitni að merkilegu samtali tveggja vina minna. Báðir þessir vinir mínir höfðu orðið fyrir einelti og öðru ofbeldi í barnaskóla, rétt eins og ég. Samtalið fjallaði um reynslu þeirra frá því kvöldinu áður. Það kvöld höfðu þeir rekist á einn gerandan sem gerði þeim lífið leitt fyrir hartnær 20 árum. Þeim var heitt í hamsi og sáu þeir mikið eftir því að hafa ekki tekið manninn og lúbarið hann. Lýsingarnar á því hvernig þeir vildu ganga í skrokk á manninum og niðurlægja hann voru ógnvekjandi, sérstaklega í ljósi þess að hvorugur þessara vina minna  er þekktur fyrir ofbeldisverk.   Þau eru orðin mjög mörg árin síðan ég átti mér fantasíur um ofbeldisverk gagnvart óvinum úr æsku. Sem betur fer er ég ekki reiður lengur.

Eineltisreynsla getur haft djúpstæð áhrif á þá sem verða fyrir henni. Ég veit að eineltisreynsla mín hefur haft meiri áhrif á mig en ég hef oft þorað að viðurkenna. Eineltið hefur greinilega líka haft áhrifa á vini mína. Það er ljóst þegar fullorðnir rólyndismenn tala af fullri alvöru um að berja einstakling sem fór illa með þá þegar hann var krakki, fyrir tveim áratugum síðan.

Tíundi hver nemandi lagður í einelti
Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í 30 grunnskólum um allt land kemur fram að tíundi hver nemandi í 4.-7. bekk telur sig verða fyrir einelti. Hvernig sem á það er litið hlýtur þetta að teljast of hátt hlutfall. Margt hefur verið gert á undanförnum árum til að draga úr einelti í skólum en betur má ef duga skal. Einelti getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér, mun alvarlegri en margir gera sér grein fyrir. Sumir þeirra sem verða fyrir ítrekuðu einelti í skólum verða fyrir varanlegum andlegum skaða.

Hvað er hægt að gera?

Einelti er að mínu mati viðráðanlegt vandamál. Það er hægt að koma í veg fyrir einelti með skipulögðum aðgerðum. Það er einkum tvennt sem vantar í íslenskt skólakerfi sem gæti dregið verulega úr einelti. Það vantar aga og þjálfun í mannlegum samskiptum.

Efla þarf aga

Agaleysi er ríkjandi í skólum á Íslandi. Auðvitað er misjafnlega staðið að agamálum í skólum en að mínu mati er almennt alltof lítið áhersla lögð á setja börnum skýrar hegðunarreglur. Börn þurfa skýrar og auðskiljanlegar reglur. Agi þarf alls ekki að vera neikvæður. Ég er ekki að tala um að kennarar eigi að öskra á nemendur sína eða beita niðrandi refsingum, heldur vil ég að börnum séu settar skýrar reglur um hvað má og hvað má ekki.

Kennum mannleg samskipti

Það kemur mér sífellt á óvart hve lítil áhersla er lögð á að þjálfa börn í mannlegum samskiptum. Ef það er eitthvað sem allir þurfa að kunna, þá er það að kunna að koma fram við náungann og læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Ég er sannfærður um að ef aukin áhersla yrði lögð á að kenna börnum að tjá sig og hugsa rökrétt myndi það draga verulega úr einelti. Enda er einelti fyrst og fremst viðbrögð barna við óöryggi og vanlíðan.

Alltof oft er því haldið fram að ekki sé hægt að kenna tjáningu og rökræna hugsun, því þessir hæfileikar séu meira eða minna meðfæddir. Þetta er kjaftæði. Rökhugsun og tjáning eru mikilvægir hæfileikar sem eru verulega háðir þjálfun og fræðslu.

Sjá nánar:

Umfjöllun um einelti á www.skodun.is

Umfjöllun um agaleysi á Rás 2
Kristján Sigurjónsson, stjórnandi Morgunvaktarinnar á Rás 2, boðaði mig í stutt viðtal í morgun um agaleysi í skólum. Kristján hafði rekist á nokkrar greinar hér á Skoðun þar sem ég fjalla um nauðsyn þess að kenna mannleg samskipti í skólum og hafði því áhuga á að fjalla um þessar hugmyndir  mínar. Þorgerður Guðlaugsdóttir, aðstoðarskólastjóri Giljaskóla á Akureyri, átti einnig að vera í þættinum en hún forfallaðist.

Það hefði vitaskuld verið um skemmtilegra að fá viðbrögð Þorgerðar við þessum hugmyndum en skólastarfsmenn hafa stundum brugðist illa við þeirri gagnrýni minni að skortur sé á kennslu í mannlegum samskiptahæfileikum í skólum. Sumir hafa, því miður, túlkað málflutning minn sem árás á kennara og skólastjórendur en það er auðvitað ekki markmiðið.

Í grein minni „Orsök eineltis“ svara ég þeirri algegnu spurningu hvort það sé ekki hlutverk heimila frekar en skóla að sjá um kennslu í mannlegum samskiptum:

„Svarið við þeirri spurningu er auðvitað jú. Það væri óskandi ef foreldrar gætu séð um að kenna börnum sínum allt sem þau þurfa á að halda til að takast á við lífið. Flestir þeirra geta það hins vegar ekki.

Ástæðurnar eru margar, þó einkum tvær. Í fyrsta lagi hafa ekki allir foreldrar tíma til að kenna börnum þessa hluti, til dæmis vegna mikils vinnuálags. Í öðru lagi skortir þá oft þekkingu til að miðla þessum hæfileikum til barna sinna. Kennsla í mannlegum samskiptum krefst mikillar þekkingar og tíma, ekki síður en kennsla í stærðfræði eða tungumálum. Þetta gleymist oft, eða fólk álítur að allt sem tengist mannlegum samskiptum séu meðfæddir eiginleikar. Það er hins vegar ekki rétt. Ef eitthvað er, þá er flóknara að kenna samskiptahæfileika en t.d. stærðfræði og það tekur líklegast einnig meiri tíma.

Menntastofnanir eru því kjörinn vettvangur fyrir slíka þjálfun og fræðslu. Það er þó að sjálfsögðu ekki við kennara að sakast. Einfaldlega vegna þess að kennarar fá ekki úthlutaðan tíma, né kennslugögn til að takast á við þetta mikilvæga viðfangsefni. Þar að auki er þjálfun kennara í samskiptahæfileikum, í því hvernig á að halda uppi aga í skólastofu og hvernig á að koma fram við börn vægast sagt af skornum skammti.“

Í lýðræðisþjóðfélagi er fátt eins mikilvægt og þekking í mannlegum samskiptum, færni til að tjá sig og hæfileikinn til að meta allar þær upplýsingar og allan þann áróður sem við verum fyrir með gagnrýnu hugafari. Kennsla í mannlegum samskiptum er því ekki aðeins skynsamleg heldur nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi.

Að lokinni eineltisráðstefnu
Ég tók þátt í ráðstefnu um einelti sem haldin var í Lögbergi í gær á vegum Kristínar Vilhjálmsdóttur og Margrétar Birnu Auðunsdóttur, en þær eru báðar virkir þátttakendur í Eineltissamtökunum (sem eru sjálfshjálparsamtök þolenda eineltis). Ráðstefnan var ágæt og margir áhugaverðir fyrirlestrar fluttir. Eiga þær Kristín og Margrét Birna þakkir skildar fyrir framtak sitt. Nokkuð fjörugar pallborðsumræður áttu sér stað undir lok ráðstefnunnar og ljóst er að skiptar skoðanir eru á því hvaða aðferðum eigi að beita í baráttunni gegn einelti.

Sjálfur hef ég lengi verið þeirrar skoðunar að vænlegasta aðferðin til að draga úr einelti sé sú að efla sjálfsvirðingu, öryggi og umburðarlyndi barna.

Að mínu mati orsakast einelti fyrst og fremst af feimni og skorti á samskiptahæfileikum. Því hef ég verið þeirrar skoðunar að taka eigi upp skipulagða kennslu í siðfræði og ekki síst mannlegum samskiptum í skólum.

Sjá nánar:

Orsök eineltis

Eurovisionkvöld
Mér var boðið í Eurovisionpartí í gær. Það var ágætt, þótt mér hafi leiðst flest lögin í þessari keppni. Þar að auki lentu þau lög sem ég spáði neðstu sætunum mjög ofarlega, eitt þeirra vann. Ég spáði Noregi sigri, en ég er líka sucker fyrir ballöðum.

Eftir að keppninni lauk skellti ég mér í bæinn þar sem ég hitti fullt af góðu fólki. Eins og svo oft áður stoppuðu mig nokkrir vegfarendur og vildu tjá sig um heimildarmyndina mína og reynslu sína af einelti. Oft sorglegar sögur. Það er þó gott til þess að vita að myndin hafi náð til einhverra.