Ritstjórn
CURRICULUM VITAE
Nafn:
Sigurður Hólm Gunnarsson
Netfang:
siggi@skodun.is
Vefsíða:
www.skodun.is
Menntun
- BSc í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri.
- Stundaði nám í félagsfræði, með vinnu, við Háskóla Íslands vorið 2003.
- Námskeið í ASP vefforritun hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni, sumar 2002.
- Árið 2001 nam ég umsjón og rekstur tölvukerfa í Rafiðnaðarskólanum og er með MCP (Microsoft Certified Professional) og MCSE (Microsoft Certified System Engineer) gráður frá Microsoft.
- Stundaði nám í sálfræði við Háskóla Íslands 1998 – 2000.
- Útskrifaðist sem stúdent af félagsgreinasviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti vorið 1997.
Starfsreynsla
2010: 1. júní 2010 >
- Forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík.
2009: 1. október – 1. júní 2010
- Forstöðumaður á áfangaheimili fyrir geðfatlaða á Gunnarsbraut.
2009: 1. maí – 30. september
- Uppeldis- og meðferðarfulltrúi í búsetukjarna fyrir geðfatlaða í Árbænum.
2008 – mars 2009
- Starfaði um tíma hjá Aflinu, systursamtökum Stígamóta á Norðurlandi. Starfið fólst m.a. í að vera andlit félagsins út á við, halda utan um almenna starfsemi, sækja um styrki og viðhalda vefsíðu (www.aflidak.is).
2008 (sumar)
- Starfaði á Heimili fyrir heimilislausa í Reykjavík.
2006 – 2008
- Starfaði á búsetudeild fyrir geðfatlaða á Akureyri ásamt því að stunda nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri.
2004 – 2005
- Hóf störf í desember 2004 sem aðstoðarmaður iðjuþjálfa á geðdeild Landspítalans.
- Tók við sem framkvæmdastjóri Félags um móðurmálskennslu tvítyngdra barna í byrjun október 2004. Sjá: www.modurmal.com.
- Starfaði sem blaðamaður hjá Bóka- og blaðaútgáfunni.
2003
- Starfaði sem blaðamaður hjá Vísi.
2002
- Framleiðsla á heimildarþættinum Einelti – Helvíti á Jörð.
- Stuðningsfulltrúi í Rimaskóla.
- Vefstjóri Samfylkingarvefsins.
- Framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna.
2001
- Kerfisþjónustumaður hjá ANZA.
Útvarp
- Var einn af stjórnendum útvarpsþáttarins Nei ráðherra á Útvarpi sögu.
- Sjá nánar www.skodun.is/nei_radherra.
Heimildarþáttargerð
- Er höfundur og annar framleiðanda heimildarþáttarins Einelti – Helvíti á Jörð, sem meðal annars hefur verið sýndur á Rúv og í grunnskólum landsins.
Sjá nánar: www.skodun.is/einelti
Hönnun/umsýsla
- Hef hannað eftirfarandi vefsíður: www.skodun.is, www.samt.is, www.sidmennt.is, www.sark.is, www.skagamenn.com, www.modurmal.com, www.hjaafa.is (umsýsla), www.aflidak.is, www.idjuthjalfun.is.
Tölvukunnátta
- Ég er með MCP og MCSE gráður í Windows 2000 stýrikerfinu og hef ég nokkuð mikla starfsreynslu við að þjónusta flest Windows stýrikerfi. Kann nokkuð vel á helstu póstforrit. Þ.e. Microsoft Exchange og Lotus Notes.
- Sem þaulvanur notandi Windows er ég vel að mér í flestum Microsoft forritum á borð við Word, Excel, Powerpoint, Outlook o.s.frv.
- Einnig hef ég góð tök á vefvinnsluforritunum Dreamweaver, FrontPage og öðrum álíka forritum enda rek ég mitt eigið vefrit (sjá félagsstörf). Þar að auki er ég nokkuð vel að mér í grafískum forritum á borð við Photoshop, ImageReady og Fireworks. Ég er einnig fullfær um að bjarga mér í HTML forritun.
Tungumál
- Tala og rita íslensku vel. Les og rita ensku til jafns við íslensku auk þess sem ég tala ensku ágætlega. Les dönsku og sænsku ágætlega.
Félags- og ritstörf
Siðmennt
- Er í stjórn Siðmenntar, sem er félag siðrænna húmanista á Íslandi. Félagið sér meðal annars um borgaralegar athafnir og berst fyrir trúfrelsi. Ég sé einnig um vefsíðu félagsins www.sidmennt.is.
Skoðun
- Ég er vefstjóri, hönnuður, pistlahöfundur og ritstjóri vefritsins Skoðunar (www.skodun.is) sem hefur verið gefið út af samnefndum félagsskap frá því í júní 1999.
Aðstandendafélag aldraðra (AFA)
- Stofnfélagi í Aðstandendafélagi aldraðra og sá um fyrstu vefsíðu félagsins (www.hjaafa.is).
SARK
- Var í stjórn Samtaka um aðskilnað ríkis og kirkju (SARK) auk þess sem ég hannaði og sá um vefsíðu félagsins (www.sark.is).
Pólitík
- Var um tíma í ritstjórn www.politik.is og síðar www.kreml.is. Ég hef einnig starfað innan Sambands ungra jafnaðarmanna (ungliðahreyfingu Alþýðuflokksins), meðal annars sem formaður menntamálanefndar frá 1998 og sem formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík (ungliðahreyfingu Alþýðuflokksins í Reykjavík) frá 1999. Sat um tíma í framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna (sem er ungliðahreyfing Samfylkingarinnar).
Framhaldsskóli
- Í framhaldsskóla stofnaði ég Óhefðbundna félagið og var fyrsti formaður þess. Tilgangur félagsins var að halda opna málfundi um ýmis málefni.
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar

Hver er þín skoðun?