Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Bókasafn
Viðbrögð: Ummæli (
Ég ætla mér að lesa nokkrar bækur í sumar. Er búinn að vera alltof latur við að lesa undanfarið. Nú er ég með fimm bækur á náttborðinu:
- The Moral Landscape: How Science Can Determine Human Values eftir Sam Harris
- The Lights in the Tunnel: Automation, Accelerating Technology and the Economy of the Future eftir Martin Ford
- The Portable Atheist: Essential Readings for the Nonbeliever ritstýrð af Christopher Hitchens
- Physics of the Future: How Science Will Shape Human Destiny and Our Daily Lives by the Year 2100 eftir Michio Kaku
- The Hidden Reality: Parallel Universes and the Deep Laws of the Cosmos eftir Brian Greene
Allt mjög áhugaverðar og spennandi bækur. Skelli líklegast inn umsögnum þegar ég er búinn að lesa þær…
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Heimspeki, Skóli og trú
Viðbrögð: Ummæli (
Bjarni Karlsson sóknarprestur hefur skrifað enn eina greinina til að kvarta yfir tillögum sem fjalla um samskipti skóla og trúfélaga í borginni. Ég fullyrði að hann setur engin ný gagnleg rök fram í grein sinni og því óþarfi að svara henni efnislega. (Þeir sem eru áhugasamir um efnið geta skoðað greinar um skóla og trú hér).
Það sem vakti athygli mína í nýjustu grein Bjarna, og ég vil fjalla um, er daður hans við afstæðishyggju. Virðist hann vera þeirrar skoðunar að allar hugmyndir og skoðanir séu jafnar og því geti skólakerfið ekki gert neinar kröfur til þeirra sem eiga aðild að skólastarfi. Í grunnskólana eiga allir „ábyrgir“ aðilar að vera velkomnir með „sín gildi og skilaboð, gefa innsýn í list sína, heimsmynd, þekkingu og ástríðu sína á öllum mögulegum sviðum.„
Í grein sinni vill Bjarni benda á þá „alvarlegu rökvillu sem fólgin er í hugmyndinni um hlutlausan, ógildishlaðinn vettvang í skólum borgarinnar“. Hann segir að það sé „almenn félagsvísindaleg vitneskja að hvert félag og stofnun hefur sín gildi, meðvituð og ómeðvituð“ og svo segir hann að „[h]ver persóna ber með sér sinn skilning á heiminum og ber vitni þeirri heimsmynd sem hún hefur eignast.“
Umrædd grein er ágætt dæmi um afstæðishyggju. Hugmyndafræði sem getur ekki gengið upp og er vægast sagt siðferðilega vafasöm. Þeir sem aðhyllast afstæðishyggju geta ekki gagnrýnt eða dæmt neitt. Ekki einu sinni þá sem gagnrýna afstæðishyggju. Enda er hver persóna með sinn „skilning á heiminum“ og því hrokafullt og jafnvel rökleysa að segja að skilningur einnar manneskju sé eitthvað ómerkilegri en skilningur annarra.
Því miður er afstæðishyggja nokkuð algeng hjá ákveðnum hóp vinstrimanna sem berst fyrir umburðarlyndi og mannréttindum „jaðarsettra“ hópa. Ekki vegna þess að það sé beinlínis siðferðilega rangt* að mismuna fólki, heldur vegna þess að allar skoðanir, hneigðir og athafnir eru jafnar. Ekkert er í raun betra en annað, bara öðruvísi. Umburðarlyndi byggt á menningarlegri afstæðishyggju er stórhættulegt.
Þeir sem ganga hvað lengst í afstæðishyggjunni neita að taka afstöðu til ýmissa siðferðisspurninga, einfaldlega vegna þess að þeir telja að það sé ekki hægt. Það er til að mynda ómögulegt, í það minnsta vafasamt, að gagnrýna foreldra sem berja börnin sín ef slíkt hefur tíðkast í æsku þeirra eða heimalandi. Að sama skapi er ekki hægt að setja út á fólk frá öðrum menningarheimum sem er með haturs- og ofbeldisfullar trúar- eða stjórnmálaskoðanir. Allt er jú afstætt.
Að lokum vil ég taka fram að þessi grein er bara minn skilningur byggður á þeirri heimsmynd sem ég hef eignast. Öll gagnrýni verður túlkuð sem smættun, jaðarsetning og sem tákngerving valdatengsla.
*Skilgreining á hvað er siðferðilega rétt og rangt er efni í aðra grein. Í stuttu máli tel ég að allt það sem valdi óþarfa sársauka, þjáningu, óhamingju o.s.frv. hjá einstaklingum sé siðferðilega rangt.
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Tölvur og tækni, Vísun
Viðbrögð: Ummæli (
Ég er búinn að eyða nokkrum kvöldstundum í að kynna mér Google+. En Google+, eða Plúsinn eins og ég kýs að kalla þennan nýja samskiptavef, er svar leitarrisans Google (en ekki hvers?) við Facebook. Ég er á því að Plúsinn gæti slegið gegn. Í fljótu bragði virðist mér sem að Plúsinn sameini kosti Twitter (sem ég reyndar nota lítið) og Facebook. Þar að auki er útlit Plússins stílhreinna og meira aðlaðandi en Facebook.
Ekki spurning um vini, heldur út á að verða „hringaður“
Ólíkt Facebook þarf maður ekki að eiga neina „vini“ til að vera í samskiptum við annað fólk á Google+. Plúsinn gengur ekki út á að eignast vini heldur út á að verða „hringaður“ (sem mér finnst, af einhverjum ástæðum, hljóma hálf dónalega…).
Þannig get ÉG boðið ÞÉR að fylgjast með mér en geri um leið enga kröfu til þess að ÞÚ leyfir mér að fylgjast með þér (náðir þú þessu?). Að hringa einhvern er engin skuldbinding. (Af hverju hljómar þetta svona dónalega?)
Leiðbeiningar
Hægt er að fá fínar leiðbeiningar um Plúsinn hér: http://www.google.com/+/demo/.
Meðfylgjandi veggspjald útskýrir einnig ágætlega hvernig Plúsinn virkar:

Svo bendi ég einnig á þennan fína leiðbeiningabækling sem er reglulega uppfærður (enda höfundarnir rúmlega 120 talsins):
Gagnlegar Chrome íbætur fyrir Google+
Mjög gott er að nota Chrome vafrann með Plúsnum (enda Chrome í eigu Google). Nú þegar eru komnar út nokkrar gagnlegar Chrome íbætur fyrir Google+. Ég nefni hér nokkrar:
1) Replies and more for Google+ bætir viðmótið og auðveldar notendum að deila efni t.d. á Facebook.
2) +Comment Toggle setur athugasemdir við færslur í felliglugga.
3) Extended Share for Google Plus auðveldar þér að deila því sem þú skrifar á Google+ á Facebook, Twitter og LinkedIn.
Samantekt
Plúsinn er glænýr samskiptavefur stofnaður til höfuðs Fésbókarinnar. Vefurinn er augljóslega enn í mótun en byrjunin lofar góðu.
p.s. Hringaðu mig!
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ríki og trú, Skóli og trú
Viðbrögð: Ummæli (
Maður sem sagðist vera frá Gídeonfélaginu stoppaði mig á förnum vegi í gær. „Ég þarf að ræða við þig Sigurður“ sagði hann. „Við viljum að þú hættir að berjast gegn því að við Gídeonmenn fáum að gefa börnum Nýja Testamentið og boða SANNLEIKANN“ (Hann lagði mikla áherslu orðið).
Ég benti honum á að hann mætti gefa börnum NT og boða trú sína eins og honum sýndist. Bara ekki í opinberum skólum. Hér væri skólaskylda og því óviðeigandi að eitt trúfélag væri með slíkan áróður og trúboð í skólum.
Maðurinn svaraði því til að þetta væri enginn áróður. Þetta væri SANNLEIKURINN. Allt væri satt sem væri í Biblíunni og börn þyrftu að vita það og því YRÐU Gídeonmenn að ná til allra barna í grunnskólunum.
SHG: „Þetta er einmitt ein helsta ástæðan fyrir því að ég vil ekki sjá ykkur í opinberum grunnskólum. Þið eruð með trúboð og fullyrðið að ykkar trú ein boði SANNLEIKANN“.
Gídeonmaðurinn: „Já en þetta ER SANNLEIKURINN og allir verða að vita hann.“ Svo blaðraði hann eitthvað um það að múslímar og trúleysingjar væru ekki með sannleikann á hreinu, enda hafa þeir ekki lesið Biblíuna. Ef börnin hættu að fá NT frá Gídeonmönnum í grunnskólum yrði ekki hægt að „stoppa múslimana“.
Þetta hefði skelfilegar afleyðingar. Hann vissi persónulega um 17 börn (var mjög nákvæm tala hjá honum) sem hefðu leiðst út í dóp og svipt sig lífi af því þau þekktu ekki SANNLEIKANN.
Ég hafði ekki tíma í að hlusta á þetta lengur. Brosti til hans og bað hann vel að lifa og fór svo á tónleika, sannfærðari en nokkru sinni fyrr um að Gídeonfélagið á ekkert erindi í skóla landsins.
Leita: Skoðun
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
- Fimm bækur á náttborðinu
- Um afstæðishyggju og trúboð í skólum
- Google+ — kynning, leiðbeiningar og gagnlegar íbætur
- Ekki áróður heldur SANNLEIKUR
Fleyg orð
eftir Marcus Tullius Cicero
Efnisorð
Atvinnu- og efnahagsmál Bókasafn Einelti Ferðalög Fjölmenning Fordómar Gagnrýnin hugsun Heilbrigðismál Heimsmynd Heimspeki Hugmyndafræði Klámvæðing Menntamál Málefni barna Pólitísk einvígi Ríki og trú Ríkisumsvif Siðmennt Stjórnmál Söguhorn Trú Tónlist Utanríkismál Vísindi Vísun
WP Cumulus Flash tag cloud by Roy Tanck and Luke Morton requires Flash Player 9 or better.