Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Söguhorn, Trú
Viðbrögð: 3 athugasemdir
Dagurinn í dag er níu sekúndum lengri en gærdagurinn, sem var stysti dagur ársins. Er það mikið fagnaðarefni og í raun helsta ástæðan fyrir því að haldið er upp á jól. Það er í það minnsta uppruni jólahátíðarinnar. Flestir halda að jólahátíðin eigi rætur í kristinni trú en það ekki allskostar rétt. Jólin er heiðin sólarhátíð sem kristnir menn breyttu síðar í kristilega hátíð. Til forna fögnuði menn og konur „fæðingu hinnar ósigruðu sólar“. Þessi hátíðarhöld breyttust svo smá saman í hátíð í tilefni „fæðingu hins ósigraða sonar“. (Sjá nánar: Fæðingu sólarinnar fagnað, þar sem fjallað er um fornar heiðnar hátíðir sem flestar voru haldnar í tengslum við sólina og sólguði).
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Tónlist, Vísun
Viðbrögð: 1 athugasemd
Spec of Pictures Burnt Beyond (2006) með hljómsveitinni Zero Hour er án efa ein besta progressive metal plata sem gefin hefur verið út. Hreint ótrúlegir tónlistarmenn hér á ferð og söngvarinn frábær. Vísa hér á tvö mögnuð lög.
Annars vegar mjög fallega ballöðu, I Am Here, og hins vegar Face the Fear sem er upphafslag plötunnar. Njótið!
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hæðni, Ritskoðun
Viðbrögð: 1 athugasemd
Nú hefur Hreinn Loftsson, sem er aðaleigandi DV, fullyrt í eigin fjölmiðli að Bjarni Ben, formaður Flokksins, hafi óskað eftir ritskoðun um mál sem tengjast honum. Bjarni neitar þessu eins og búast mátti við. Hann viðurkennir þó að hafa hringt í eiganda DV til að kvarta yfir blaðamanni blaðsins.
Þar sem Bjarni á að vita að eigendur eiga ekki að skipta sér af ritstjórnum eigin fjölmiðla verður símtal hans eigandans að teljast ansi taktlaust. Algerlega óháð því hvort hann bað formlega um ritskoðun eða ekki.
Hvað ef símtalið hefði þróast eins og neðangreint samtal? Hefði Bjarni sagt nei hefði Hreinn boðist til að hafa áhrif á fréttaflutning DV?
Áður óbirt (og skáldað) samtal Bjarna Ben og Hreins Loftssonar:
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Tónlist, Vísun
Viðbrögð: Engar athugasemdir
Ég veit að það er bannað að viðurkenna það en sænsk/norska rokksveitin Europe hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég varð aðdáandi á gullaldarárum þeirra í kringum 1986 þegar hin magnaða plata „The Final Countdown“ kom út og hef í raun verið aðdáandi allar götur síðan. Flestir þekkja Europe af ofursmellunum „The Final Countdown“ og „Carrie“, sem eru reyndar langt frá því að vera þeirra bestu lög.
Færri vita að Europe eru enn að spila og gefa út efni. Nýjasta „platan“ þeirra, „Last Look at Eden“, kom út fyrr á þessu ári og er ótrúlega góð. Ég á til með að vísa hér þau lög sem heilla mig hvað mest.
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Tímamót, Wordpress
Viðbrögð: 2 athugasemdir
Eins og sjá má hefur www.skodun.is fengið andlitslyftingu. Það er nauðsynlegt að breyta reglulega til. Kannski síðan verði líka uppfærð oftar í framtíðinni. Útlitið er jú ekki allt.
Fleyg orð
eftir Buddha
Efnisorð
Atvinnu- og efnahagsmál Bókasafn Einelti Ferðalög Fjölmenning Fordómar Heilbrigðismál Heimsmynd Heimspeki Hugmyndafræði Klámvæðing Menntamál Nei ráðherra Pólitísk einvígi Ríki og trú Ríkismenning Ríkisumsvif Söguhorn Siðmennt Stjórnmál Tónlist Trú Utanríkismál Vísindi Vísun
WP Cumulus Flash tag cloud by Roy Tanck and Luke Morton requires Flash Player 9 or better.

Nýjar athugasemdir