Aðförin að fátæku fólki

Logo

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson ritstjóri Skoðunar sem stofnað var þann 23. júní 1999.

09/10/2014

9. 10. 2014

Alþýðusamband Íslands stendur fyrir auglýsingaherferð þessa dagana sem ber heitið: Þetta er ekki réttlátt!  Þetta er þörf herferð sem ég leyfi mér að birta í heild sinni hér fyrir neðan. ASÍ kallar fjárlagafrumvarpið aðför að hagsmunum launafólks. Ég leyfi mér að kalla það aðför að fátæku fólk. Eins og ég hef áður sagt þá er það […]

ASIAlþýðusamband Íslands stendur fyrir auglýsingaherferð þessa dagana sem ber heitið: Þetta er ekki réttlátt! 

Þetta er þörf herferð sem ég leyfi mér að birta í heild sinni hér fyrir neðan. ASÍ kallar fjárlagafrumvarpið aðför að hagsmunum launafólks. Ég leyfi mér að kalla það aðför að fátæku fólk.

Eins og ég hef áður sagt þá er það lygi að ekki séu til nægir peningar í þessu landi. Það er rangt að stjórnvöld verði að spara og seilast í vasa hinna fátækustu til að borga skuldir og fjármagna heilbrigðiskerfið og aðra grunnþjónustu.

„Ríkisstjórn ríka fólksins kýs einfaldlega að fara leið misskiptingar í nafni hugmyndafræði og vanþekkingar og með dyggum stuðningi hluta þjóðarinnar. Látum ekki plata okkur með þeim rökum að það sé ekki hægt að fjármagna rekstur spítala án þess að lækka barnabætur eða skera niður í velferðarmálum.“ – Hugmyndafræði yfirstéttarinnar og lygin um fjárskort ríkisins

 

Auglýsing ASÍ – Þetta er ekki réttlátt!

Þetta er ekki réttlátt!

Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi.Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana.

Hækkun á matvælum
Hækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum.

Heilbrigðismál
Með meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda.

Menntamál
Fyrirheit um eflingu starfs-, verk- og tæknimenntunar eru svikin og möguleikar fólks á vinnumarkaði með litla formlega menntun til að sækja sér nám eru skertir verulega.

Starfsendurhæfing
Niðurskurður til starfsendurhæfingar er aðför að fólki sem veikist eða slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.

Atvinnuleysistryggingar
Stytting bótatímabils er fordæmalaus aðför að atvinnulausu fólki og mun auka enn á fátækt í landinu.

Húsnæðismál
Ekki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að mæta miklum vanda í húsnæðismálum.

Jafnræði í lífeyrismálum
Skert framlög til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyrissjóða valda skertum lífeyrisgreiðslum til félagsmanna ASÍ.

Skattalækkanir
Ríkisstjórnin hefur að undanförnu afsalað ríkissjóði tekjum fyrir tugi milljarða króna til að bæta hag þeirra ríkustu.

 

Sjá nánar:

Deildu