Samhengi hlutanna: Ég er ríkur
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hæðni
Viðbrögð: Ummæli (
Ég er miklu ríkari en Finnur Ingólfs og Jón Ásgeir. Það er auðvelt að útskýra ef við ímyndum okkur að ef ég fengi allar tölur réttar í Víkingalottói næsta miðvikudag. Þá gæti ég unnið tvo milljarða króna. Þá væri ég heppinn. Ég gæti keypt mér flott einbýlishús með sundlaug, hætt að vinna, borgað upp skuldir mínar* og í raun skuldir allra í minni nánustu fjölskyldu. Ég gæti gefið tugi milljóna í hjálparstarf og ferðast svo um heiminn. Í stuttu máli þyrfti ég ekki að hafa áhyggjur að fjármálum svo lengi sem ég lifi**.
En ef Finnur Ingólfsson myndi vinna væri hann ekki eins heppinn. Hann gæti aðeins greitt helming af því sem einkafélag hans FS7 skuldar. Helming! Og þá á hann eftir að borga yfirdráttinn.
Og Jón Ásgeir. Hann gæti greitt heil 4% af þeim 50 milljörðum sem félag hans Gaumur ábyrgist vegna skuldar við Arion banka. Lottópotturinn þyrfti að vera 26 sinnum stærri til að Jón Ásgeir gæti haft það jafn gott og ég.
Stundum er gott að hafa í huga að ekki eru allir jafn góðum málum og ég.
*Ég skulda Lánasjóði íslenskra námsmanna og er ekki vongóður um að sú skuld verði felld niður. **Hér geri ég ráð fyrir því að ég verði ekki mikið eldri en 150 ára.Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Hver er þín skoðun?