Að banna mannlegan breyskleika
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Heilbrigðismál, Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Fyrr í dag sendi Tóbaksvarnarþing Læknafélags Íslands frá sér ályktun þar sem lagt er til að tóbak verði bannað á Íslandi.* Mun þetta vera klassískt dæmi um góðborgara sem telja sig geta bjargað heiminum með boðum og bönnum. Slíkt hefur auðvitað verið reynt áður, til dæmis með ofstækisfullu banni við neyslu áfengis í gamla daga og annarra vímuefna í dag. Árangur af slíkum bönnum er vægast sagt umdeildur og hefur yfirleitt verið mældur í aukinni undirheimastarfsemi, glæpum, ofbeldi og annarri misnotkun.
Þó að bann við mannlegum breyskleika myndi skila árangri er vafasamt að slíkt bann gæti talist siðferðilega rétt. Ég minni á gamla Sovét, þriðja ríki nasismans, fjölmörg múslimaríki og sæluríkin Kína og Norður-Kóreu í þessu samhengi. Öll þessi „velferðarríki“ reyndu, og reyna, að búa til fyrirmyndarsamfélag með boðum og bönnum. Helst með hörðum refsingum þar sem hinum brotlega er ekki sýnd nein miskunn, öðrum víti til varnaðar.
Tóbaksvarnarþingið, sem auðvitað vill vel, ætlast ekki aðeins til að tóbak verði bannað á Íslandi það telur einnig „óæskilegt“ að „leikarar reyki í íslenskum bíómyndum og á leiksviðum“ og er því hlynnt ritskoðun í anda sæluríkja kommúnisma. Að auki virðast læknarnir góðu vilja að sett verði lög þar sem fólk verði annað hvort sektað eða handtekið fyrir það að reykja á almannafæri.*
Þessi öfgafulla afstaða bendir til þess að það sé til eitthvað sem er jafnvel verra en lögregluríki, og það er þá læknaríki.
Í fljótu bragi sé ég aðeins tvö atriði í ályktun læknanna sem ég gæti stutt. Í fyrsta lagi að vernda þurfi hópa sem enn eru útsettir fyrir óbeinum reykingum. Þetta er sjálfsögð krafa, enda á fíkn eins í reykingar ekki að hafa bein áhrif á aðra sem kæra sig ekki um að stunda slíka iðju. Í öðru lagi get ég stutt kröfu um takmarkanir á auglýsingum á tóbaki, þá með það að markmiði að vernda ungt fólk fyrir áróðri.
Annars tel ég að læknarnir ættu að einbeita sér að forvörnum og auka fjölbreytni á úrræðum til að hjálpa fólki að reykja. Eins og með því að leyfa elektrónískar sígarettur.
Nú veit ég ekki hvernig stjórnvöld taka ábendingum læknanna en eitt er víst. Ef sæluríki lækna verður að veruleika er ég fluttur úr landi.
*Úr ályktun Tóbaksvarnarþings:
„• Að hætta sölu tóbaks í matvöruverslunum og á bensínstöðvum fyrir árslok árið 2010.
• Að hætta sölu tóbaks í söluturnum árið 2012.
• Stefna að því að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að taka tóbak alfarið úr almennri sölu.
• Nýjar dreifingar og söluleiðir á tóbaki (t.d. öll sjálfsafgreiðsla) verði óheimilar.
• Tóbak verði tekið úr sölu í fríhöfnum íslenskra flugvalla.
• Aldur til að geta keypt tóbak verði hækkaður í 20 ár fyrir árslok 2010.
• Aldur til að afgreiða tóbak verði hækkaður í 20 ár fyrir árslok 2010.
• Að hnykkt verði á banni við að auglýsa eða selja varning með nafni eða merki sem tóbak er einnig fáanlegt undir.
• Auglýsingar, t.d. á kappakstursbílum eða í íþróttaútsendingum, verði takmarkaðar með því að skylt verði að útmá auglýsingarnar í t.d. sjónvarpsútsendingu eða tímariti.
• Þingið telur óæskilegt að leikarar reyki í íslenskum bíómyndum og á leiksviðum.
• Vernda þarf hópa sem enn eru útsettir fyrir óbeinum reykingum s.s. fangar, fangaverðir og starfsmenn vistheimila.
• Stefnt verði að því að afnema reykingar á almannafæri.
• Að taka tóbak út úr vísitöluútreikningi.
• Stefnt skal að því að útsöluverð á tóbaki standi undir samfélagslegum kostnaði við neyslu þess.“
Hver er þín skoðun?
6 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Vel mælt.
All truth passes through 3 stages. First, it is ridiculed. Second, it is violently opposed. Third, it is accepted as being self evident.
Hvað kemur þessi tilvitnun greininni við Hallgrímur?
Tek undir sumt hjá þér í þessu. Réttara væri kannski að hækka verðið á tóbaki. Eða láta tryggingafélögin um að þrysta meiri á, hækka iðgjöld ofl. Mér finnst út í hött að banna reykingar á lóðum fyrirtækja eins og er sumsstaðar gert. Reykingarmenn ættu að fá að geyma litla rútu á bílastæðinu, sem þeir kaupa sjálfur saman, (og borga helst fyrir bílastæðið eins og allir ættu að gera ) og reykja þar.
En að leggja stein í götu reykingarmanna er ekki neitt miðað við hvernig steinum eru lögð í götu hjólreiðamanna og öðrum heilbrigðum samgöngum. Versta dæmið er ósönn áróður um hjólreiðahjálma. Og ef það væri ekki nóg, bönn á hjólreiðar barna nema með hjálm. Wikipedia er ágætis staður til að byrja ef einhver vill fræðast. Eða
http://www.LHM.is
http://www.cyclehelmets.org
http://www.cykelhjelm.org
http://www.copenhagenize.com/2009/09/fear-of-cycling-03-helmet-promotion.html
Það er svolítið fyndið hvernig þér tekst að tengja alla umræðu við hjólreiðar
Annars eru þetta áhugaverðar upplýsingar um hjólreiðahjálma.
Takk fyrir, Sigurður
Mér finnst það nánast vera skylda mín að tengja við hjólreiðar þegar það á við. En að vísu hefði ég mátt skrifa meira í blöðum og þess háttar sjálfur og við öll í hjólafélögunum. Gera verkið sem ritstjórnir og yfirvöld hefðu átt að sinna. Og gera í sumum öðrum löndum. Besta dæmið er ESB skýrslan „Cycling the way ahead for towns and cities“ sem er aðgengileg með netleit og áróður og stuðning yfirvalda (meðal annsrs með styrkjum) bæði í UK, NL og DK við hjólreiðar
Tengingar við bann reykingar og tóbak og allt sem kann að ýta undir reykingum: Lýðheilsumál, réttindamál, að „ríkið“ hafi vit fyrir borgaranna og þvinga til þess að passa sig (The nanny state). Það eru ötulir og áhrifamiklir aðilar sem eru með upphrópanir ef einhver sést á reiðhjóli í fjölmiðlum eða í efni frá opinerum aðilum án hjálms. Mikill sjálfsritskoðun er því í gangi.
Munur á reykingabann og þegar lagt eru steinar í götu hjólreiðamanna: Reykingar skaða þá sem reykja og fólk í kring um það. Reykingar eru meðal stærstu heilbrigðisvandamálin á heimsvísu. Öfugt þá eru of _litlar_ hjólreiðar (og göngu, í bland við að fólk vinna í kyrrsetu) á meðal stærstu heilbrigðisvandamálin á heimsvísu. Rannsóknir sem meðal annars WHO vitna í, benda sterklega til þess að hjólreiðar lengja lífið og er meðal þess sem er aðgengilegast til að bæta lýðheilsu. Ef það væri ekki fyrir hræðslu við bílaumferðina, og ymsarmýtur um hjólreiðar. Tengingar á milli hrapandi heilsu og reykingar eru nú viðurkenndar, en varðandi hjólreiðar er allskonar áróður í gangi ekki síst um hjálmana sem byggja á lélegum rannsóknum sem hafa fengið allt of mikið vægi, á meðan gagnrýninn á þeim er þaggað niður. Og síst ekki síðast : algjört bann við hjólreiðar barna án hjálms er þegar til staðar, ólíkt nýjum aðgerðum gegn reykingum sem þú ræður í pistli þínum.
En aftur að reykingum : Hver finnst þér vera rétta leiðin ? Væri rétt að snarhækka verði á tóbaki ? Að láta reykingamenn borga sérstaka sjúkratrygging til ríkisins ? Eða láta allt vera eins og það er ?
P.S.
Móðir minn vann sem félagsráðgjafa. Einn daginn þegar hún mætti til læknis, um 35 ára, var henni ráðlagt að hætta að reykja hið snarasta. Hún hefur aldrei reykt. En skjólstæðingar gerðu það og pabbi mínn fram að því að ég fæddist. Hún er með astma í dag. Óvisst með tengingu við reykingar, reyndar.