Hver skapaði sýkla?


helgihosMargir vilja nú að reistur verði minnisvarði um Helga Hóseasson á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann stóð oft og mótmælti. Ég styð þá kröfu, enda hafði Helgi töluverð áhrif á íslenskt samfélag. Einhverjir hafa talað um að reisa styttu eða eitthvað álíka. Það er rugl og örugglega eitthvað sem Helgi hefði verið ósáttur við. Ég vil frekar að minnisvarðinn verði í formi skiltis eða skilta með helstu slagorðum Helga. Til dæmis „Hver skapaði sýkla?“.

Hver er þín skoðun?



1 athugasemd

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.