Alkasamfélagið


alkasamfelagidFyrir nokkrum dögum las ég bókina Alkasamfélagið eftir Orra Harðarson. Þetta er hressandi og bráðskemmtileg bók þar sem Orri gagnrýnir harðlega hugmyndafræði og áfengismeðferð AA-samtakanna. Meðferð sem hann gekkst undir sjálfur árum saman. Orri er oft ansi óvæginn í gagnrýni sinni. Þannig gengur hann svo langt að kalla AA-samtökin trúarkölt sem berjist gegn allri skynsemi þegar kemur að áfengismeðferð. Orri fjallar um bókstafstrúarlegan uppruna AA og vægast sagt skuggalega fortíð stofnenda samtakanna. Hann bendir réttilega á að þátttaka í AA sé EKKI besta leiðin til að verða edrú og hvað þá sú eina (eins og margoft hefur verið haldið fram).

Bók Orra er fyrir alla þá sem vilja fræðast um áfengismeðferð almennt, uppruna AA-samtakanna og síðast en ekki síst lesa skemmtilegan texta. Ég hló margoft upphátt við lestur Alkasamfélagsins. Þessi bók er alls ekki fyrir sannfærða AA sinna sem telja sig hafa fundið sannleikann (með stóru S-i) í samtökunum. Hinir síðastnefndu ættu að halda áfram að einbeita sér við að lesa AA-bókina.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


2 athugasemdir

  1. …ég er smá forvitin…benti Orri á aðrar leiðir sem gætu mögulega komið í staðinn fyrir AA-samtökin..?? Eða þarf ég bara að lesa bókina ;) ? Er bara að pæla af því ég man ekki eftir því að hafa heyrt talað um annað en þessar hefðbundnu meðferðir (SÁÁ) annars vegar og AA-samtökin hins vegar…

  2. Það er margt í boði. Helst er þó mælt með einhvers konar hugrænni atferlismeðferð og/eða lyfjameðferð.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.