Enn eitt fórnarlambið í stríðinu gegn fíkniefnum
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Fíkniefnavandinn
Viðbrögð: Ummæli (
Ragnar Erling Hermannsson er nú er vistaður í fangabúðum í Brasilíu fyrir tilraun til að smygla inn fíkniefnum. Ragnar er að mínu viti lítið annað en eitt fórnarlambið enn í stríðinu gegn fíkniefnum. Ég finn til með því fólki sem hefur tjáð sig í fjölmiðlum undanfarið og lýst því glaðhlakkalega yfir að maðurinn eigi þetta skilið. Staðreyndin er sú að þeir sem lenda í steininum (eða í fangabúðum út í heimi) fyrir brot af þessu tagi eru oftar en ekki fórnarlömb aðstæðna. Einstaklingar sem hafa misstigið sig á lífsleiðinni en ekki svívirðilegir glæpamenn. Harðlínustefna í fíkniefnamálum er lítið annað en fróun góðborgara sem telja sig getað bjargað heiminum með refsivendinum einum saman. Það er nefnilega einfaldara að refsa og fordæma en að ráðast að raunverulegum orsökum vandans og horfast í augu við eigið getuleysi.
Úr greininni „Réttlætanlegt stríð en barist á röngum vígstöðum“
„Refsienglar samfélagsins sem telja sig geta skapað himnaríki á jörð með boðum og bönnum hafa ekki aðeins rangt fyrir sér, heldur eru þeir einnig hættulegir. Refsistefna þeirra veldur ómældri óhamingju og skaðar fjölmarga óbreytta borgara og gerir oft líf þeirra sem þeir telja sig vera að vernda enn verra. Það sem meira er, þá draga þeir athyglina frá raunverulegum orsökum vandans.
Vímuefnavandinn er fyrst og fremst heilbrigðisvandi sem orsakast af ýmsum félagslegum vandamálum. Félagsleg vandamál verða ekki leyst með boðum og bönnum heldur með markvissum og yfirveguðum aðgerðum.“
Svo ég verði ekki settur í skammarkrókinn þá ítreka ég hér þá skoðun mína að misnotkun vímuefna er alvarlegt vandamál sem ekki má gera lítið úr. Það breytir því þó ekki að harðlínustefna gegn fíkniefnum bjargar engum heldur gerir illt verra. Stríðið gegn fíkniefnum hefur, rétt eins og önnur stríð, í för með sér ómælda óhamingju og fórn á saklausum borgurum og þeim sem minna mega sín.
Auðvitað verður fólk að taka ábyrgð á eigin gjörðum en enginn á skilið að vera vistaður í ómannúðlegum og yfirfullum fangabúðum. Ég hvet því íslensk stjórnvöld til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma Íslendingum sem búa við slíkar aðstæður til bjargar. Það er beinlínis skylda þeirra sem bera virðingu fyrir mannréttindum.
Hver er þín skoðun?
8 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hæ Siggi.
Ég tek algjörlega undir þín skrif um þetta mál. Mér finnst bara sorglegt að svona fangelsi skuli fá að starfa yfir höfuð.
Bestu kveðjur til þín.
Fórnalamb? Hann valdi þessa leið sjálfur. Ég veit að þetta fangelsi er slæmt en hann vissi að þessu en gerði það samt vegna honum var ýtt til þess. Það er hægt að fara aðra leið. Að mínu mati á hann skilið að vera refsað fyrir þetta…OG þeim sem skipulögðu þetta!
Menn gera oft heimskulega hluti og verða auðvitað að taka ábyrgð á því. Það er þó mikil einföldun að halda því fram að Ragnar, og aðrir, séu ótýndir glæpamenn sem eiga skilið að lenda í fangabúðum. Þú skrifar annars staðar um einelti. Margir sem verða háðir vímugjöfum hafa þolað einelti. Margir sem stunda einelti búa við erfiðar heimilisaðstæður. Það er auðvelt að fordæma og refsa. Það er erfiðara að hugsa heildrænt um hlutina og berjast við rót vandans.
Getur maður ekki verið fórnarlamb án þess að vera sviptur öllum valkostum? Ef þér eruð settir settir þessir afarkostir: að vera tekinn af lífi eða að fara og valda öðrum eignatjóni, þá velur þú að öllum líkindum síðari kostinn þótt slæmur sé. Í þessu tilfelli er augljóst að þú getur framið glæp á sama tíma verið fórnarlamb. Það er mjög algengt að konur leiðist út í vændi vegna slæmra aðstæðna, þær fremja lögbrot en eru í senn almennt álitnar fórnarlömb aðstæðna. Það er því nokkuð ljóst að þótt svo fólk hafi val er ekki þar með sagt að það geti ekki verið fórnarlamb.
Við vitum ekki nákvæmlega hver atburðarrásinn var, sem leiddi til þess að Ragnar endaði í fangelsi, því er ósanngjarnt að gefa sér að hann geti ekki verið fórnarlamb. Hann ætti að njóta vafans.
Annars efast ég um að refsing geri slíkum einstaklingum gagn. Þeir þurfa á hjálp að halda. Að brjóta þá frekar niður í fangabúðum er eingöngu til þess fallið að búa til harðvítugri og hættulegri glæpamenn. Að auki er fíkniefnalöggjöfinn stórfenglega gölluð og það er ljóst að hún virkar ekki.
Hann er ekkert fórnarlamb. Hann valdi þessa leið sjálfur og vissi alveg út í hvað hann var að fara. Hann vissi að hann ætti í hættu á að fara í fangelsi og gerði þetta samt. Svona ræflar eiga að fá að dúsa inni á LANGAN tíma. Þetta er með því heimskulegasta sem hver manneskja getur gert og hann á bara að líða fyrir það sem hann gerði. Það er ekkert nýtt að maður uppskerir því sem maður sáir, og þannig er það!
Ég er þér hjartanlega sammála Sigurður, ég trúi ekki á refsivist. Nú hefur móðir mín unnið við fangelski í yfir áratug og það hefur sýnt sig að menn fá ekki lausn við sínum vanda með því að vera stungið inn. Og ég þekki líka Ragga persónulega og veit að þetta er rosalega góður drengur sem hefur átt við vímuefnavanda að etja.
Ég get ekki orða bundist. Hvernig getur einhver átt skilið að rotna í helvíti, þó hann hafi misstigið sig hrapalega. Þessi maður er bara „litli drengurinn“ einhvers sem man eftir honum að slíta barnsskónum. Svo er líka annað sem ég vil benda á. Við erum með framsalssamning við lönd sem eru með ágætis fangelsi eins og norðurlöndin … eigum við ekki einmitt frekar að vera með framsalssamninga við lönd sem eru ekki þekkt fyrir að virða mannréttindi fólks??
„eigum við ekki einmitt frekar að vera með framsalssamninga við lönd sem eru ekki þekkt fyrir að virða mannréttindi fólks?“
Jú maður hefði haldið það. Reyndar teldi ég aldrei réttmætt að framselja brasilískan mann sem fremur afbrot hér á landi ef vitað er að sá hinn sami verður settur í hálfgerðar fangabúðir.