Stuðningsyfirlýsing


Ég hvet kjósendur Samfylkingarinnar til að fjölmenna á prófkjör til að kjósa Jón Baldvin Hannibalsson og Pétur Tyrfingsson og tryggja þeim þannig þingsæti. Þetta eru báðir „no bullshit“ frambjóðendur sem eru með skýra stefnu og eiga auðvelt með að tjá skoðanir sínar.

Ég hef aldrei geta leynt aðdáun minni (t.d. III) á Jóni Baldvini og er ég sannfærður um að hann myndi gera þjóðinni gott ef hann kæmist á þing. Enginn hefur útskýrt gildi jafnaðarstefnunnar betur en Jón Baldvin að mínu mati.

Pétur Tyrfingsson hefur verið duglegur að halda uppi gagnrýnni umræðu um heilbrigðismál  (I) og jafnaðarstefnuna. Það besta við hann er að hann er ekki að þykjast vera einhver pólitíkus. Hann segir einfaldlega það sem honum finnst. Vonandi heldur hann því áfram.

Fyrir utan að vera með hugmyndafræðina á hreinu eru Jón Baldvin og Pétur líka þeim kostum gæddir að þeir eru báðir frjálslyndir. Þeir eru ekki fyrir óþarfa boð og bönn.

Auðvitað styð ég fleiri einstaklinga en þessa menn í komandi prófkjöri. Ég vil einfaldlega opinbera stuðning minn sérstaklega við þessa menn því það hefur lengi verið skortur á frjálslyndum jafnaðarmönnum í íslenskum stjórnmálum. Ég hvet því alla frjálslynda jafnaðarmenn til að koma þessum ágætu mönnum að.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


2 athugasemdir

  1. Pétur Tyrfingsson er bara afdankaður kommúnisti sem lítið hefur lært á langri ævi þó hann geri sitt besta til að leyna því.

    Nú hefur kallgreyið gripið til þess ráðs að ritskoða komment á bloggi sínu til þess að einginn geti nú komið upp um hann…

  2. Þér er frjálst að rökstyðja fullyrðingar (eða öllu heldur uppnefningar) þínar hér. Þær verða ekki ritskoðaðar.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.