Þursaflokkurinn – gæða prog rokk


Fór á vægast sagt stórkostlega tónleika í gær með Þursaflokknum en tónleikarnir voru haldnir á Græna Hattinum hér á Akureyri. Fyrir tónleikana hafði ég lítið hlustað á Þursana, aðeins heyrt eitt og eitt lag í útvarpinu. Það kom mér því á óvart hversu þrusugott band þetta er. Þursarnir spila gæða progressive rokk sem um margt minnir á Dream Theater. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að Dream Theater væru undir áhrifum Þursanna.

Mæli eindregið með Þursatónleikum fyrir þá sem hafa gaman af progressive rokki.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


2 athugasemdir

  1. Þursarnir líkir Dream theater? ertu að grínast eða er þér fyllsta alvara?

  2. Mér er fyllsta alvara. Hef hlustað lengi á DT og á tónleikum með Þursunum heyrði ég margt sem var keimlíkt.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.