Vísindakennsla fyrir hægrimenn


Hvernig stendur á því að margir hægrimenn virðast eiga erfitt með að fara rétt með vísindalegar staðreyndir og eiga almennt erfitt með að ræða um vísindaleg málefni? Í gær bullaði Hannes Hólmsteinn, prófessor við Háskóla Íslands, um hnattræna hlýnun í fjölmiðlum og í dag kyrja lærisveinar hans í kór á svipuðum nótum. Þannig sjá menn eins og Sigurður Kári, alþingismaður, Andrés Magnússon, fjölmiðlamaður og Gísli Freyr, íhaldspenni, allir ástæðu til að benda á að það snjóaði á meðan Al Gore hélt ræðu sína í gær. Gefa þeir allir í skyn að kenningin um hnattræna hlýnun hljóti að standa á brauðfótum þar sem enn snjóar á Íslandi.

Andrés Magnússon segir:

„Hvarvetna sem hann [Al Gore] kemur og opnar munninn virðast náttúruöflin eða almættið keppast við að afsanna tilgátur hans og málflutning.“

Sigurður Kári segir:

„Snjóþyngsli hér á Íslandi þennan veturinn hafa verið með mesta móti. Öll skíðasvæði standa landsmönnum opin og Austfirðingar eru meira að segja farnir að kvarta undan of miklum snjó.

Ég var sjálfur í París nú um helgina og þar sjóaði á sunnudaginn.

Og er það ekki kaldhæðni örlaganna að nú að kvöldi þess dags sem Al Gore hélt fyrirlestur sinn um hlýnun jarðar í Háskólabíói snjóar sem aldrei fyrr hér í Vesturbænum?“

Þessir menn tala allir eins og þeir hafi ekki hundsvit á vísindum og vísindalegum vinnubrögðum. Einstaka snjókoma hér og þar hefur vitaskuld ekkert með hnattræna hlýnun að gera. Endurteknar mælingar yfir mjög langt tímabil sýna svo ekki sé um villst að hitastig Jarðar fer hækkandi. Margt bendir til þess að hluti af þessari hækkun sé af mannavöldum. Afleiðingar hlýnunar geta verið mjög alvarlegar. Ótrúlegt en satt þá mun einstaka snjókoma á Íslandi breyta neinu um staðreyndir málsins.

Ég hvet hægrimenn til að kynna sér málin betur áður en þær fjalla um þau á opinberum vettvangi. Á þetta sérstaklega við um þingmenn og ráðamenn þjóðarinnar. Það hlýtur að teljast eðlileg krafa að þeir sem stjórna landi okkar hafi lágmarksþekkingu á vísindalegum vinnubrögðum og hvernig eigi að lesa út úr vísindalegum gögnum. Fáfræði í þeim efnum er stórhættuleg.

p.s. Athygli vekur að Sigurður Kári, sem talar af mikilli vanþekkingu um vísindaleg málefni er hvorki meira né minna en formaður menntamálanefndar alþingis. Réttur maður á réttum stað?

Efnisorð: ,


5 athugasemdir

  1. Þessir menn hafa einmitt ekki hundsvit á vísindum og vísindalegum vinnubrögðum. Enginn þeirra hefur nokkru sinni komið nálægt vísindum. Mér finnst bara skandall að þessir menn séu kallaðir til sem álitsgjafar um þessi málefni. Hvað gengur fjölmiðlafólk eiginlega til? Þar fyrir utan fá þessir menn bara að masa án þess að þeir séu látnir færa almennileg rök fyrir málinu.
    Nú er ég að læra jarðfræði í HÍ. Hér er fjöldi prófessora sem hafa kynnt sér þessi mál og stunda einmitt rannsóknir þessu tengdu. Hvers vegna eru þeir aldrei nokkurn tímann kallaðir í viðtöl?

  2. Þessi vitleysa er víða, maður sér þetta mest á Moggablogginu. „Já, það snjóaði í gær mar, þannig að það er engin hnattræn hlýnun í gangi“. Ég gæti rifið í skegg mér af pirring ef ég hefði það.

  3. Ég held að það sé ekki óvarlegt álykta sem svo að með þessum grínrökum – um kuldann sem fylgi Gore, „óvænta“ snjókomu í apríl á Íslandi etc. – séu „afneitunarsinnarnir“ að reyna að halda andliti í umræðunni um leið og þeir hárfínt gefa í skyn viðurkenningu á málefnalegum veikleika afstöðu sinnar með því að slá á létta strengi og slá þessu öllu saman upp í grín. Fyrir utan náttúrulega HHG, sem líkt og fyrri daginn lætur pólitísk sjónarmið byrgja sér sýn yfir staðreyndir málsins.

  4. Það gott þú hvetur hægri menn til að kynna sér málin betur. Vinstri menn kynna sér málin yfirleitt mjög vel. En ekki hægri menn. Tími til að þetta breytist…

  5. Það eru nú ekki allir hægrimenn „global warming deniers“. T.d. er David Cameron mikill „alarmisti“, formaður breska íhaldsflokksins.

    Það er einkennilegt ef að menn eru að reyna að segja að ekki sé að hlýna. Flestir talsmenn þeirra sem efast um hlýnun jarðar, vita vel að á jörðinni sé að hlýna, en reyna að halda því fram að ekki sé manninum og hans athöfnum um að kenna, nema í mesta lagi að svo litlu leyti að það taki því varla að tala um það.

    En Sigurgeir Þór, hægri menn eru ekkert lakari við að kynna sér málin en vinstri menn. Þetta er bara einstaklingsbundið. Mér finnst stundum vinsti upp til hópa illa upplýstir, einfaldlega vegna þess að þeir eru ekki sammála mér!  

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.