Conversations with Carl Sagan


Nýverið lauk ég við að lesa bókina Conversations with Carl Sagan sem, eins og nafnið gefur til kynna, er samansafn af viðtölum við þennan þekktasta vísindamann seinni ára. Carl Sagan lést árið 1996 og er þessi bók gefin út tíu árum eftir fráfall hans. Viðtölin í bókinni eru í tímaröð. Það fyrsta er tekið 1973 og það seinasta árið sem Sagan lést. Aðdáendur Sagan ætti ekki að láta þessa bók fram hjá sér fara. Það er einstök upplifun að lesa um hugmyndir Sagan um lífið, tilveruna, vísindi og trúna.

„The progess of science is littered with dead theories; they were maladapted.“ – Carl Sagan

Hér fyrir neðan er hægt að sjá upptöku af síðasta viðtalinu sem tekið var við Sagan og er einnig að finna í bókinni:

Vídeó 1/3

Vídeó 2/3

Vídeó 3/3

Hver er þín skoðun?



2 athugasemdir

  1. Þetta er einmitt frábær bók, sammála því. Nýlega kom út önnur bók sem er ekki síðri en það er The Varieties of Scientific Experience: A Personal View of the Search for God. Er að lesa hana núna og hún er frábær eins og reyndar allar bækurnar hans. Hvet þig til að kíkja á hana.

  2. Frábært. Ég er nefnilega sjálfur nýbúinn að lesa þá bók. Hún er mögnuð. Reyndar betri en þessi sem ég fjalla um hér. Umfjöllun um hana verður sett inn á Skoðun fljótlega :)

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.