Að horfa ekki á konu í heitum potti
Dagsetning: 28. mars 2008 - Föstudagur
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hæðni, Klámvæðing
Viðbrögð: Ummæli ( )
9 athugasemdir
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hæðni, Klámvæðing
Viðbrögð: Ummæli (
Femínistum misbýður víst ný auglýsing frá líkamsræktarstöðinni Hreyfingu, og segja þær auglýsinguna vera „afbragðsdæmi um staðalmyndir kynjanna“. Í þessari hneykslanlegu auglýsingu sést maður sitja í heitum potti horfa á konu fara ofan í sama pott. Oj bara. Hér verður augljóslega eitthvað að banna.
Ég verð að viðurkenna að ég hef stundum lent í þessari vandræðalegu aðstöðu. Ég hef setið í heitum potti þegar kona í bikiníi hefur skyndilega birst, án nokkurrar viðvörunar, og gengið í átt að pottinum. Þegar þetta hefur komið fyrir hef ég yfirleitt lokað strax augunum og kallað kröftuglega „vík burt Satan“. Þetta virkar oftast því þær hlaupa allar í burtu. Nema kærasta mín, hún er orðin vön þessum viðbrögðum – Guð blessi hana.
Hver er þín skoðun?
Efnisorð: Hæðni, Klámvæðing
Þessi færsla var sett inn á vefinn þann 28. mars 2008 og skráð í flokkinn: Hugsað upphátt.
Þú getur skrifað athugasemd þína hér.
9 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hvernig geturðu vísað til einnar manneskju í fleirtölu?
Geri ég það? Þær eru a.m.k. tvær samkvæmt blogginu sem ég vísa til
Var konan sem hringdi í Sóleyju semsagt femínisti?
Ég ætla að leyfa mér að draga þá glæfralegu ályktun. Annars er ég sjálfur femínisti, bara ekki SVONA femínisti.
Nú þannig að þú varst að tala um sjálfan þig.
Nei ég var að tala um femínista sem láta umrædda tegund auglýsinga misbjóða sér. Var það ekki augljóst?
Nei, af því að þú talaðir bara um femínista almennt, eins og þú værir að meina þá alla.
Það er óheppilegt. Ég vísaði einmitt í ákveðið blogg til að það færi ekki á milli mála hvaða femínistar væru til umræðu.
leiðindar umræða XD