Hugsjónalausir herkænskutilburðir


Það hefur verið sorglegt að fylgjast með borgarpólitíkinni síðustu daga. Borgarstjórnarfulltrúar hegða sér frekar eins og menntaskólanördar að spila diplomacy en ekki eins og fullorðið fólk í stjórnmálum. Eins og nördarnir sem lesa þetta vita er diplomacy gamall herkænskuleikur sem gengur meðal annars út á það að semja bandalög í bakherbergjum og stinga mótherja sína svo í bakið. Ég var einu sinni nörd og spilaði þennan leik með vinum (og þótti ekki sérlega góður í honum ef ég man rétt).

Því miður er pólitíkin uppfull af fólki sem lítur á stjórnmálin sem leik. Markmiðið, eins og í öðrum leikjum, er að vinna og þá skiptir aðferðin ekki alltaf máli. Í pólitík verður maður að vera duglegur að stinga aðra í bakið en komast um leið hjá því að finna sjálfur of mikið til á milli herðablaðanna. Hugsjónir láta oftast í minni pokann fyrir herkænsku í þessum leik og virðast margir leikmenn í raun alls ekki hafa áhuga á hugmyndafræði. Það er af þessum ástæðum sem mikið af hugmyndaríku og heiðarlegu hugsjónafólki nennir ekki að starfa í pólitík.

Hugsjónalausir herkænskutilburðir sjálfstæðismanna og læknisins undanfarna daga eru ekki til þess fallnir að kveikja áhuga hugsjónafólks á stjórnmálum. Borgarstjórnarfarsinn sýnir enn og aftur að pólitík snýst fyrst og fremst um völd og metnað en ekki um einlægan áhuga um að bæta samfélagið.

Hver er þín skoðun?



1 athugasemd

  1. Það var enginn stunginn í bakið við þessi skipti og þau fóru mun siðsamlegar fram en hin síðustu.

    Sjálfstæðisflokkur þurfti bara einn fulltrúa enn til að ná meirihluta í borgarstjórn (og þannig séð er mjög óeðlilegt að sjá flokk sem nýtur jafn mikils trausts í minnihluta í stjórnmálum). Og einn fulltrúa greip hann sér þegar kjörinn 1. maður á lista Frjálslyndra snéri aftur og fannst ekki nóg hafa verið hlúð að stefnumálum flokksins undir stjórn Íslandshr.. nei, Samfylkingarkonunnar Margrétar Sverrisdóttur.
    Það besta við alltsaman er að við fráhvarf Björns Inga losnaði um trúnaðarbrestinn milli Framsóknar og D, þannig að lítið virðist standa í vegi fyrir því að þeir verði teknir líka upp á arminn og hinn gamli meirihluti snúinn aftur sterkari en nokkrusinni með rúmlega 59% kjörfylgi.

    Hegðun fylgismanna síðasta meirihluta undanfarna daga hefur verið til hreinustu skammar. Ótækt að fólk sé að veitast að kjörnum fulltrúum borgarinnar á jafn löðurmannlegan máta og sjá hefur mátt. Jafnvel enn ótækara að ákveðnir borgarfulltrúar leggi blessun sína yfir þessi skrílslæti.

    Meirihlutinn sem var að falla frá störfum var heldur ekki að standa sig sem skildi ef ofan í það er farið. Málefnasamningur var enginn og það eina sem þau gerðu virkilega (annað en að taka heiðurinn af því sem gamla starfið hafði hafið, lausaíbúðirnar fyrir útigangsfólk og fleira) var að “leysa” REI-málið svokallaða, sem tók þau alla þá rúmlega 100 daga sem þau höfðu til.

    Við sjáum þá allavega Sjálfstæðisflokk koma hlutunum í verk, enda ekki annað til siðs.

    D. Gunnar

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.