Útúrsnúningur og áróður


Umræðan síðustu daga um Siðmennt og meint stefnumál félagsins hefur verið ótrúleg. Þrátt fyrir ítrekaðar leiðréttingar halda launaðir þjónar kirkjunnar áfram að snúa út úr orðum Siðmenntarmanna. Það er allt að verða vitlaust í bloggheiminum út af þeirri einföldu kröfu Siðmenntar ríkið sé hlutlaust í trúmálum.

Ég hvet lesendur sérstaklega til að lesa eftirfarandi guðfræðingablogg (Athugið að mikilvægt er að lesa andsvörin sem birtast í athugasemdakerfum líka. Það er mikið reynt til að snúa út úr málflutningi okkar í sjálfum greinunum).


1) Stefán Einar Stefánsson, guðfræðinemi, er þekktur fyrir að vera með miklar yfirlýsingar sem oft eru innistæðulausar.

Sjá sérstaklega:
Hrunadans Siðmenntar

Varaformaður Siðmenntar og litlu jólin

Áhugavert líka að skoða fyrri samskipti mín við guðfræðinemann hér:

Mótmælandi Íslands

2) Svavar Alferð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, fer á kostum í umræðum sínum um Siðmennt. Hann nær nýjum hæðum í útúrsnúningi sínum í greininni:

Siðmennt???
(Hér er einstaklega mikilvægt að skoða andsvör mín)

3) Annall.is er guðfræðiblogg þar sem nokkrir guðfræðingar koma saman og ræða ýmis mál. Áhugaverð síða þar sem oft er að finna ágætis pistla. Umræðan um málefni síðustu daga er nokkur þarna. Sjá:

Annáll.is

Hver er þín skoðun?



3 athugasemdir

  1. Þið hafið staðið ykkur einstaklega vel síðustu daga, enda ekki við öðru að búast.

    Baráttukveðjur

    María

  2. Bara að senda baráttukveðjur til ykkar allra í Siðmennt

    Ég sá viðtalið við Hope í DV í vikunni og ég á ekki orð. Þetta er sorglegra en tali tekur. Ég bið að heilsa öllum og gangi ykkur vel í þessari hrikalegu öfgaumræðu!

  3. Ég veit ekki betur en að siðmennt sé ágæt viðbót, til að uppfræða ungmenni í góðu og réttlátu líferni. Og munu verða þarna til, eins gagnlegir og góðir þegnar þjóðfélagsins eins og þeir sem aðhyllast einhver trúfélög landsins.
    Svartir sauðir eru ekki bundnir neinni sértakri trú eða trúleysi.
    Að segja að Hope Knutsson eigi að snúa til Bandaríkjanna aftur, er ekki rasismi heldur heimska.
    Á að reka alla Íslandinga heim, þá sem búsettir eru utanlands, vegna þjóðernis þeirra.
    Ætli okkur yrði ekki misboðið sem einsaklingum og Þjóð ?

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.