Kannski er kattargreyið með smitandi sjúkdóm?
Dagsetning: 26. júlí 2007 - Fimmtudagur
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Gagnrýnin hugsun, Hæðni
Viðbrögð: Ummæli ( )
3 athugasemdir
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Gagnrýnin hugsun, Hæðni
Viðbrögð: Ummæli (
Á Eyjunni.is er vitnað í frétt um kött sem að „veit“ hvenær fólk á hjúkrunarheimili mun deyja.
„Ef hann hjúfrar sig við rúm sjúklings á hjúkrunarheimilinu þar sem hann hefur búið síðan hann var kettlingur er sá sjúklingur venjulega dáinn innan fjögurra klukkutíma.”
Væri ekki skynsamlegra að fjarlægja kvikindið af hjúkrunarheimilinu en að dást að meintum skyggnigáfum hans? Kattargreyið þjáist örugglega af bráðsmitandi sjúkdómi.
Sjá nánar:
Kötturinn Óskar veit hvenær sjúklingar eru að deyja
(eyjan.is)
Hver er þín skoðun?
Efnisorð: Gagnrýnin hugsun, Hæðni
Þessi færsla var sett inn á vefinn þann 26. júlí 2007 og skráð í flokkinn: Hugsað upphátt.
3 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Er það nú ekkisens rugl. Kettir á Íslandi eru lausir við sjúkdóma sem geta dregið fólk til dauða. Reyndar veit ég ekki hvort kattafár getur hugsanlega smitast og dregið gamalt og veikt fólk til dauða en það er ólíklegt að það sé skýringin. Í fyrsta lagi eru kettir bólusettir við því hér á landi og í öðru lagi sést það yfirleitt á þeim ef þeir eru veikir af kattafári.
Úps.. ég sé núna að þetta er víst breskur köttur. En það er sama. Líkurnar á því að hann sé með kattafár eða hundaæði (sem getur herjað á ketti jafnt sem menn) eru hverfandi.
Þetta er bara tilviljun og ekkert annað.
Auðvitað er þetta bara tilviljun