Femínisti = manneskja – húmor ?
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hæðni, Pólitísk einvígi
Viðbrögð: Ummæli (
Stundum held ég að „róttækir“ femínistar séu einstaklingar sem hafa látið fjarlægja úr sér húmorskirtilinn. Sem dæmi sá fyrrverandi talskoma Femínistafélasins sig knúna í dag til að mása og blása yfir því að manni frá Grundafirði hefði hlotnast sá „heiður“ að vera krýndur karlremba ársins. Af viðtali við þennan mann að dæma (á Rás 1) er augljóst að um húmor er að ræða. Femínistanum var þó ekki skemmt:
„Hins vegar dettur fólki í hug að verðlauna þann sem hatar konur mest, sýnir mestu kvenfyrirlitninguna og lítur á konur sem annars flokks. Það er samþykkt í okkar samfélagi.”
Í fordómum sínum og bræði sakar hún mann sem hún þekkir ekki neitt um að hata konur. Hvorki meira né minna. Það er svona ofstækisfullur talsmáti sem skaðar eðlilegar kröfur um jafnrétti og „bræðralag“.
Það er ekki úr vegi að enda þessa hugleiðingu á því að vitna í slagorðið sem er að finna á vefsíðu umrædds femínista: „Hugsaðu… svo lífið verði ekki súrt“.
Sjá nánar:
Mesta karlremban verlaunuð
Viðtal við „karlrembu ársins“ á Rás 1
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?