Hver er munurinn á barnaníðingum og klámframleiðendum?


Ef marka má ummæli sumra femínista, stjórnmálamanna og annarra góðborgara er enginn, eða í að minnsta lítill, munur á barnaníðingum og nauðgurum annars vegar og klámframleiðendum hins vegar. Þar með hafa þessir aðilar gert lítið úr því alvarlega ofbeldi sem felst í barnaníðingshætti og öðrum kynferðisafbrotum.

Nú er mér slétt sama hvort klámframleiðendur koma í skemmtiferð til Íslands eða ekki og því tapa ég litlum svefni yfir því að fyrirhuguð klámráðstefna hér á landi hafi verið blásin af. Ég hef þó töluverðar áhyggur af því þegar stór hópur fólks sér ekki muninn kynlífi, nekt, erótík og klámi annars vegar og kláru ofbeldi hins vegar.


Það að neyða einstaklinga til kynlífsathafna er siðleysi og glæpur. Það að nýta sér varnarleysi fólks sem á við andleg vandamál að stríða í kynferðislegum tilgangi er viðurstyggð. Að nota börn í kynferðislegum tilgangi er að sama skapi viðbjóður. Um þetta eru væntanlega allir sammála.

Það er hins vegar ekkert að því að fullorðnir og sjálfráða einstaklingar framleiði erótískt efni (klám), þ.e. stundi kynlíf með jafnokum sínum fyrir framan myndavél. Það skiptir engu máli hversu ógeðfellt mér eða öðrum kann að þykja slíkt efni. Fullorðið fólk hefur umráðarétt yfir eigin líkama.

Þegar sjálfskipaðir siðgæðisverðir setja blákalt samansem merki milli kláms og barnaníðingsháttar eru þeir ekki aðeins að tala gegn betri vitund, heldur einnig að gera lítið úr alvarlegustu glæpum sem fyrirfinnast í okkar samfélagi. Vonandi hafa þessir aðilar það í huga í framtíðinni.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.