Opinberi meðferðarfulltrúinn Jesús


Þessi grein var einnig birt í Fréttablaðinu 19. janúar 2007

Það virðist margt hafa verið athugavert við starfsemi Byrgisins sáluga. Fjölmiðlar hafa verið duglegir að benda á meinta fjármálaóreiðu og kynferðislega misnotkun sem auðvitað er viðurstyggileg. Færri hafa hins vegar bent á hversu óeðlilegt það er að ríkið ausi fjármunum í trúarlega meðferðarstarfsemi. Engum dettur í hug að leggja til að ríkið styrki kristilega krabbameinsmeðferð eða tannlæknastofu Votta Jehóva, þar sem „fagaðilar“ eru prestar og forstöðumenn, en ekki læknar. Hvers vegna virðist öllum þá vera sama um að almennir skattgreiðendur séu látnir borga undir áfengis- og fíkniefnameðferð sem byggir á bókstafstrúarlegum forsendum?


Nú þegar Byrginu hefur verið lokað tilkynnir félagsmálaráðherra að kristilega meðferðarheimilið Samhjálp eigi að taka við skjólstæðingum Byrgisins. Hverjir borga? Jú að miklu leiti við, skattgreiðendurnir. Hvers vegna er hið opinbera að borga undir öll þessi trúarlegu meðferðarheimili? Er skortur á sálfræðingum, læknum, félagsráðgjöfum, iðjuþjálfum og öðru menntuðu fagfólki? Skýtur það ekki skökku við að á meðan yfirvöld neita að greiða niður þjónustu fagmanna eins og sálfræðinga reka þau trúarleg meðferðarheimili í stórum stíl?

Ef vefsíða Samhjálpar er skoðuð er hægt að finna fjölmargar greinar um Guð og Jesú, en nánast ekkert um læknisfræðilega nálgun á áfengis- og fíkniefnavandanum. Hjá Samhjálp eru prestar og forstöðumenn hvítasunnusafnaða reglulegir gestir á meðan læknar og annað fagfólk eru sjaldséðir fuglar.

Það getur ekki verið í lagi að hið opinbera, sem á að veita þjónustu fyrir alla óháð trúarskoðun, skuli borga undir meðferðaheimili eins og Samhjálp þar sem forstöðumaðurinn segir „Frelsið er gjöf til allra manna, gjöf sem við getum ekki öðlast fyrir verk, aðeins fyrir trú á Jesúm Krist.” Með öðrum orðum getum við samkvæmt Samhjálp aðeins losnað undan fíkn með því að trúa á kristna guðinn Jesú. Það skiptir litlu hvað menn gera, svo lengi sem þeir trúa á Jesú verður allt í lagi. Enn fremur segir forstöðumaðurinn skjólstæðingum sínum reglulega að syndgi þeir muni þeir deyja, ef þeir trúa á Jesú Krist muni þeir hins vegar öðlast eilíft líf. Um þetta er fjallað aftur og aftur á vefsíðu Samhjálpar. Ég mótmæli því harðlega að skattpeningar mínir séu notaði í svo augljóst trúboð.

Rökin fyrir stuðningi hins opinbera við trúarleg samtök sem þessi eru oft þau helst að það vanti úrræði fyrir fíkla og alkahólista og því eigi að styðja vel við „frjáls félagasamtök“. Þvílík vitleysa. Auðveldlega væri hægt verja peningum skattgreiðenda í fagleg meðferðarúrræði í staðinn, en yfirvöld kjósa að gera það ekki. Er ekki kominn tími til að taka Jesú út af launaskrá hins opinbera og forgangsraða í þágu skjólstæðinga?

Sigurður Hólm Gunnarsson
Höfundur er varaformaður Siðmenntar og nemandi í iðjuþjálfun við HA

Hver er þín skoðun?



12 athugasemdir

  1. Sæll Sigurður mig langar að ræða við þig um nokkra þætti sem þú minnist á í grein þinni. Það fyrsta sem mig langar til að benda á er að hin gullna lausn í úrræðum ríkisins gangvart áfengis og vímuefna vandamálum er ekki til. Það sem virkar fyrir mig er ekki víst að virki fyrir þig. Við hljótum að geta verið sammála um það að árangurinn ætti að vera það sem skiptir máli, en ekki sú leið sem hver og einn ákveður af sínum frjálsa vilja að taka til þess að ná settum
    árangri. Að hljálpa fólki til þess að losna við böl áfengis og
    vímuefna og að verða virkir þegnar í samfélaginu hlýtur að teljast vera það markmið sem allar meðferðir reyna að ná. Ríkið hefur farið ýmsar leiðir til þess að berjast við þennan vanda. Af þeim fjármunum sem ríkið setur til áfengis og vímuefna mála fer lang stærstur hluti til „fagaðila“ sem starfa hjá SÁÁ. Aðeins lítill hluti þeirra fjármuna sem ríkið setur til áfengis og vímefna mála fer í trúarlega meðferðarstarfsemi. Vert er að benda á það að 12 spora áætlun sem SÁÁ byggir mikið á, er einmitt byggt á trúarlegum grunni (leytað er til æðri máttar). Þetta er fyrstu þrjú skrefin í 12 spora áætluninni:

    1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
    2. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
    3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá
    Guðs,samkvæmt skilningi okkar á honum.

    12 Sporaáætlunin er líklega árangurmesta aðferðin sem fundin hefur verið upp til að hjálpa fólki að takast á við hin ýmsu vímuefni. 12 spora áætlunin var byggð á kristilegum gildum til þess að takast á við vanda sem er í senn félagslegur, líkamlegur og andlegur. Aðrar stofnanir sem byggt hafa starfsemi sína á trúarlegum grunni hafa
    einnig gert margt gott og náð góðum árangri í starfi sínu.

    Landakotsspítali var um margra ára skeið rekinn af fólki sem var kaþólskrar trúar, St. Jósefsspítala í Hafnarfirði var stofnaður af St. Jósefssystrum á trúarlegum grunni.

    Mér finnst ekki sambærilegt að líkja tannlækningum við áfengis og vímuefna meðferðir þar sem sjúklingar tannlækna leita til þeirra með vandamál sem eru nær einungis líkamlegs eðlis, en ekki andleg eða félagsleg. Hjá Samhjálp starfa aðilar sem eru sérmenntaðir á sínu sviði. Þar starfa félagsfræðingar, læknar, ráðgjafar og leitað er til
    geðlækna og sálfræðinga þegar það á við.

    Umfjöllun þín um Samhjálp ber vott um mikla einföldun og misskilning. Í siðareglum Samhjálparsegir m.a.: „Ég mun hvetja til þeirra breytinga í lífi sjúklinga minna sem stuðlað geta að bata. Að öðru leiti mun ég ekki hvetja þá til að
    tileinka sér viðhorf eða hegðun sem fremur er sprottin af
    lífsviðhorfum og verðmætamati mínu en þeirra“. Það er enginn neyddur til þess að breyta lífsviðhorfum sínum eða gera eitthvað sem þeir vilja ekki gera. Trúin er valmöguleiki sem boðin er uppá en ekki skilda.

    Samhjálp rekur tvö stuðningsheimili, kaffistofu þar sem heimililausir geta fengið sér að borða á hverjum degi (enginn annar aðili býður uppá sambærilega þjónustu), áfangaheimili og meðferðarheimili svo eitthvað sé nefnt. Yfir 60% þeirra sem voru í stoðbýli Samhjálpar árin 2003 og 2004 voru ennþá edrú ári síðar. Að mínu mati væri skynsamlegra að
    skoða árangur hinna ýmsu meðferðarstofnanna í stað þess að gagnrýna á hvaða grunni slíkar stofnanir eru byggðar.

    Að lokum vil ég benda á það að ég er sammála þér að Byrgis málið hafi verið klúður og mikilvægt er að Ríkið hafi betra eftirlit með þeim stofnunum sem þeir styrkja. Mikilvægt er þó að setja ekki öll meðferðarheimili sem byggja á trúarlegum grunni undir sama hatt þó svo að einn aðili hafi klúðrað sínum málum.

  2. Sæll Styrmir.
    Afstaða mín í þessu máli er skýr.

    1) Hið opinbera á ekki að eyða pening skattgreiðenda í trúarlega meðferðarstarfsemi.

    2) 12 spora áætlun AA samtakanna er kjánaleg og hún virkar EKKI betur en aðferðir sem eru lausar við vísun í trúarlegan þvætting. Það er að auk þess út í hött að segja við fólk að það geti ekki náð stjórn á eigin lífi. Það á þvert á móti að kenna fólki að bera ábyrgð á eigin lífi og gjörðum.

    3) Árangur er ekki bara það sem skipti máli. Segjum sem svo að Byrgið hafi náð sama árangri og SÁÁ þá er það samt siðlaust að troða bókstafstrú inná andlega veikt fólk og það er út í hött að ríkið sé að styrkja slíkt grímulaust trúboð.

    4) Svo það sé tekið skýrt fram er ég ekki á móti því að trúað fólk taki þátt í meðferðarstarfi sem hið opinbera styrkir. Ég er heldur ekki á móti því að flokksbundnir sjálfstæðismenn taki þátt í slíku starfi. Það er hins vegar vita siðlaust að fólk misnoti sjúklinga og reyni að sannfæra það um lífsskoðun sína í skjóli meðferðar.

    5) Það að enginn sé „neyddur“ til að taka trú á Jesú hjá Samhjálp og öðrum kristilegum meðferðarúrræðum er aukaatriði. Um er að ræða andlega veikt fólk sem þiggur meðferð sem gengur svo mikið til út á það að boða „fagnaðarerindið“. Það er sagt beint út að alkahólismi sé synd, að menn verði dæmdir af trú sinni á Jesú Krist en EKKI verkum. Forstöðumaðurinn segir „Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú.“ Þarna fer fram stanslaus trúarlegur áróður sem á ALLS EKKI heima í heilbrigðisþjónustunni. Slíkur áróður er klárt brot gegn siðareglum allra fagmanna sem ég þekki til í heilbrigðisþjónustunni. Hvítasunnufólk virðist ekki hafa neinar slíkar siðareglur.

    6) Að lokum þá set ég ekki öll meðferðarheimili sem byggja á trúarlegum grunni undir sama hatt. Þau eru eflaust misjöfn. Það breytir því ekki að hið opinbera á ekki að kosta meðferðarúrræði sem gengur út á trú og trúboð. Ég myndi hafa sömu skoðun á „árunuddara-, álfa- og geimverumeðferð“. Ríkið á að styðja faglega meðferð sem byggir á vísindum, rannsóknum og sannreyndri þekkingu og fer eftir ströngum siðareglum.

  3. Ég hef persónulega farið í gegnum meðferðir hjá bæði SÁÁ og Samhjálp og verð að viðurkenna að SÁÁ hefuir vinninginn þar sem unnið er með fíknina sem sjúkdóm og hefur sú nálgun gengið vel hjá mér,ég var forfallinn fíkill og var meðal annars að sprauta mig með morfíni og metamfetamini og gékk eins nærri mér og hægt er,hjá Sáá fæ ég lyfið suboxone sem tekur fíkinia í morfinið frá mér og svo er ég í grúbbum einu sinni í viku sem er svona stuðningur en aðalmálið hjá mér er samt sporavinnan og aa og na fundirnir þar sem vissulega er unnið með æðri mátt og má hann kallast guð,jesus ,allah eða einfaldlega bara fundirnir sem slikir og reynsla þeirra sem gengið hafa veginn á undan mér,ég er að ná árangri í fyrsta skipti á æfinni og náð tökum á lifinu sem betur fer,en ég vil segja að þegar ég var hjá Samhjálp varð ég var við gríðarlegan kærleik að hálfu starfsólks og var aldrei neyddur til að taka trú á neinn hátt en mér finnst voðalega leiðinlegt þegar verið er að dissa trúna sama hvaða toga hun er af en skil það vel,eg er ekkert að kaupa það að jesus se eina leiðin eða Allah eða hvað sem er en veit að með trú á einksonar æðri mátt hefur gert það að verkum að fólk á auðveldara með að höndla stjórnleysið sem fylgir neyslunni og það að gefast upp fyrir leikstjornandum i sjálfum okkur og gefa sig æðri mætti á vald er auðveldara að vera til,ef mar gerir sitt besta virðist lífið hjálpa manni með restina og kristin trú er alls ekki versta birtingarformið í þeirri viðleitini í ófullkomnum heimi,Byrgið er sér á parti þar hafa hreiðrað um sig glæpamenn með illt eitt í hyggju með sínar sjúku þarfir og það er rikisins ábyrgð að leyfa slikri vitleysu að viðgangast en að segja að 12 spora kerfið sé kjanalegt er ekkert annað en fáfræði og heimska ,12 spora kerfið kennir fólki einmitt að taka ábyrgð á lífi sinu og hvetur það til að hjálpa öðrum,það að vera vimuefnasjuklingur er fullkomið stjórnleysi og að viðurkenna það að maður hafi misst stjórn á lifi sínu er skref i rétta átt,að taka inn æðri mátt hvort sem það er jesus eða aa deildin eða trunaðarmaður er næsta skrefið,að treysta þeim æðra m´ætti það þriðja og þetta hefur virkað í 70 ár og án 12 sporakefisisns væri Reykjavik eins og Bagdad en auðvitað er rangt að alhæfa um hvað sem er ,Það eru margar hliðir á teningi og hendan ein hver þeirra kemur upp þegar honum er kastað en þetta er frábær síða og kominn tími á að þjóðin fari alvarlega að velta fyrir sér hvað er í gangi hjá henni,siðmennt er cool en jesus er það lika bara spurning um heiðarleika,peace

  4. Hæ Siggi. Við erum víst ekki alltaf sammála, þó mér finnist þú frábær gaur! Ég er í meginatriðum sammála þér með þetta allt saman, þó ég hafi kannski ekki eins sterkar tilfinningar gegn trú og trúuðum. svo framarlega sem trúað fólk er líbó og ekki of mikið í bókstafnum. Það er nefnilega líka hægt að vera jafn mikill trúleysis-ofstækismaður og hægt er að vera trúarofstækismaður. En ég veit samt að þú ert góður gaur, með sterkar skoðanir :) .

    En ég verð nú aðeins að tjá mig, því að ég hef sannreynt það á mér mjög nákomnu fólki að 12 spora kerfið og það að nota trú, EF MAÐUR HEFUR HANA, er ekki rugl og það virkar mjög vel ef fólk er duglegt að stunda það. Plús það, að ef þú ert trúlaus, þá aðlagarðu kerfið að því, því þú setur þá „trú“ þína á eitthvað annað. En ég er með smá hugmynd: Hvernig væri að endurskoða 12 spora-kerfið og taka út trúardótið og setja inn hluti sem gætu virkað fyrir alla, hvort sem þeir eru einhverrar trúar eða ekki? T.d. væri hægt að fá sálfræðinga og meðferðarfulltrúa eða annað álíka fagfólk til að skoða þetta. Ég er viss um að það væri hægt að búa til ansi flott kerfi út úr því. Bara pæling. Svolítið eins og þið í Siðmennt hafið gert, það er nú aldeilis flott allt saman!

    Talandi um það; ertu ennþá í Félagi áhugamanna um fljúgandi furðuhluti ;) . Það eru ekki allir sem trúa á svoleiðis. Híhíhíhí, æ, sorrí, gat bara ekki stillt mig :) .

    Bestu kveðjur frá Hafdísi kellu.

  5. Sæl Hafdís

    Ég efast ekki um að margir hafa haft gagn af því að fara í gegnum 12 spora kerfið. Reyndar efast ég ekki um að mörgum hafi liðið vel í Byrginu og fengið nokkurn bata þar (án þess að ég sé að bera þetta tvennt saman!). Það er þó staðreynd að 12 spora kerfið er upprunalega kristileg meðferð þó menn hafi verið að aðlaga hana öðrum trúarbrögðum, og nú síðast engri trú. Reynsla þín er áhugaverð en sjálfur þekki ég (mjög nýleg) dæmi um að menn hafi hætt meðferð af því að þeim leið illa í kringum allar þessar bænir og trúarjátningar sem fram fóru á 12 spora fundum.

    Þú segir að ég hafi sterkar „tilfinningar gegn trú og trúuðum”. Þetta er ekki nema að hálfu leiti rétt. Ég viðurkenni fúslega að ég hef vægast sagt lítið álit á „trú“ þegar kemur að því að leita sannleikans. Trú er að kasta frá sér skynsemi og játa eitthvað, eða telja sig vita eitthvað, af því einhver annar segir það eða af því það stendur í einhverri bók. Trú er heimskuleg þekkingarfræði sem hefur aldrei skilað neinu uppbyggilegu. Það er hins vegar rangt að ég hafi sterkar tilfinningar gegn trúuðu fólki. Margir mínir bestu vinir og nánustu fjölskyldumeðlimir eru trúaðir. Allt frábært fólk. Ég gagnrýni aðeins þegar fólk notar trú eða trúarkreddur til að rökstyðja mál sitt eða réttlæta gjörðir sínar.

    Meðferð á að byggjast á sannreyndri þekkingu og á að vera í stöðugri endurskoðun. Hún á alls ekki að byggjast á trú og trúarkreddum.

    Þú spyrð um Félag áhugamanna um fljúgandi furðuhluti. Ég var hálfrekinn úr því félagi fyrir meira en áratug síðan vegna þess að ég þótti allt of helvíti gagnrýnin á starfsemina. Vildi bara safna upplýsingum og fjalla um reynslu fólk vísindalega. Eins og þú veist TRÚÐI ég aldrei á geimverur eða fljúgandi diska en hafði mikinn áhuga á að kynna mér reynslu fólks sem taldi sig hafa séð ótrúlegustu hluti á himni. Ég var þá, eins og ég er í dag, opinn fyrir því að skoða ólík fyrirbrigði með opnu og gagnrýnu hugarfari.

  6. Hvað með trúarlega þjónustu inni á heilbrigðisstofnunum? Sjúkrahúspresta og djákna? Eru þeirra störf ekki hluti af faglegu meðferðarúrræði, að þínu mati?

  7. Sæl María,

    Ég veit ekki hvort störf þeirra séu hluti af „faglegu meðferðarúrræði“. Þessir aðilar veita þjónustu sem margir þiggja og ég efast ekki um að þeir hjálpa mörgum á erfiðum stundum. Ég sé ekkert að því að frjáls félagasamtök bjóði fullorðnum einstaklingum þjónustu sína fyrir þá sem hana vilja. Slík þjónusta ætti þó að vera í boði félaganna sjálfra en ekki skattgreiðenda.

  8. Það er rosalega mikill munur á trú og truarbrögðum og eg get komið með rosasterk rök fyrir því að td.sálfræði sé bull því eins og viðÞað er rosalega mikill munur á trú og truarbrögðum og eg get komið með rosasterk rök fyrir því að td.sálfræði sé bull því eins og við< vitum var td Sigmund Freud kókjunkie sem girntist mömmu sína eða svo segir sagan en við vitum að truarbrögðin eru hreinlega af hinu illa og partur af heimskerfi sem snýst um að blekkja og halda almenningi niðri til að örfáir geti grætt,12 spora kerfið byggir á „æðri mætti“ semsagt að eg hætti að láta heiminn snuast um rassgatið á sjálfum mér og gefi því séns að eitthvað mér æðra geti gefið mer dómgreind og traust á lífinu,æðri mættur getur verið aa deildin mín,trunaðrmaðurinn minn nú eða guð eins og eg skil hann sem er lika soldið vafasamt en fyrst og fremst snyst 12 spora kerfið um það að gera hreint i sinu lífi og fara að fá ahuga á meðbræðrum sinum og systrum og hjálpa öðrum ekki bara fíklum og taka afstöðu með lifinu i gegnum trú á td hið góða,personulega trui eg á kærleikann sem slikan og hef alltaf gert en 12 spora kerfið gerir mér kleift að gefa og þiggja kærleikann af einlægni og í góðri trú að það virki,eg þekki vel truarbragðasögu heimsins og þekki amk 16 „jesusa“ sem áttu svipaða æfi og meistarinn frá nasaret frægastu þeirra hinn egypski Hóras og guðinn Amen Ra,en það sem jesus var að kenna var mjög merkileg en þætti meira vert um að folk sem á hann truir reyni frekar að fara eftir því en akurat trua á hann sem guð eða slikt,kærleikurinn er engin kredda og meðal truaðra sem trua i enlægni er það hið besta mál en þar sem kærleiknum sleppir þar taka reglurnar við og engin truarjátningar eða heitar bænir þar sem ég stunda 12 spora fund en það eru aftur á móti mikið af truarkredduliði sem eru að reyna að leggja undir sig sporakefið rétt er það og það er óþolandi en trú og truarbrögð eiga ekkert sameiginlegt enda orðið trúarbragð í andstöðu við orðið trú en kannskii er etta heimskulegt þavaður hjá mer og fullt af kreddum um kærleikann en hey ég er lika blindur af ást og tru..peace

  9. Sæll Jón. Það getur verið að þér finnist sálfræði vera bull. Sannleikurinn er þó sá að sálfræðimeðferð er sannreynd aðferð. Auðvitað eru sálfræðimeðferðir mismunandi og misgagnlegar. Þær aðferðir sem mest eru notaðar hafa þó verið prófaðar og sannreyndar með rannsóknum. Sálfræði er einnig í stöðugri endurnýjun eftir því sem þekking okkar um sálfræði eykst. Þar að auki eru sálfræðingar fagmenn sem fara eftir ströngum siðareglum.

    Þannig má sáfræðingur ekki: “ reyna að fá einhvern til að ljóstra upp, afneita eða breyta lífsviðhorfum sínum eða annarra, pólitískri, trúarlegri eða siðferðilegri sannfæringu.”

    Þeir sem stunda „meðferð“ á trúarlegum grunni hafa eðli málsins samkvæmt takmarkaðan áhuga á að halda trúarbrögðum utan við starfsemi þeirra.

  10. Sigurður minn
    Ekki segi ég að sálfræði sé bull en það má koma með rök og gagnrök fyrir nánast öllu enég verð þó að segja að skoðanir yðar um ríkisrekin trúarbrögð er ég þér algerlega sammála um og öll meðferð sem byggist á trúarkreddum eins og í byrginu geti vart verið neitt annað en ámælisverð en um 12 spora kerfið get eg ekki annað en varið þar sem ég veit svo sannarlega að er og hefur skilað gríðarlegum árangri enda ekki um neina trúarstefnu að ræða enda vil ég ítreka þá skoðun mína að trú og trúarbrögð eru jafn ólik og svart og hvítt þar sem trú er einstaklingsbundin upplifun en trúarbrögð kerfi sem notað er til að manipulera fjöldann,þegar eg var i meðferð hja samhjálp mátti ekki einu sinni ræða að taka aa eða na inní myndina því jesus átti að redda öllu en það hefur breyst og nu er sjúkdómshugtakið ofar öllu í þeirra meðferð og aa komið inní myndina líka semsagt aa fundir eru haldnir uppá Hlaðgerðarkoti en aa samtökin eru umburðarlyndasta kerfi sem eg veit um og þú getur verið með á fundi argasta kommunista og heittruuðum shia múslima og manneskju sem truir engu en öll getum við notað 12 spora kerfið okkur til andlegrar umbóta svo einfalt er það enda er talað um að það sé eingöngu leiðarkerfi en ekki bjargfast trúarafbrigði,skil þessvegna ekki hvrsvegna fólk sem hefur ekki gengið 12 spora leiðina getur gagnrýnt hana sem einjhverja trúarkreddu vitleysu og um það er eg að reyna að tjá mig að það kerfi hefur bjargað milljonum annars vonlausum fiklum og alkoholistum frá enn meiri skaða ef einhver veit um betri leið handa fiklum og ölkum þá gjöri svo vel að kynna hana sem fyrst takk fyrir en um trúarbrögðin hef ég bara eitt að segja,þau sucka og þau eru af hinu illa neda draga þau hulu yfir sanna trú sem er allt annar handleggur.peace

  11. Sæll Sigurður mér fannst bera nokkurn vott af hræsni (kannski sterkt orð) þegar þú segir í svari þínu að „Þannig má sáfræðingur ekki: “ reyna að fá einhvern til að ljóstra upp, afneita eða breyta lífsviðhorfum sínum eða annarra, pólitískri, trúarlegri eða siðferðilegri sannfæringu.”“ En þegar ég vitna í siðareglur Samhjálpar þar sem segir m.a.: „Ég mun hvetja til þeirra breytinga í lífi sjúklinga minna sem stuðlað geta að bata. Að öðru leiti mun ég ekki hvetja þá til að tileinka sér viðhorf eða hegðun sem fremur er sprottin af lífsviðhorfum og verðmætamati mínu en þeirra“, þá er svar þitt að um sé að ræða andlega veikt fólk. Þú gengisfellur þar með siðareglur Samhjálpar á þeim rökum að um sé að ræða andlega veikt fólk. Ef rökin eru þau Samhjálp geti ekki fylgt siðareglum sínum vegna þess að um sé að ræða andlega veikt fólk þá hljóta sömu reglur að gilda um Sálfræðinga (ekki nema að þeir hugsi aðeins um andlega heilbrigt fólk). Sigurður minn þú verður að passa þig að beita sömu rökum á alla en ekki alltaf reyna að sjá eitthvað “conspiracy” hjá hinum kristnu en sleppa öllum –öðrum sem nota “vísindalegar” aðferðir.

  12. Sæll Styrmir,

    Ég veit fullvel hvað stendur á vefsíðu Samhjálpar. Þessar „siðareglur“ samhjálparmanna eru því miður orðin tóm því þær stangast á við næstum allt annað sem fram kemur á vefsíðu þeirra. Þannig segir forstöðumaðurinn sjálfur í pistlum á vefsíðu Samhjálpar:

    „En fyrsta og besta skrefið í því að veita fyrirgefningu er að byrja á því að fá sjálf/ur fyrirgefningu misgjörða sinna með því að taka á móti skilyrðislausri gjöf Guðs. Sem er náðin sem felst í því að biðja Jesú að koma inn í hjarta sitt og biðja hann um fyrirgefningu. Efesus 2. 8-9: Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því.

    Frelsið (endurfæðing sbr. Jóhannesarguðspjall 3.3-5) er gjöf til allra manna, gjöf sem við getum ekki öðlast fyrir verk, aðeins fyrir trú á Jesúm Krist.“

    „Ekki láta fréttina framhjá þér fara, settu Frelsarann við stýrið.”

    Um meðferð eins skjólstæðing síns segir hann:

    “Hann hefur unnið markvisst að eigin uppbyggingu og tengsla við sína nánustu. Styrk sinn til þeirrar vinnu sækir hann í trúna á Jesúm Krist. Hann hefur sett sér ný markmið þar sem andleg gæði eru sett ofar efnislegum.”

    Fyrir þá sem efast segir forstöðumaðurinn:

    “Ég trúi því að biðjir þú slíkrar bænar í einlægni, þá mun friður Guðs fylla hjarta þitt og þér mun líða líkt og Tómasi er hann sagði, ,,Drottinn minn og Guð minn”.

    Drottinn blessi þig og gefi þér trúarfullvissu og frið.”

    Einnig:

    „Ef að þú sem lest þessi orð, hefur ekki leyft sannleika trúarinnar að fylla veru þína. Þá hvet ég þig til að staldra við og íhuga hvort Guð á erindi inn í þitt líf.
    Í 30 ár hefur þessi sannleikur verið grunnur Samhjálparstarfsins. Margir hafa tekið við þessum sannleika og á þann hátt öðlast kraft til að brjótast út úr hlekkjum myrkurs og vímu.
    Með Guðs hjálp verður svo um ókomna tíð og tíma.“

    Þegar forstöðumaður meðferðarheimilis segir skjólstæðingum sínum aftur og aftur að þeir verði að trúa því þeir geti aðeins orðið hólpnir ef þeir trúa á Jesú Krist þá er hann einmitt að hvetja þá til að tileinka sér sína þröngu lífsskoðun. Lífsskoðun sem byggist á blindri trú en ekki sannreyndri þekkingu.

    Samhjálp er rekið af Hvítasunnukirkjunni sem hefur vægast sagt sterkar trúarskoðanir. Ég fæ ekki séð hvernig sama fólk og flytur inn þekkta afhommara til landsins til að frelsa lýðinn frá samkynhneigð hefur nokkuð að gera í meðferðarstarfi. Ég stend við þá skoðun mína að það er algerlega óviðeigandi að slík starfsemi fái stuðning hjá hinu opinbera. Hið opinbera á að greiða fyrir fagleg, sannreynd, meðferðarúrræði sem eru fyrir alla og eru laus við pólitískan eða trúarlegan áróður.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.