Um Framtíðarhóp Samfylkingar
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hugmyndafræði
Viðbrögð: Ummæli (
Í Silfri Egils fyrir nokkru gagnrýndi Össur Skarphéðinsson Framtíðarhóp Samfylkingarinnar nokkuð harðlega og sagði hann vera lokaðan og fámennan hóp. Nú veit ég ekki hversu fámennur hópurinn er en samkvæmt minni reynslu virðist hann vera ansi lokaður, eða í það minnsta illa skipulagður. Á sínum tíma gerði ég að minnsta kosti tvær tilraunir til að fá að skrá mig til þátttöku, auk þess sem ég mætti á nokkrar opna fundi sem hópurinn stóð fyrir. Af einhverjum ástæðum var aldrei haft samband við mig aftur.
Á flokksþingi Samfylkingarinnar 2003 fyllti ég til að mynda út ansi ítarlegt plagg þar sem ég óskaði eftir því að fá að taka virkan þátt í stefnumótun Framtíðarhópsins. Var ég látin skrá niður nafn mitt og upplýsingar um í hvaða nefndum ég vildi helst starfa. Ég beið spenntur í um eitt ár eftir svari en er nú hættur að bíða. Veit ég til þess að fleiri sem skráðu sig með þessum hætti í hópinn fengu aldrei nein viðbrögð.
Það er því varla von að sumir spyrji sig að því hvort almennir flokksmenn megi taka virkan þátt í starfi Framtíðarhóps Samfylkingarinnar.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?