Áfram Ágúst


Gaman að heyra að Ágúst Ólafur Ágústsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. Ágúst fær minn stuðning. Ekki af því hann er ungur eða sérstakur fulltrúi unga fólksins, heldur vegna þess að hann er maður með hugsjónir og áherslur sem ég kann að meta.

Ég kynntist Ágústi fyrst þegar ég tók þátt í að stofna ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar árið 2000 og síðar í gegnum starf Ungra jafnaðarmanna. Ágúst er að mínu mati (og nú veit ég ekki hvort hann er sammála mér) frjálslyndur hægrikrati að flestu leiti. Samfylkingin þarf á frjálslyndum jafnaðarmönnum að halda og því styð ég Ágúst.

Sjá nánar:
www.agustolafur.is

Hver er þín skoðun?



1 athugasemd

  1. Sammála þér Siggi með að gaman sé að Ágúst Ólafur skuli bjóða sig fram í varaformanninn. Hann hefur staðið sig afburðavel á þingi drengurinn og komið mér þægilega á óvart, þótt ég hafi alltaf vitað að hann stæði sig vel.

    Einsog þú veist vorum ég og ÁÓÁ ekki alltaf í sama liði í UJ þegar hann var þar. Ég var, og er ennþá, ansi mikill kommi miðað við hann (og þig!). En Gústi er mjög frambærilegur og duglegur. Hann hefur vaxið mjög – þess vegna held ég að hann væri fínn varaformaður.

    Svo hefur hann beitt sér fyrir þörfum málaflokkum, sem gleymast oft þegar kemur að því að hala inn atkvæðin rétt fyrir kosningar. Gústi hefur plumað sig vel og á eftir að gera það áfram.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.