Ungt fólk er frjálslynt
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hugmyndafræði
Viðbrögð: Ummæli (
Ég átti kost á því að taka þátt í þingi unga fólksins helgina 11. – 13. mars. Ánægjulegt var að upplifa hversu frjálslynt ungt fólk á Íslandi almennt er. Mun meiri samstöðu er að finna milli ungs fólks í ólíkum stjórnmálaflokkum en gengur á gerist á þingi. Fullyrði ég að það sé vegna þess að ungt fólk er almennt frjálslyndara en atvinnupólitíkusarnir. Ungt fólk lætur einnig réttlætiskennd sína, frekar en flokkspólitíska hagsmuni, ráða ákvörðunum sínum. Auðvitað voru ungliðarnir ekki sammála um allt en samstaða náðist um ansi margt.
Ungt fólk vill aðhald í opinberum rekstri, öflugt velferðarkerfi, skoða kosti einkareksturs og einkavæðingar, leggja niður ÁTVR og leyfa sölu léttvíns í matvöruverslunum, full réttindi samkynhneigðra, aðskilnað ríkis og kirkju, einfaldara skattkerfi, að landið verði gert að einu kjördæmi, afnema fyrningafrest vegna kynferðisafbrota gegn börnum og svona má áfram telja.
Ályktanir sem samþykktar voru á Þingi unga fólksins 2005:
Skynsemi í ríkisrekstri
ÞUF hvetur stjórnmálamenn til að gæta skynsemi í ríkisrekstri. Íslendingar standa nú við upphaf mestu þenslutíma í manna minnum og á slíkum tímamótum er mikilvægt að gæta aðhalds. Stjórnmálamenn skulu frekar einbeita sér að grunnþjónustu heldur en pólitískum gæluverkefnum. Mikilvægt er einnig að æðsta stjórn landsins fari fram með góðu fordæmi og hagræði í eigin ranni, s.s. með sameiningu ráðuneyta.
Ríkisrekstur
Ríkið og sveitarfélög hafa á undanförnum árum þanist út og sinnt verkefnum sem sýnt þykir að einkaaðilar geta gert mun betur. Stefna skal að fækkun ríkisstofnana til þess að gera ríkisreksturinn einfaldari og auka hagkvæmni þeirra stofnanna sem eftir verða. Kveða á skýrara á um ábyrgðarhlutverk stjórnenda ríkisstofanna. Agaleysis hefur gætt í rekstri margra ríkisstofnanna sem farið hafa fram úr heimildum fjárlaga ár eftir ár. Þessari þróun ber að snúa við og hvetur ÞUF til aðhalds í ríkisrekstri.
Aðhald í rekstri sveitarfélaga
Það er áhyggjuefni að á einum mesta uppgangstíma í íslensku efnahagslífi sjá mörg sveitarfélög enga aðra lausn á rekstrarvanda sínum enn að hækka álögur á íbúanna. ÞUF leggur til að hlutverk sveitafélaga sé skilgreint betur. Hefja skal heildstæða endurskoðun á tekjuskiptingu ríkis og sveitafélaga. Mikilvægt er að sveitarfélög gæti aðhalds í rekstri sínum og skoða sameiningu til þess að auka hagkvæmni í rekstri.
Bætt heilbrigði
Þing Unga Fólksins telur að líf og heilsa fólks sé eitt það mikilvægasta sem það á. Til að koma á bættri og skilvirkari þjónustu er nauðsynlegt að koma á meiri samkeppni og draga úr miðstýringu. Það er best gert með því að bjóða út starfsemina og mismuna ekki eftir rekstrarformi. Á næstunni væru því jákvæð skref í átt að betra heilbrigðiskerfi að bjóða út sem flesta þjónustu utan kjarnaþjónustu Landspítala Háskólasjúkrahúss. Eftir sem áður er nauðsynlegt að megin þungi kostnaðar komi úr opinberum sjóðum og öllum verði tryggður aðgangur að þjónustunni. Einnig ber að afnema bann við auglýsingum heilbrigðisþjónustunnar.
Einkavæðing og einkarekstur
Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í einkavæðingu seinustu ár er enn mörgu að líta. Óhentugt er að ríkið sé í samkeppni við einkaaðila. Því leggur ÞUF áherslu á að ríkið dragi sig úr samkeppnisrekstri þar sem það á við.
Heilbrigðiskerfið
Þing unga fólksins telur að þrátt fyrir að heilbrigðiskerfi Íslendinga sé eitt það dýrasta í heiminum sé það að sama skapi ekki með þeim fremstu í þjónustu og gæðum. Kanna þarf kosti og galla einkareksturs með það að leiðarljósi að bæta heilbrigðisþjónustuna, öllum landsmönnum til heilla. Meginhluti kostnaðar skal þó eftir sem áður greiðast úr sameiginlegum sjóðum.
Færanlegur lífeyrir – forsenda samkeppni
Þing Unga Fólksins vill að aukið verði valfrelsi einstaklinga með skyldulífeyri sinn þannig að þær fjárhæðir sem fólki er skylt að leggja inn, sem og mótaframlag vinnuveitanda, verði auðfæranlegt milli sjóða. Þannig er líklegt að samkeppni komist á milli lífeyrissjóða, með tilheyrandi skilvirkni.
ÁTVR verði lagt niður
ÞUF leggur til að einkaleyfissala ríkisins á áfengi verið lögð niður í þrepum með því markmiði að ÁTVR verði lagt niður. Selja skal áfengi eftir þeim reglum sem Alþingi setur. Einokun ríkisins á sölu á áfengi er ekki í takt við þá viðskiptahætti sem hafa ber í fyrirrúmi í nútíma viðskiptaumhverfi. Ekki eru ástæða til þess að starfsmenn ríkisins afgreiði áfengi í verslunum frekar en á veitingahúsum og öldurhúsum.
Áfengisauglýsingar
Þing unga fólksins telur mikilvægt að verulegar tilslakanir verði gerðar á lögum sem banna áfengisauglýsingar. Um er að ræða fullkomlega löglega vöru sem eðlilegt er að auglýsa megi í fjölmiðlum landsins. Þó er brýnt að beina ekki auglýsingum sínum að ungmennum.
Áfengisgjöld
Þing unga fólksins telur nauðsynlegt að horfið verði frá þeirri forsjárhyggju sem er ríkjandi á áfengismálum á Íslandi. Þingið telur eðlilegt að áfengiskaupaaldur verði aðlagaður að öðrum borgaralegum réttindum sem fást við 18 ára aldur. Ennfremur telur þingið mikla þörf á því að endurskoða lög um áfengisgjöld með það að leiðarljósi að lækka þau verulega enda eiga Íslendingar heimsmet í þeim málaflokki. Áfengisgjald hefur farið lækkandi í nágrannalöndunum að undanförnu en hér á landi hefur gjaldið stöðugt farið hækkandi. Ljóst er að of hátt áfengisverð leiðir til þess að ákveðinn hópur fólks leitar annarra úrræða. Hátt áfengisverð hefur einnig áhrif á ferðaþjónustuna, ekki er ásættanlegt að ferðamenn þurfi að borga margfalt hærra verð fyrir áfengi hér á landi en í nágrannalöndum okkar.
Einföldun skattkerfisins
ÞUF leggur áherslu á að lækka beri skatta og álögur á landsmenn. Háir jaðarskattar búa til fátæktargildur, hafa vinnuletjandi áhrif og eru til þess fallnir að auka velferðartap samfélagsins. Aðgerðir í skattamálum eiga að stuðla að því að einfalda skattkerfið en ekki flækja það. Skattskil myndu batna þar sem draga myndi úr skattsvikum og undanskotum. Lækkun skatta myndar þar að auki hvata til sparnaðar og niðurskurðar í ríkisfjármálum.
Tekjuskattur
Þing unga fólksins telur að róttækra breytinga sé þörf á tekjuskattkerfi einstaklinga. Tilgangur skattkerfisins á einungis að vera sá að afla tekna fyrir ríkissjóðs, en ekki að jafna kjör landsmanna – aðrar leiðir eru hagkvæmari til að ná því markmiði. Mikilvægt er að kerfið sé einfalt, skilvirkt, réttlátt og að jaðarsköttum sé stillt í hóf.
Tollar og vörugjöld
ÞUF telur að lækka beri tolla, vörugjöld og aðrar viðskiptahömlur á innfluttar vörur. Neytendur bera kostnaðinn í hærra vöruverði. Neyslustýring hins opinbera í formi tolla og vörugjalda er óeðlileg, velferð fólksins felst ekki í því að ríkið ákveði hvað teljist æskilegar neysluvenjur. Tollar og innflutningshöft koma í veg fyrir eðlileg og ábatasöm viðskipti manna á milli.
Flatur skattur
ÞUF ályktar að stjórnvöld beri að stefna að flötum hlutfallslegum skatti í þeim tilgangi að einfalda skattheimtu ríkisins. ÞUF telur að skattkerfi eigi í eðli sínu að vera einfalt og sanngjarnt ásamt því að örva viðskiptalíf og erlendar fjárfestingar á Íslandi. Flatur hlutfallslegur skattur einfaldar allar skattbreytingar ásamt því að draga úr skattsvikum og skipulögðum skattaundanskotum. Eru slíkar tillögur jafnframt í takt við þá stefnu sem Verslunarráð og BSRB hafa kynnt undanfarið.
Efling heilsugæslunnar
Þing unga fólksins leggur ríka áherslu á eflingu almennrar heilsugæslu í landinu. Eins og staðan er í dag getur biðtími eftir þjónustu á heilsugæslustöðvum verið ansi langur og læknar hafa lítinn tíma til þess að veita sjúklingum það aðhald sem þeir þurfa. Meiri tími og meira aðhald með hverjum sjúklingi eykur líkurnar á því að fólk sé greint rétt og fyrr, en það myndi kosta heilbrigðiskerfið minni sjúkrahúsakostnað, sérfræðiþjónustu og lyfjakostnað. Einnig mun það koma sér til góða í tryggingarkerfinu, t.a.m. í tengslum við og sjúkradagspeninga. Því skorar Þing unga fólksins á stjórnvöld að efla heilsugæslustöðvar í landinu. Með því mun þjónusta heilsugæslustöðva aukast, sjúklingar fá meira og betra aðhald og sparnaðurinn verður meiri.
Staðnað fákeppnisumhverfi
Þing unga fólksins telur mikilvægt að Samkeppnisstofnun séu veittar sambærilegar valdaheimildir og gengur og gerist í nágrannalöndum okkar til að berjast gegn því staðnaða fákeppnisumhverfi sem ríkir á Íslandi. Nauðsynlegt er að hafa færri og skýrari reglur um starfsemi og stofnun fyrirtækja til virkja samkeppni á markaði.
Húsaleigubætur fyrir herbergjaleigu
ÞUF leggur til að herbergjaleiga á frjálsum markaði verði tekin inn í bótakerfið, þannig að þeir sem leigja „herbergi úti í bæ“ eigi rétt á húsaleigubótum. Slíkt myndi leiða til þess að svokölluð „svört leiga“ hverfur eða minnkar stórlega, auk þess sem námsmenn eigi rétt á hærri lánum hjá LÍN með löglegum húsaleigusamningum og staðfestingu á leigu.
Niðurgreiðsla getnaðarvarna
ÞUF leggur til að hið opinbera stuðli að lækkun verðs á getnaðarvörnum, t.d. með niðurfellingu opinberra álagninga á þær vörur.
Ódýrari tannlæknaþjónusta
ÞUF telur að tannlæknaþjónusta á Íslandi kosti of mikið og harmar þá staðreynd að hún teljist til munaðar hjá mörgum Íslendingum í dag. Tryggja verði aðgengi fólks að ódýrri og góðri tannlæknaþjónustu og horfa til betri nýtingar heilsugæslustöðva í þessum efnum.
Líffæragjafir hérlendis
ÞUF telur mikilvægt að hér á landi verði sett upp kerfi til að auðvelda fólki að lýsa yfir vilja sínum til líffæragjafar. ÞUF beinir því til heilbrigðisráðherra að hann hefji vinnu við að koma slíku kerfi á fót, þar sem einstaklingur geti gefið samþykki sitt fyrir líffæragjöf t.d. með merkingu á ökuskírteini eða önnur persónuskilríki.
Samræmd stúdentspróf ber að leggja niður
ÞUF telur að samræmd próf á framhaldsskólastigi skulu lögð niður. Það er áhyggjuefni að samræmd stúdentspróf geti mögulega steypt framhaldsskólana í sama mót. Nýsköpun og gróska á öllum menntastigum er nauðsynleg og er líklegt að staðlar þeir sem fylgja samræmdum stúdentsprófum verði til þess að draga enn úr þeirri þróun. Framhaldsskólar eiga að geta mótað stefnu sína varðandi kennsluhætti og kennsluefni af sjálfsdáðum. Áhersla á færni í skriflegum samræmdum prófum sem mælikvarða á hæfni og þekkingu nemenda er meiriháttar ofmat.
Samræmd próf á grunnskólastigi ber að leggja niður
ÞUF telur að leggja beri niður samræmd próf í gunnskólum tafarlaust. Prófin vinna mun meiri skaða en gagn í núverandi mynd og færa prófkvíðavandamál niður í 4. bekk grunnskóla. Þar fyrir utan er löngu ljóst að samræmd próf sem aðalmælikvarði er lélegur mælikvarði á frammistöðu nemenda. Allir geta átt slæman dag og þá er afrakstur hinnar raunverulegu vinnu skakkt mældur, ef ekki glataður. Aðeins hluti af þekkingu nemandans er mældur með samræmdum prófum í stað fleiri námsmatsaðferða á borð við hópverkefni, framsöguverkefni, flutning með leikrænni tjáningu og svo framvegis. Sú færni sem mæld er með samræmdum prófum felst að hluta til í því að þreyta slík próf, en þau mæla til dæmis ekki hversu vel nemandi getur nýtt sér námið í leik og starfi. Samræmd próf taka hvorki mið af mismunandi kennsluháttum hvers og eins kennara né mismunandi verklagi hvers nemanda. Þau hvetja nemendur ekki til að læra jafnt og þétt líkt og símat gerir. Prófin eru ósveigjanleg og gera hvorki ráð fyrir, né hvetja, nemandann til að fara lengra en kennslubókin nær. Þau eru bara í ákveðnum námsgreinum og líta framhjá því að upplýsingar um færni nemenda í tónlist eða íþróttum getur verið mikilvæg þeim nemendum sem standa þar vel að vígi. Prófin eru í dag “hinn eini sanni mælikvarði” á námsgetu einstaklinga og hafa mikil áhrif á sjálfsmynd barnanna. Þannig gerist það alltof oft að mjög greindir krakkar á öðrum sviðum en þeim er samræmdu prófin mæla búi við neikvæða stimplun og brostna sjálfsmynd vegna lágra einkunna á samræmdu prófi. Ef ekki á að mismuna nemendum verður að hafa samræmd próf í öllum greinum eða engri. Vænlegast væri ef hin síðarnefnda leið væri farin.
Draga ber úr hvers kyns miðstýringu innan menntakerfisins
ÞUF telur að leggja ber niður Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og sambærilegar stofnanir eða starfsemi á vegum hins opinbera og færa verkefni þeirra beint inn í menntastofnanir. Verkefni á borð við eftirlit með fjármálum og útgjöldum til menntamála verði færð til innan starfsemi sveitarfélaga. Miðstýring heftir nýsköpun, faglega framþróun og kemur í veg fyrir eðlilega ákvarðanatöku um rekstur og tilhögun náms. Betur færi á því að fagaðilar í hverjum skóla fyrir sig taki ákvarðanir um nám út frá faglegri þekkingu, stefnumiði skólans og þörfum einstakra nemenda. Kennarar og starfsmenn menntastofnana búa yfir mikilli þekkingu sem mikilvægt er að nýta. ÞUF telur að draga beri úr og/eða afnema öll viðmið og alla staðla sem miða að því að steypa skóla og nemendur í sama mót. Einingaviðmið, námsskrár og fleiri staðlar hins opinbera hefta tækifæri fagfólks til þess að hanna og bjóða upp á mismunandi nám og kennsluhætti eftir faglegum viðmiðum og þörfum nemenda, atvinnulífs og annarra hverju sinni. Aukin tækifæri og sveigjanleiki menntastofnana til þess að breyta og aðlaga námsframboð er líklegt til þess að bæta nám og námsárangur verulega. Þannig nýtist betur sú þekking sem fagaðilar hafa yfir að ráða auk þeirra upplýsinga sem felast í þörfum nemenda, atvinnulífs og annarra. Sá sveigjanleiki er líklegur til þess að draga verulega úr brottfalli á öllum skólastigum og laða enn fleiri að menntastofnunum.
Takmarka ber aðalnámskrár allra skólastiga
Sjálfstæði og framþróun grunnskóla eru mörgum takmörkunum háð og er það miður. Í aðalnámskrá grunnskóla eru fyrir hvert skólastig (1.-4. bekk, 5.-7-bekk og 8.-10.bekk) lokamarkmið, áfangamarkmið og þrepamarkmið svo hundruðum skiptir. Jafn réttur einstaklinga til lágmarksmenntunar jafngildir ekki því að allir eigi að fá sömu menntun. Í raun er ekkert eins ósanngjarnt og sama meðhöndlun ólíkra einstaklinga. Helsti gallinn við námsskrána er sá að hún tekur ekki mið af einstaklingsþörfum. Litlu skiptir hvort stjórnmálamenn eða fagnefndir sjá um markmiðssetninguna, þetta eru alltaf markmið sem miða að því að steypa nemendur og skóla í sama mót. Það er óvinnandi verk að ætla sér að gera tæmandi lista af öllum þeim námsmarkmiðum sem talist geta mikilvægt vegarnesti fyrir nemendur. Slíkar markmiðssetningar gera hverjum og einum skóla erfiðara um vik við að leggja sínar eigin áherslur og sérhæfa sig. Foreldrar og nemendur hafa því nánast ekkert tækifæri til að sýna hvers konar menntaþjónustu þeir kjósa því námsframboðið er síður en svo fjölbreytilegt. Eftir farsælan flutning skólastarfs grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga skapast nú tækifæri til að draga úr þessum hamlandi þáttum með því að takmarka aðalnámsskrár og eftirláta skólunum að semja sínar eigin námsskrár. Ljóst er að hömlur þessar draga mjög úr fjölbreytileika námsframboðs og margbreytileika kennsluhátta og sést það glöggt á erfiðleikum við að koma á raunverulegu einstaklingsmiðuðu námi þrátt fyrir fögur orð stjórnmálamanna um að slíkum áfanga hafi verið náð.
Leggja ber niður Námsgagnastofnun
Hið opinbera þarf ekki að hlutast til um útgáfu bóka og það sama gildur um útgáfu námsbóka. Engin nauðsyn fylgir því að þeir sem semja námsbækur séu opinberir starfsmenn. ÞUF telur því að Námsgagnastofnun skuli lögð niður.
LÍN
Þjónustuþætti lánasjóðs íslenskra námsmanna verði komið í hendur útlánastofnana enda betur kominn þar en í vörslu og rekstri ríkisins. Þannig er tryggð hagræðing sjóðsins, aukin þjónusta við nemendur og bættur rekstur. Nemendur sem eru með lán hjá LÍN þurfa hvort eð er að sækja þjónustu til útlánastofnana og er augljóst hagræði af því að eiga einungis samskipti við einn aðila í stað tveggja. ÞUF telur að frítekjumark námslána skuli hækka
Menntaþjónusta fyrir fólk með fötlun
Endurskoða ber menntaþjónustu fyrir börn og fólk með fötlun með það að leiðarljósi að tryggja þeim úrræði við hæfi í samræmi við það sem öðrum nemendum býðst. ÞUF harmar það að fólk með fötlun þurfi að berjast fyrir því að fá til dæmis framhaldsskólamenntun sem stendur öðrum sjálfkrafa til boða.
Mikilvægt er að rjúfa einangrun fólks með fötlun og er nauðsynlegt að markviss vinna þess efnis fari fram. Því miður virðist verkefnið „Skóli án aðgreiningar“, sem felst í því að fólk með fötlun stundi nám við almenna skóla, hafa verið fremur unnið af kappi en forsjá
Leikskólastigið
ÞUF leggur áherslu á mikilvægi samvinnu milli leik- og grunnskóla, og nám fimm og sex ára barna látin mynda meiri samfellu milli skólastiga. Þingið telur að lækka beri skólagjöld á leikskólum verulega. ÞUF hvetur sveitarfélög til þess að skoða kosti einkareksturs með það að leiðarljósi að ná fram hagræðingu.
RÚV
ÞUF telur rétt að taka hlutverk RÚV til endurskoðunar og að ræða hvort ríkisvaldið eigi að sinna rekstri fjölmiðla eða ekki. Nauðsynlegt er að breyta rekstrarformi RÚV og leggja skal niður útvarpsráð.
Sparnaður í utanríkisþjónustunni
Í ljósi mikillar útgjaldaaukningar í utanríkisþjónustunni undanfarin ár leggur Þing unga fólksins áherslu á að skera niður og hagræða í rekstri utanríkisráðuneytisins. Kostnaðurinn við utanríkisþjónustuna er of hár og fjöldi þeirra sendiráða sem Ísland heldur úti óheyrilegur. Nauðsynlegt er að leggja niður dýr sendiráð í fjarlægum löndum og fækka umtalsvert sendiráðum á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu. Í dag er Ísland með 15 sendiráð ásamt fjölda fastanefnda og ræðismannsskrifstofa út um allan heim. Til hagræðingar væri þannig hægt að leggja niður sendiráð í núverandi mynd og opna einungis eitt sendiráð í hverri heimsálfu. Af frekari verkefnum utanríkisráðuneytisins má einnig nefna útflutningsráð, sem þarf að endurskoða með tilliti til kostnaðar, verkefnavals og forgangsröðunar innan utanríkisþjónustunnar.
Aðstoð við þróunarríki
ÞUF hafnar skuldastefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Heimsviðskiptastofnunarinnar gagnvart þróunarríkjum og fara fram á niðurfellingu skulda þeirra. Þá hafnar ÞUF að íhlutun þessara stofnana í innanríkisstjórnmál sé skilyrði fyrir efnahagsaðstoð. Núverandi tollastefna vestrænna ríkja gagnvart þróunarlöndum er til þess eins fallin að viðhalda þeim aðstöðum sem komið var á á nýlendutímanum því ber að veita þróunarríkjum óheftan aðgang að okkar mörkuðum enda felst skilvirkasta efnahagsaðstoðin í frjálsum viðskiptum. ÞUF hvetur íslenska ríkið til að standa sig betur hjálpar- og mannúðarstörfum. Ísland ver mun minna fé til þróunaraðstoðar heldur en nágrannaþjóðirnar, eða undir 1% af vergri þjóðarframleiðslu. ÞUF leggur til að úr þessu verði bætt og Ísland verji auknum fjármunum í þágu þróunar- og mannúðarstarfsemi.
Frjáls félagasamtök og lýðræði
Mikilvægt er að efla lýðræði í þróunarlöndum. Stríðsátök milli lýðræðisríkja eru fáheyrð, enda aðrar leiðir til úrlausna. Með því brotnar einnig vítahringur fátæktar og stríðsátaka en hann elur einna helst af sér örvæntingu, reiði og öfgastefnur. Lýðræði hefur sýnt sig að vera ekki einungis afleiðing heldur nauðsynleg forsenda þess að ráða bót á fátækt. Þarna eiga frjáls félagasamtök að koma til sögunnar, en þau bæði hvetja til og viðhalda lýðræði. ÞUF vill því að fjármagni til þróunar sé í auknu mæli beitt í gegnum frjáls félagasamtök.
Mannúðarmál
ÞUF er alfarið á móti notkun barna í hernaði. Í dag eru börn undir átján ára aldri látin gegna herþjónustu í yfir tuttugu löndum. Alþjóðasáttmálar setja mörk herþjónustu við fimmtán ár en þar sem slíkir sáttmálar eru brotnir er meðalaldur herbarna um 12 ár. ÞUF skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að alþjóðasáttmálar um aldur hermanna í stríði verði virtir. Dauðarefsingum sem og öllum óafturkræfum refsingum er skilyrðislaust hafnað af hálfu ÞUF enda eru þær aldrei réttlætanlegar. Þá er nauðsynlegt að efla baráttuna gegn pyntingum en pyntingar eru nú stundaðar í fjölmörgum löndum. Í dag er talið að um 120 milljón jarðsprengja liggi grafnar í jörðu í yfir 67 löndum heims. Í mörgum þessara landa er átökum lokið, en jarðsprengjurnar hverfa ekki fyrir því. Daglega verða um hundrað manns fyrir því að stíga á jarðsprengju og þrjátíu af þeim týna lífi. Þeir sem lifa eru örkumlaðir fyrir lífstíð. Fjórðungur fórnarlamba eru börn. Jarðsprengjur eru vopn sem brjóta í bága við alþjóðlega mannréttindasáttmála. Auk þess að eyða lífum og valda örkumlum hafa jarðsprengjur lamandi áhrif á efnahag heilu landssvæða og jafnvel þjóða. Akur stráður jarðsprengjum er ekki hentugur til ræktunar og öryrkjar eru að auki þung byrði á fátækum ríkjum. Ísland er eitt einungis 36 landa í heiminum sem samþykkt hafa algjört bann á framleiðslu, sölu og notkun jarðsprengja. ÞUF telur það brýnt að íslenska ríkisstjórnin beiti sér fyrir framgangi þessa banns í öllum ríkjum heims.
Guatanamo
Þing unga fólksins mótmælir harðlega meðferð fanga í fangabúðum Bandaríkjastjórnar á Guantanamoflóa á Kúbu. Í Guantanamo-fangabúðunum er fjölmörgum einstaklingum haldið án dóms og laga og margir þeirra sæta pyntingum. Það er óviðunandi að mannréttindabrot séu framin í nafni lýðræðisins. ÞUF hvetur því yfirvöld hér á landi að beita sér gegn þessum mannréttindabrotum.
Umhverfisvernd og sjálfbær þróun
Þing unga fólksins hvetur til almennrar vitundarvakningar um umhverfisvernd. Á tímum sem þessum þar sem losun úrgangs er mikil þarf almenningur að taka höndum saman um vistvænni lifnaðarhætti. Jafnframt þurfa stjórnmálamenn að axla þá ábyrgð sem þeim ber til að benda fólki á þær vel færu leiðir, sem leiða til betra umhverfis, og ekki skerða heldur auka almenn lífsgæði.
Ábyrgð atvinnurekenda og einstaklinga á umhverfi þeirraÞing unga fólksins telur að atvinnurekenda og einstaklinga eigi í auknum mæli að axla ábyrgð á þeirri mengun er þeir valda. Ströng skaðabótaskylda, eins og reglur um hlutlæga ábyrgð, þar sem mengunarvaldur borgar, getur verið fýsilegur kostur að koma böndum á mengun heldur en opinberir aðilar og eftirlit þeirra. Slík ábyrgð er rétti hvatinn fyrir einkaaðila til að gæta að umhverfi sínu. ÞUF telur jafnframt að umhverfisskattar séu letjandi á atvinnulífið og því ekki fýsilegir til þess að stuðla að minni mengun. Umhverfisskattur eða mengunarkvótar geta þó átt við þegar reynt er að stuðla gegn loftmengun.
Virkjanamál
Þing unga fólksins telur mikilvægt að gæta varúðar í virkjanamálum. Með því að sökkva víðfeðmum landsvæðum undir virkjanalón erum við að taka stórar ákvarðanir sem hafa áhrif á framtíð landsins, náttúru þess og möguleika. Horfa verður á slíkar gjörðir á heilstæðan hátt og leggja raunverulegt og óháð mat á þær auðlindir sem verið er að fórna. Ekki gengur að nýta verðmæt landsvæði til að framleiða raforku sem er seld stóriðjufyrirtækjum undir kostnaðarverði. Með slíkum aðgerðum erum við að gefa frá okkur landið án þess að fá nokkuð tilbaka. Óarðbærar virkjanaframkvæmdir eru engum til framdráttar.
Aukið frelsi í landbúnaði
Þing unga fólksins telur að landbúnaður eigi eins og aðrar atvinnugreinar að verða sem fyrst laus við sértæka skattlagningu og niðurgreiðslu af hálfu hins opinbera. Ísland ætti að skipa sér í lið með þeim ríkjum sem mæla með afnámi viðskiptahindrana milli landa og leggja áherslu á frjáls viðskipti með landbúnaðarvörur. Í því skyni er mikilvægt að landbúnaður verði leystur úr því kerfi hafta og miðstýringar sem nú er við lýði. Myndi það leiða til aukins sveigjanleika á nýtingu bænda á eignum sínum og einnig skila sér í lægra vöruverði til neytenda.
Launamunur kynjanna
Þing unga fólksins harmar að konur fái enn ekki sömu laun og karlar, þótt þær vinni sambærileg og jafnverðmæt störf. Þrátt fyrir fögur loforð og staðhæfingar um að þróunin sé í rétta átt sýna kannanir okkur að launamunur kynjanna er ekki að minnka. Þó að þær aðgerðir sem komið hafa fram hjá hinu opinbera hafi skilað einhverjum árangri þá telur ÞUF að einnig þurfi að leita fleiri leiða. Þingið skorar á starfsmenn og atvinnurekendur að beita sér fyrir því að launamuni kynjanna verði útrýmt.
Réttindi samkynhneigðra
Þing unga fólksins hvetur þingmenn til þess að má úr lögum alla mismunun á grundvelli kynhneigðar. Samkvæmt núgildandi lögum geta samkynhneigðir ekki skráð sig í óvígða sambúð og í lögum um staðfesta samvist og lögum um tæknifrjóvganir eru ákvæði sem fela í sér þessa mismunun. Sumir hafa lýst yfir ótta um að samstarf um ættleiðingar kunni að skaðast ef til þessa kæmi en fordómar annarra ríkja í garð samkynhneigðra eru ekki réttlæting á lagalegu misrétti. Reynsla Svía til dæmis er sú að ekki verði hnökrar á samstarfi um ættleiðingar eða ættleiðingum fækki á nokkurn hátt. ÞUF telur það vera rétt barna að fá að alast upp hjá ástríkum foreldrum og skiptir þá ekki máli hvort þeir eru samkynhneigðir eða gagnkynhneigðir. ÞUF getur ekki sætt sig við mismunun.
Aðskilnaður ríkis og kirkju
Þing unga fólksins telur mikilvægt að aðskilja ríki og kirkju að fullu leyti sem fyrst. Í nútímaþjóðfélagi er ótækt að ríkisvaldið taki að sér að styðja og vernda eitt trúfélag umfram önnur. Þetta fyrirkomulag samrýmist ekki hugmyndum um frelsi borgaranna í lýðræðisþjóðfélagi og mismunar trúfélögum hér á landi. Einnig er mikilvægt að tryggja jafnræði milli trúfélaga eftir aðskilnað þannig að ríkið styrki ekki sum trúfélög hlutfallslega meira en önnur með fjárveitingum. Mikilvægt er að réttur til trúleysis sé jafn vel tryggður og trúfrelsi og að þeim er standa utan trúfélaga verði ekki gert að greiða sérstakt gjald til ríkisins líkt og nú er. Einnig telur ÞUF að ríkið eigi ekki að annast innheimtu sóknargjalda fyrir trúfélög.
Landið að einu kjördæmi
Þing unga fólksins telur farsælast að landið allt verði gert að einu kjördæmi. Rétturinn til að kjósa eru meðal mikilvægustu réttinda sem tryggð eru í lýðræðisríkjum og því er mikilvægt að jafnræði sé meðal kjósenda þannig að atkvæði allra hafi sama vægi. Atkvæðavægi var nokkuð jafnað í síðustu kjördæmabreytingu en fullt jafnvægi verður aldrei tryggt nema landið verði að einu kjördæmi. Þingmenn eiga að starfa í þágu allra landsmanna, og bera hag þeirra fyrir brjósti, en óheppilegt er að fámennir hópar geti knúið á um ríkisframkvæmdir sem koma þeim vel, en ekki endilega þjóðarbúinu í heild.
Málefni innflytjenda
Þing unga fólksins fagnar því að fólk vilji setjast að á Íslandi og er fylgjandi frjálsum fólksflutningum. Mikilvægt er að ekki sé gert upp á milli einstaklinga eftir kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða stöðu að öðru leyti. ÞUF telur mikilvægt að innflytjendur hafi gott aðgengi að íslenskunámi, þó að íslenskukunnátta verði ekki skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar. Einnig skulu útlendingar sem hafa verið virkir þátttakendur í íslensku samfélagi njóta allra almennra réttinda sem ekki eru bundin við ríkisborgararétt.
Birting álagningar- og skattskráa hætti
ÞUF telur að leggja skuli af opinbera birtingu álagningar- og skattskráa án tafar. Slík birting á upplýsingum um fjármál borgaranna er ekki réttlætanleg og felur í sér brot á rétti borgaranna til friðhelgi einkalífs. Helstu áhrif birtingarinnar nú til dags eru þau að gefa fjölmiðlum kost á að greina almenningi frá tekjum kunnra einstaklinga í þjóðfélaginu auk þess sem fólki gefst kostur á að kynna sér tekjur náungans, sem að öllu jöfnu teljast til viðkvæmra persónulegra upplýsinga. Af þessum sökum er ljóst að nauðsynlegt er að afnema þessa heimild án tafar.
Samfélagsþjónusta teljist til viðurlaga
ÞUF leggur til að samfélagsþjónusta verði skilgreind sem viðurlagategund, en ekki fullnustuúrræði stjórnvalda líkt og reyndin er hér á landi. Mikilvægt er að hlutverk og verkaskipting milli dómsvalds og framkvæmdarvalds verði betur skilgreind hvað varðar refsingar. Áréttað er mikilvægi þess að dómstólar ákvarði refsingu sem framkvæmdaraðili getur ekki breytt. Það á að vera á valdi dómstóla að ákveða lengd þeirra refsinga sem einstakir brotamenn afplána en ekki fangelsismálastjóra. ÞUF hvetur einnig til þess að samfélagsþjónusta verði efld og notuð í ríkara mæli.
Fjárlagagerð
ÞUF hvetur stjórnvöld til að vanda til verks við gerð fjárlaga þannig að þau gefi sem raunsæjasta mynd af útgjöldum og tekjum ríkissjóðs. ÞUF minnir einnig á að fjárlög eru lög og þeim ber að fylgja eins og öðrum lögum settum af Alþingi. Fjáraukalagaheimild ætti einungis að nota til að mæta óvæntum útgjöldum ríkissjóðs en ekki til að fegra fjárlagagerðina sjálfa eða til að mæta útgjöldum sem gera hefði mátt ráð fyrir við hana.
Afnám heimildar til setningar bráðabirgðalaga
Leggja skal niður heimild til að setja bráðabirgðalög. Löggjafarvaldið á að liggja hjá réttkjörnu Alþingi og í dag eru samgöngur það góðar að hægt er að kalla saman Alþingi með mjög stuttum fyrirvara til að kanna hvort þingmeirihluti liggur fyrir lagasetningunni. Er það breyting frá því sem áður var og því rétt að fella ákvæðið niður.
Nýjar aðferðir við breytingu á stjórnarskrá
ÞUF leggur til að tekin verði upp sú regla að til þess að hægt verði að breyta stjórnarskrá þurfi að ná samþykki 2/3 hluta alþingismanna, en nú er ekki kveðið á um aukinn meirihluta. Í kjölfarið skuli boða til almennra kosninga, eins og nú, en samhliða þeim kosningum skuli breytingarnar þó bornar undir atkvæði þjóðarinnar til samþykkis eða synjunar. Einfaldur meirihluti nægi til að samþykkja breytingarnar. Eðlilegt verður að teljast að þjóðin fái að greiða sérstaklega atkvæði um breytingar á stjórnarskrá samhliða þingkosningum, enda var stjórnarskráin upphaflega samþykkt með þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fullt sjálfræði við sjálfræðisaldur
Mikilvægt er að ljóst sé í lögum hvenær einstaklingur telst sjálfráða, bæði í orði og á borði. Því er lagt til að þær hömlur sem ríkisvaldið leggur á einstaklinga fyrir aldurs sakir falli niður þegar sjálfræðisaldri er náð. ÞUF telur því til dæmis að lækka beri áfengiskaupaaldur úr 20 árum í 18 ár.
Bókhald stjórnmálaflokka
ÞUF hvetur stjórnmálaflokka til að huga betur að því að opna bókhald sitt telji þeir það þjóna hagsmunum sínum. Einkum er mikilvægt að há framlög fyrirtækja verði gerð opinber til að eyða allri hugsanlegri tortryggni.
Kosningalöggjöf
Þing unga fólksins hvetur til breytinga á kosningalöggjöfinni. Meðal annars vill ÞUF auka vald kjósenda til að hafa áhrif á uppröðun lista, t.d. með auknu vægi útstrikana eða með möguleika á því að númera sjálfir nöfn frambjóðenda þess flokks sem þeir kjósa. Auk þess vill ÞUF að auðir seðlar í kosningum verði taldir sérstaklega en ekki með ógildum eins og nú er.
Fyrning kynferðisbrota
ÞUF leggur til að fyrningarfrestur kynferðisafbrota gegn börnum verði afnuminn. Slík brot eru í eðli sínu ólík mörgum öðrum ofbeldisbrotum, meðal annars að því leyti að fórnarlömbin leita sjaldnast réttar síns fyrr en mörgum árum eftir að brot á/eiga sér stað. Ekki verði slakað á kröfum um sönnun, þar sem sönnunarbyrðin verður eftir sem áður þung þrátt fyrir afnám fyrningarfrests.
Málefni fanga
ÞUF leggur áherslu á að mannréttindi fanga séu að fullu virt og staðið verði betur að aðbúnaði fanga á Íslandi. Mikilvægt er að yfirvöld grípi inn í og sjái til þess að þeir sem sitja í fangelsum landsins og þurfa á læknishjálp að halda fái þá meðferð. Þingið leggur áherslu á að gengið sé úr skugga um líkamlega og andlega heilsu fanga áður en honum er gert að sæta einangrun. Jafnframt leggur Þingið áherslu á að þeir fangar sem eiga við fíkniefna- , áfengis-, eða geðvandamál að stríða fái bót meina sinna með viðeigandi meðferð.
Stjórnarráðið
ÞUF telur rétt að fækka ráðuneytum svo þau sem eftir standa séu sterkari og betur í stakk búin til að takast á við verkefni sín auk þess sem þessu fylgir hagræðing í rekstri. ÞUF telur rétt að stefna að því að ráðuneyti á Íslandi verði á bilinu 6 til 8.
Hver er þín skoðun?
3 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Verður ekki birt hversu mörg atkvæði hvert mál fékk?
Sýnist margt mjög gott sem kom frá þessu þingi – en annað miður enda margar ályktanir á ferð og maður er auðvitað ekki sammála þessu öllu.
Ríkisreksturinn: Get tekið undir langflest af því og mjög gott að minnst sé á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Stjórnarráðsályktunina neðst í plagginu styð ég að sjálfsögðu.
Heilbrigðiskaflinn er ágætur að flestu leyti. Finnst þó of mikil hægrisvipur á sumu sem þar stendur, einkum sú trú að útboð leysi allan vanda. Þó er ég ekki lokaður fyrir útboðum á stoðþjónustu en minni samt, sem víti til varnaðar, á hið misheppnaða útboð ræstinga hjá félögum mínum í Hafnarfirði – eiginlega einu mistökin sem sá góði meirihluti hefur framið. Menn mega því ekki ,,átsorsa“ af því bara. Það verður að vera í senn hagkvæmt og að kjör viðkomandi starfsfólks séu á engan hátt skert.
Síðan er samkeppni á þessu sviði frekar varhugaverð, enda ekki markaðsstarfsemi. Með samkeppni á félagslegum sviðum þjóðfélagsins eru menn að búa til einskonar ,,innri markað“ sem hugnast mér ekki. Sakna síðan að ekki sé kveðið á um fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og einnig harma ég að ekki sé neitt um að taka upp tilvísanakerfi þegar búið væri að efla heilsugæsluna (sem er forsendan fyrir þessari breytingu). Það á að taka á ofríki sérfræðilækna gagnvart skattgreiðendum sem og ofríki lyfjaauðvaldsins. Og eitt enn: Sakna þess að ekki sé kveðið á um að lækka þau stéttskiptandi notendagjöld sem hafa verið notuð til að fjármagna allar skattalækkanirnar á breiðu bökin.
Ódýrari tannlæknaþjónusta, efling heilsugæslunnar og ókeypis getnaðarvarnir – þessar ályktanir eru hins vegar afbragð og til mikils sóma.
Áfengismálin (hikk!!): Sammála nokkurn veginn. Hef reyndar ekkert rosalega sterkar skoðanir á ÁTVR – er þó frekar á því að breyta fyrirkomulaginu. Áfengisgjaldið finnst mér besti hluti ályktananna um brennsann. Okrið á okkur þjórurum er vitaskuld til háborinnar skammar!!
Skattamál: Er ósammála þar. Vil bæði nota skattkerfið til tekjuöflunar og tekjujöfnunar. Að nota bótakerfið í tekjujöfnun er á hinn ölmusuhugsunarháttur og grefur undan tiltrú á velferðarkerfið. Plús það að ölmusubætur eru langverstu dæmin um jaðaráhrif – 100% fátæktargildrur. Þó auðvitað séu jaðarskattarnir líka ansi háir á millitekjufólki, sérstaklega barnafólki sem gjörsamlega er níðst á. En ég vil ekki flatan skatt heldur einhvers konar þrepaskatt(samt ekki of flókinn). Má þó alveg skoða flatan skatt ef það er gert útfrá BSRB-tillögunum. Vil ekki sjá helv…. Verslunarráðstillögurnar.
Banni við álagningu skattskráa neðar í plagginu leggst ég algerlega gegn. Það á ekki að vera neitt feimnismál hvað fólk er með í laun og ég þoli ekki þegar mönnum er, af vinnuveitendum, bannað að tala um hvað það hefur í kaup. Fólk á auðvitað að ráða því hvort það segir öðrum frá því, en álagningarskrár eiga að vera uppi á borðinu. Frjálshyggjuvællinn um bann við birtingunni er auðvitað bara gamla slitna platan um að til sé fólk í þjóðfélaginu sem ekki sofi fyrir velgengni annarra. Þessari pillu er einsog við vitum beint gegn fólki sem hefur það einna verst í þjóðfélaginu. En í ljósi allra upplýsinga um sífellt ójafnari skiptingu kökunnar – er þessi öfundarsöngur hægrisins helber lygi og kjaftæði.
Húsaleigubótatillagan er brilljant!!
Allt um samræmd próf er snilld! Enda eru þessi próf eitt ömurlegasta fyrirbærið sem fundið hefur verið upp í menntakerfinu – man bara hvað þau voru þvílíkt notuð sem grýla á mann í 10. bekk. Er líka sammála tillögunni um námsskrár. Tillögur um leikskóla og fatlaða nemendur eru mjög fínar. Veit samt ekki með þetta hagræðingartal þó fólk megi alveg reka leikskóla á non-profit grunni.
Ég sakna þess eindregið að ekki sé lagst gegn skólagjöldum og bent í leiðinni á aðstöðumuninn milli ríkis- og ,,einka“háskóla (hf.-skóla á ríkisspenanum). Þessu óréttlæti á ungt menntafólk auðvitað að mótmæla!
LÍN: Sammála því að bankar geti haft umboð fyrir flestöllu af þjónustuþætti Lánasjóðsins. Hins vegar harma ég að ekki skuli kveðið á um að greiða fólki námslán jafnóðum, beint frá sjóðnum. Og um að lina aðeins námsframvinduákvæðin. Það á auðvitað að taka breytuna sem kallast bankakerfi út úr framfærslu námsmanna. Enda siðlaust að ,,fjárhúsin“ séu að græða svoleiðis þvílíkt á manni einsog þetta er í dag. Vil sjá bankana hjálpa til með þjónustu við LÍN (einsog þeir gera nú þegar að sumu leyti) en sjóðurinn á sjálfur að framfleyta fólki. Hins vegar leggst ég algerlega gegn því að bankarnir veiti námslán einsog SUSarar vilja, og mér sýnist reyndar ekki verið talað í plagginu um að leggja LÍN niður. Hjartanlega sammála með frítekjumarkið.
RÚV: Það á auðvitað að endurskoða það. Og leggja niður Útvarpsráð í núverandi mynd (þessa ómögulegu flokkspólitík sem þar ræður ríkjum núna). Aftur á móti vara ég við breytingu á rekstrarformi en gæti fellt mig við sjálfseignarstofnun í eigu ríkisins. En aldrei hlutafélag!!!
Tek heilshugar undir sparnað í Utanríkisþjónustunni. Fagna því að SUSarar hafi orðið undir í ályktuninni um þróunarríkin – þeir mega sumir hverjir ekki heyra minnst á niðurfellingu skulda 3ja heimsins, hvað þá það ofbeldi sem IMF og WTO beita þessi ríki með ógeðfelldar hagfræðikreddur að vopni.
Allt um mannúðarmál, umhverfismál, virkjanamál og landbúnað styð ég 100%.
Með launamun kynjanna tek ég að sjálfsögðu undir, sem og ályktum um kynhneigð fólks. Trúfrelsismálin fá góða ályktun en þó vil ég að ríkið innheimti sóknargjöld.
Kjördæmamálið er mitt hjartans mál og er sú tillaga hin ágætasta.
Auknar persónukosningar (ályktun um kosningalöggjöf) koma um leið til greina og hljóta þá vonandi hin ógeðslegu prófkjör að leggjast af. Bráðabirgðalögin eru auðvitað gargandi tímaskekkja og gott hjá ungliðunum að minnast á þau. Sömuleiðis er stjórnarskrártillagan til mikilla bóta. Bókhaldsskylda flokkanna er grundvallarkrafa en ég vil breyta fjármögnun þeirra. Ríkið og sveitarfélög eiga að mínu mati að fjármagna þá í staðinn fyrir að þeir séu að betla af auðvaldinu rétt fyrir kosningar með tilheyrandi metingi eftir kosningarnar hver fór mest framhjá bókhaldsskyldunni. Síðan eiga flokkar að byggja á meðlimagjöldum einsog í Evrópu. Og sömuleiðis á að banna sjónvarpsauglýsingar í þeim mæli sem orðið er. Þetta væri ein besta leiðin til að útrýma Framsóknarflokknum!!!
Innflytjendaályktunin er einsog töluð útúr mínu hjarta. Gott að bölvaður rasisminn skuli ekki hafa skotið rótum hér einsog víða erlendis. Allt í ályktanapakkanum um dómsmál styð ég.
Þetta eru í heildina fínar ályktanir og gott að fólk skuli ástunda heilbrigð ,,samræðustjórnmál“ en ekki eintóma skotgrafapólitík. Sumar ályktanir eru þó annað hvort of miðjumoðslegar eða of langt til hægri fyrir minn smekk (enda fleiri en UJ og UVG á þinginu!) en flest af þessu er mjög gott.
Prýðilegasta framtak hjá ungliðahreyfingunum!
Varð að svara þessu með skattamálin.
Í fyrsta lagi þá er ekkert því til fyrirstöðu að hlutfallslegur flatur skattur sé notaður til tekjujöfnunar enda er hlutfall af tekjum hvers og eins notað til útreiknings á skattstofni.
Það er algjör mótsögn að segja ég vil fá þrepaskatt en ekki of flókinn. Þrepaskattur er flókinn.
Nú er ég jafnaðarmaður og jafnframt flutningsmaður tillögunnar um flatan skatt. Ég tel að vinstrimenn þurfi að fara að vakna þegar að kemur að skattamálum. Þeim líður alltaf svo illa ef að ríkt fólk er ekki skattlagt sérstaklega fyrir að vera ríkt, jafnvel þrátt fyrir að fólk borgi nú þegar hlutfallslegan skatt. Ergo maður með 200 þús borgar minna en maður með 1000 þús þrátt fyrir að báðir borgi sömu prósentu. Vinstrimenn vilja sjá sérstakan hátekjuskatt sem skilar engu í kassann bara til að þeim líði betur. Já, við erum sko að láta ríka fólkið finna fyrir því að vera ríkt.
Flatur skattur er fyrst og fremst ætlaður til að einfalda skattheimtu ríkisins og draga úr skattsvikum. Einnig að jafna það bil sem er á milli fyrirtækja og einstaklinga þegar kemur að skattheimtu.
Og hananú.