Fahrenheit 9/11


Nýjasta mynd Michael Moore, Fahrenheit 911 (F9/11), hefur fengið verðskuldaða athygli í Bandaríkjunum. Enda fjallar hún á beittan hátt um George Bush Bandaríkjaforseta og tengsl hans, og bandarískra stjórnvalda, við fjársterk fyrirtæki, fjölmiðla, vopnaframleiðendur, olíuiðnaðinn, einræðisherra og eftirlýsta hryðjuverkamenn svo eitthvað sé nefnt. Þessi gagnrýni fer afskaplega illa fyrir brjóstið á Repúblíkönum um allan heim, þar á meðal íslenskum. En eins og fer framhjá fáum þá sjá fjölmargir íhaldssamir Sjálfstæðismenn vart sólina fyrir Bush og Repúblíkanaflokknum.


Síðan sýningar á F9/11 hófust í Bandaríkjunum hafa íhaldsmenn keppst við að fullyrða að nánast allt sem fram kemur í myndinni sé byggt á blekkingum og lygum. Sannleikurinn er hins vegar sá að stór hluti þessarar gagnrýni er hins vegar sjálfur byggður á blekkingum og lygum.

Það ætti ekki að fara framhjá neinum að F9/11 er langt frá því að vera hlutlaus mynd. Moore hefur margsinnis lýst því yfir að markmið hans sé meðal annars að koma Bush frá völdum. Þeir sem vita eitthvað um Moore vita líka að hann gefur sig út fyrir að vera kaldhæðinn. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að í F9/11 er Bush bæði harðlega gagnrýndur og hæddur.

En eru þær staðreyndir sem Moore teflir fram hins vegar sannar? Langflestar eru það. Sumar eru óljósar, aðrar umdeilanlegar en flest af því sem kemur fram í myndinni er sannleikanum samkvæmt og ætti að vekja fólk til umhugsunar.

Fjallað var um F9/11 í Kastljósi Sjónvarpsins í gær og var blaðamaðurinn Ólafur Teitur einn þeirra sem tók þátt í umræðunni. Ólafur Teitur var greinilega nýbúinn að lesa leiðarvísi íhaldsmanna um myndina “Fifty-nine Deceits in Fahrenheit 9/11” eftir Dave Kopel og virtist sannfærður um F9/11 væri meira eða minna skáldskapur. Það sem Ólafur Teitur vissi væntanlega ekki var að ásökunum Kopels hefur verið svarað nokkuð ítarlega lið fyrir lið. Bæði af Moore sjálfum og á vefsíðunni Daily Kos (“Debunking the 59 Deceits”).

Það er ástæða til þess að hvetja alla þá sem hafa séð, eða ætla að sjá, F9/11 til að kynna sér þá ítarlegu umfjöllun sem átt sér hefur stað um myndina og komast að sinni eigin niðurstöðu.

Nauðsynlegt ítarefni fyrir þá sem hafa séð F9/11:
Fifty-nine Deceits in Fahrenheit 9/11
Debunking the 59 Deceits: Deceits 1-2
Debunking the 59 Deceits: Deceits 3-7
Debunking the 59 Deceits: Deceits 8-16
Debunking the 59 Deceits: Deceits 17-23
Debunking the 59 Deceits: Deceits 24-31
Debunking the 59 Deceits: Deceits 32-38
Debunking the 59 Deceits: Deceits 32-38
Debunking the 59 Deceits: Deceits 39-49
Debunking the 59 Deceits: Deceits 50-59
Fahrenheit 9/11 Notes + Sources

Hver er þín skoðun?

Efnisorð: ,


14 athugasemdir

  1. Michael Moore er flinkur áróðursmeistari og græðir á tá og fingri. Dr. Goebbels hefði án efa orðið afar stoltur af þessu skilgetna afkvæmi sínu, hefði hann fengið tækifæri til að sjá vinsældir og ríkidæmi þess.

  2. Flinkur áróðursmeistari: Já það er hann. Græðir á tá og fingri: Ekki spurning. Goebbels hefði orðið stoltur af honum: Tja hver veit?

    Moore er góður kvikmyndagerðarmaður, ríkur og hugsanlega hefði Goebbels fílað hann. Og hvað með það? Hvað kemur þetta efni myndarinnar við? Er það sem Moore segir í myndinni byggt á staðreyndum? Getur þú nefnt mér dæmi um þar sem Moore beinlínis lýgur?

    Persóna Moore er aukaatriðið. Efni myndarinnar er aðalatriði. Ég vil fá að heyra góða umræðu um myndina sjálfa, en ekki um persónu og vaxtarlag Moore (eins og margir íhaldsmenn í BNA leggja áherslu á).

    En talandi um Goebbels, var það ekki vinur hans Göring sem sagði:

    “…Voice or no voice, the people can always be brought to the bidding of the leaders. That is easy. All you have to do is tell them they are being attacked, and denounce the peacemakers for lack of patriotism and exposing the country to danger. It works the same in any country.“

    Hermann Göring

    Hljómar óhugnalega líkt og áróðursstríð Bush og félaga gegn hryðjuverkum.

  3. Hef ekki séð F9/11 og vil því ekki dæma hana. Las bókina „Dude, Where’s My Country?“, en hún ku vera nokkuð keimlík myndinni. Fyndinn bók á margan hátt. Lýgur Moore beinlínis? Ég held að hann sé klókari en svo, við skulum frekar segja að hann hagræði sannleikanum aðeins eða túlki staðreyndir frekar einhliða málstað sínum í hag.

    Renndi yfir listann hjá Dave Kopel og fannst hann nokkuð sanngjarn og trúverðugur í gagnrýni sinni. Kopel fer líka yfir gagnrýni Moore á sig og sýnir fram á rökþrot Moore í mörgum atriðum.

    Ætla ekki að hætta mér í frekari rökræður um meintar lygar hjá Moore, er ekki nægilega miklill vinur Bush fjölskyldunnar til að nenna því :)

    Vinir Moore segja að hann noti sömu aðferðir – með öfugum formerkjum – og fjölmiðlar auðvaldsins; að hann sé gott mótvægi við þá. Það kann að vera nokkuð til í þessu. Vantar okkur ekki öflugan íslenskan „Michael Moore“ til að mynda mótvægi við fjölmiðla auðvaldsins hér á landi? Sanna nýleg dæmi ekki þörfina?

  4. Hljómar óhugnalega líkt og áróðursstríð Bush og félaga gegn hryðjuverkum.

    Í síðustu viku sáum við myndir af því hvernig peningafabrikkur í Bandaríkjunum voru settar í uppnám með vopnuðum vörðum og stælum, enda fullyrt að nú væri yfirvofandi hryðjuverkaárás á þessar stofnanir. Ég verð að viðurkenna að gegnum huga mér flaug það eitt að ég gæti ekki keypt þetta sem sannleika – fannst það lykta of líkt stjórnvaldsaðgerðum í bók Orwell, 1984, þar sem ein og ein sprengja var látin falla í prólahverfunum til að réttlæta háþróað eftirlitið með þegnunum. Það er jú stríð.

  5. “…Voice or no voice, the people can always be brought to the bidding of the leaders. That is easy. All you have to do is tell them they are being attacked, and denounce the peacemakers for lack of patriotism and exposing the country to danger. It works the same in any country.“
    Hermann Göring

    Vissi ég ekki að Herman Göring þessi hafi talað ensku.

  6. Ég vil fá að heyra góða umræðu um myndina sjálfa…

    Þessi setning úr innleggi SHG hér að ofan var upphaflega svona:

    Mig hlakkar til að heyra góða umræðu um myndina sjálfa…

    Gaman að sjá að fleiri en Björn Bjarnason „ritskoða“ textann eftirá :)

    Þú fyrirgefur, Sigurður, en ég stóðst ekki mátið, enda slíkt „cheap shot“ algerlega í anda Michael Moore sem hér er til umræðu, sjáið bara hvernig hann hæðist að GWB greyinu :)

    Oft hefur maður óskað þess að geta lagfært texta sem maður sendir frá sér í hita leiksins, en er það ekki bara skemmtilegra að „fjólurnar“ standi?

  7. Óska þess eins að myndin hafi sín áhrif til að koma valdaræningjanum Bush frá völdum. Annað þarf ekki.

  8. Vildi líka bæta því við að Göbbels og Göring komust að því illu heilli, hvernig átti að ná heilli þjóð á sitt band. Og þrátt fyrir allan viðbjóðinn sem fylgdi í kjölfarið og hugmyndir hins vestræna heims um mannréttindi og virðingu, þá var ekki hægt að koma í veg fyrir að menn af sama meiði komust til valda í Bandaríkjunum 2001. Sorgleg staðreynd blasir við og það er í raun heimska að halda að menn einsog Bush og félagar væru ekki til í að nýta sér aðferðir nasista sem virkuðu svo vel á 3. og 4. áratug síðustu aldar. Þá þurfti að hreinsa burt gyðinga og óæðri kynstofna en nú á að gera það sama við araba og múslima, Jesú gegn Múhameð.

  9. „Vissi ég ekki að Herman Göring þessi hafi talað ensku.“

    Enda gerði hann það ekki. Ekki svo ég viti í það minnsta. Þessa setningu eftir hann er hins vegar að finna í enskri útgáfu bókarinnar „Nuremberg Diary“ eftir Gustave Gilbert. Þar sem ég kann ekki þýsku og er of latur til að þýða textann yfir á íslensku fær hann að vera hér á ensku. :)

    Sigurður Ólafsson:
    Come on! Ég var að lagfæra illa skrifaðan texta, ekki breyta merkingu hans. There is a difference you know?

    Annars bendi ég á tengda grein þar sem ég vitnaði einnig til ofangreindra orða Görings:
    Þjóðernisáróður virkar enn

  10. Enda gerði hann það ekki [þ.e tala ensku]. Ekki svo ég viti í það minnsta. Þessa setningu eftir hann er hins vegar að finna í enskri útgáfu bókarinnar „Nuremberg Diary“ eftir Gustave Gilbert. Þar sem ég kann ekki þýsku og er of latur til að þýða textann yfir á íslensku fær hann að vera hér á ensku. :)

    Ég gerði mér grein fyrir því að eitthvað þessu líkt væri sennilega ástæðan fyrir þessari óvæntu enskunnuáttu Görings, svona úr því að textanum var ekki snarað yfir á Íslenskuna á annað borð. Mér finnst bara svolítið fyndið að nánast alltaf skuli vitnað í erlenda menn á ensku, sama hvaða þjóðar þeir voru og tungumál þeir töluðu, bara eins og ekkert sé sjálfsagðara: „Stalín sagði…romsa á ensku; Hitler sagði…romsa á ensku; Plato sagði…romsa á ensku…o.s.frv. Er þetta ekki svolítið sjálAMverf sýn á heiminn sem helgast af því að við Íslendingar, ólíkt mörgum öðrum Norður Evrópuþjóðum, tölum upp til hópa ekkert annað erlent tungumál heldur en ensku? Minnir svolítið á amerískar geimverumindir en eins og allir vita sem hafa séð slíka framleiðslu þá eru verur frá öðrum höttum, svo undarlegt sem það nú er, oftar en ekki flugmælskar á enskri tungu.

    Bara smá athugasemd til umhugsunar og meint í góðu ;-)

  11. hPMPMe… skemmtileg komment hjá þér Hrafnkell

    En það er svo skiljanlegt að þeir sem lesi þetta skuli stundum vera nett pirraðir. Hvað tengist þetta Micheal Moore og þessari grein sem siggi skrifaði?

    Ekkert! Hugleiðingar um enskuslettu Íslendinga tengist henni ekkert.

    Fínt að koma með hana í umræðurnar til hliðar en ekki sem skoðun á sjálfri greininni.

    Annars er Micheal Moore áróðursmaður, maður á alltaf lesa og horfa á allt sem hann segir með þeim gleraugum. Hann bendir á marga hluti sem vert er að íhuga en ekki taka því öllu sem sannleika.

  12. Heill og sæll Sigurður!

    Þú segir: „Það sem Ólafur Teitur vissi væntanlega ekki var að ásökunum Kopels hefur verið svarað nokkuð ítarlega lið fyrir lið. Bæði af Moore sjálfum og á vefsíðunni Daily Kos („Debunking the 59 Deceits“).“

    Ef þú hefur lesið grein Kopel, sem ég geri ráð fyrir, veist þú væntanlega að hann vitnar SJÁLFUR í svörin sem birt eru á vef Moore og „linkar“ á þau. Ég gæti því ekki hafa lesið Kopel án þess að vita af svörum Moore-vefsins!

    Ég hef reyndar ekki aðeins lesið útdrátt Kopel á svörunum heldur kynnt mér þau allvel. Ég vann grein um myndina upp úr samantekt Kopel (hún birtist í Viðskiptablaðinu í dag, föstudag) og las hvert einasta svar Moore-vefsins við þeim atriðum Kopels sem ég nefni í greininni. Ekki eitt einasta svar breytir að mínu mati neinu um niðurstöðu Kopel. Enda hefur Kopel sjálfur breytt grein sinni þar sem honum fannst svörin réttmæt, t.d. varðandi tölur um atvinnuleysi í Flint sem Kopel fullyrti upphaflega að Moore hefði farið rangt með en hefur nú dregið þá ásökun til baka.

    Ég hafði hins vegar ekki heyrt um „Daily Kos“ fyrr en ég sá pistil þinn. Ég kíkti á þessa síðu áðan en sé ekki að þarna sé gerð tilraun til þess að svara nema fyrstu TVEIMUR atriðum af 59! Er það misskilningur hjá mér? Það getur auðvitað vel verið að eitthvað hafi farið fram hjá mér en ég gerði heiðarlega tilraun til að finna þetta. Leiðbeindu mér endilega um hvar ég get fundið restina.

    Ég fæ ekki séð að neitt komi fram á vef Moore eða Daily Kos sem rennir stoðum undir þessa fullyrðingu þína: „… stór hluti þessarar gagnrýni er hins vegar sjálfur byggður á blekkingum og lygum.“

    Enda sýnist mér Kopel hafa vandað sig. (Hann er enginn sérstakur aðdáandi Bush og studdi Nader árið 2000, rétt eins og Michael Moore gerði.) Ég trúi því varla að þér finnist samantekt hans um blekkingarnar 59 vera ósanngjörn, hvað þá að hún sé „blekkingar og lygar“. Hvaða dæmi eru um það?

    Margt í myndinni á sjálfsagt rétt á sér. En hvað? Því miður telja flestir bíógestir að svarið sé: „Allt.“ Þeir vita að hún er hlutdræg en gera ráð fyrir að hún sé a.m.k. meira eða minna sönn, enda heldur Moore því fram að allt sé satt og rétt í henni. Mjög fáir hafa fyrir því að kynna sér blekkingarnar, sem eru hreint ævintýralega bíræfnar! Að mínu mati er myndin allt að því glæpsamleg og í öllu falli dapurlegt að vísvitandi blekkingar njóti slíkra vinsælda sem raun ber vitni og séu samþykktar sem sannleikur.

    Kær kveðja,
    Ólafur Teitur Guðnason

  13. Sæll Ólafur Teitur og takk fyrir innlegg þitt.

    “Ef þú hefur lesið grein Kopel, sem ég geri ráð fyrir, veist þú væntanlega að hann vitnar SJÁLFUR í svörin sem birt eru á vef Moore og „linkar“ á þau. Ég gæti því ekki hafa lesið Kopel án þess að vita af svörum Moore-vefsins!”

    Þetta er held ég ekki alveg rétt hjá þér þar sem Kopel hefur verið að uppfæra gagnrýni sína smám saman og svo best sem ég veit bætti hann tenglum á svör Moore síðar. Mér fannst líklegt að þú hefðir lesið umfjöllun Kopel áður hann bætti þessum tenglum við.

    “Ekki eitt einasta svar breytir að mínu mati neinu um niðurstöðu Kopel. Enda hefur Kopel sjálfur breytt grein sinni þar sem honum fannst svörin réttmæt, t.d. varðandi tölur um atvinnuleysi í Flint sem Kopel fullyrti upphaflega að Moore hefði farið rangt með en hefur nú dregið þá ásökun til baka.”

    Það að ekki eitt einasta svar Moore hafi breytt afstöðu þinni til myndarinnar verður þú að eiga við þig sjálfan. Ég legg hins vegar til að lesendur hundsi bæði mína og þína skoðun en kynni sér málið sjálfir. Auðvitað er mynd Moore áróðursmynd, því neitar held ég enginn. Staðreyndirnar tala hins vegar sínu mál. Það er ekki sanngjarnt að fullyrða að Moore sé beinlínis að ljúga öllu sem hann segir, það gerir hann ekki.

    “Ég hafði hins vegar ekki heyrt um „Daily Kos“ fyrr en ég sá pistil þinn. Ég kíkti á þessa síðu áðan en sé ekki að þarna sé gerð tilraun til þess að svara nema fyrstu TVEIMUR atriðum af 59! Er það misskilningur hjá mér? Það getur auðvitað vel verið að eitthvað hafi farið fram hjá mér en ég gerði heiðarlega tilraun til að finna þetta. Leiðbeindu mér endilega um hvar ég get fundið restina.”

    Já það er misskilningur hjá þér, en það er líklegast mikið til mér að kenna. Greinahöfundurinn, Anton Sirus, skrifaði gagnrýni sína í nokkrum greinum og svo virðist sem hann hafi ekki sett nægilega augljósa tengla á milli greinanna. Hér eru beinir tenglar á allar greinarnar:

    Debunking the 59 Deceits: Deceits 1-2
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 3-7
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 8-16
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 17-23
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 24-31
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 32-38
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 32-38
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 39-49
    Debunking the 59 Deceits: Deceits 50-59

    “Ég fæ ekki séð að neitt komi fram á vef Moore eða Daily Kos sem rennir stoðum undir þessa fullyrðingu þína: „… stór hluti þessarar gagnrýni er hins vegar sjálfur byggður á blekkingum og lygum.“”

    Ætli ég dragi þá ekki þessi orð mín til baka. Blekkingar og lygar eru kannski of sterk orð. Gagnrýni Kopels stenst hins vegar sjaldnast. Í sumum tilfellum fer hann með rangt mál, stundum mistúlkar hann myndina (viljandi?) og annað í gagnrýni hans ber vott um húmorsleysi. Ég ætla ekki að telja nein atriði upp hér, enda er það óþarfi þar sem ég hef nú vísað beint í gagnrýni Sirusar.

    “Margt í myndinni á sjálfsagt rétt á sér. En hvað? Því miður telja flestir bíógestir að svarið sé: „Allt.“ Þeir vita að hún er hlutdræg en gera ráð fyrir að hún sé a.m.k. meira eða minna sönn, enda heldur Moore því fram að allt sé satt og rétt í henni.”

    Já, margt í myndinni á nefnilega rétt á sér og ætti að vekja fólk til umhugsunar. Auðvitað er myndin hlutdræg, en hvað með það? Fréttir af stríðinu í Írak og aðdraganda þess hafa oft verið hrikalega hlutdrægar. Það er ágætt að Moore geti með vinsælli mynd sýnt aðra hlið á málunum en þá sem Bandaríkjastjórn vill sýna. Lygar eiga auðvitað ekki heima í heimildamyndum og nauðsynlegt er að benda á mikilvægar staðreyndarvillur. Að mínu mati hefur hins vegar hefur ekki verið bent á neitt sérstaklega bitastætt. Í besta falli má halda því fram að sumt sem fram kemur í F9/11 sé umdeilanlegt.

    “Mjög fáir hafa fyrir því að kynna sér blekkingarnar, sem eru hreint ævintýralega bíræfnar! Að mínu mati er myndin allt að því glæpsamleg og í öllu falli dapurlegt að vísvitandi blekkingar njóti slíkra vinsælda sem raun ber vitni og séu samþykktar sem sannleikur.”

    Að sama skapi hafa ekki margir kynnt sér svörin við gagnrýninni. Þess vegna setti ég tengla bæði á gagnrýni Kopels og á svörin við þeim. Þegar allar upplýsingar hafa verið skoðaðar held ég að niðurstaðan sé þessi: F9/11 er augljóslega ekki hlutlaus mynd, en upplýsingarnar sem fram koma í myndinni eru merkilegar og umhugsunarverðar. Efalaust leynast einhverjar staðreyndarvillur í myndinni, en þær eru ekki eins mikilvægar og þú virðist halda fram.

    Að lokum
    Þó að Moore sé hlutdrægur og geri óspart grín af Bush og Bandaríkjastjórn í F9/11 þá vekur myndin upp afar mikilvægar spurningar. T.d:

    1. Var staðið rétt af forsetakosningunum þegar Bush var kosinn?
    2. Eru óeðlileg tengsl milli valdamanna í Saudi arabíu og Bandaríkjastjórnar?
    3. Gerði Bandaríkjastjórn tilraun til að blekkja landa sína og heiminn allan í aðdraganda Írakstríðsins?
    4. Voru aðrar ástæður en ótti við hryðjuverk fyrir því að ráðist var inn í Afganistan og Írak?
    5. Eru óeðlilegt tengsl milli stórfyrirtækja í Bandaríkjunum og ríkisstjórnar landsins?
    6. Hafa þessi tengsl áhrif á stefnumótun Bandaríkjastjórnar?
    7. Er saklausi fólki fórnað í óþarfa styrjaldir?
    8. Er hræðsluáróður notaður til að fá fólk til að styðja ólöglegar og óþarfa innrásir til að “berjast gegn hryðjuverkum?”
    9. Er það satt að óeðlilega stór hluti hermanna sem fórnar lífi sínu í vafasömum styrjöldum séu fátækir Bandaríkjamenn?
    10. Er Bush hæfur forseti? Hefur hann meiri áhuga á að vinna fyrir örfá auðmenni og stórfyrirtæki en fyrir hinn almenna bandaríska borgara?

    Þetta eru allt áhugaverðar, mikilvægar og réttmætar spurningar. Ég þakka því Moore fyrir að gera skemmtilega mynd sem nær til svo margra sem raun ber vitni. Um leið er vert að hvetja fólk til að reyna skoða allar staðreyndir málsins og hugsa gagnrýnið.

    Ég hvet þig, Ólafur Teitur, einnig til að fjalla um ofangreind atriði. Það eru þau sem skipta höfuðmáli. Alveg burtséð frá því að F9/11 er áróðursmynd og að Moore er hlutdrægur.

    Kærar kveðjur,
    Sigurður Hólm Gunnarsson

  14. Sæll aftur.

    Takk fyrir hlekkina á restina af Daily Kos. Ég kíki á þetta.

    „Það er ekki sanngjarnt að fullyrða að Moore sé beinlínis að ljúga öllu sem hann segir.“

    Enginn hefur fullyrt það svo ég viti.

    Myndin vekur vissulega upp mikilvægar spurningar, en mér finnst Michael Moore ekki rétti maðurinn til að svara spurningum.

    Ég tek undir hvatningu þína til fólks um að kynna sér málið – og tel allar líkur á að það komist að sömu niðurstöðu og ég!

    Kær kveðja,
    Ólafur Teitur

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.