Til varnar mannréttindum


Eins og við mátti búast eru dönsk og íslensk mannréttindasamtök að undirbúa málsóknir gagnvart stjórnvöldum í heimalöndum sínum vegna þeirra innflytjendalaga sem þar eru í gildi. Íslensk stjórnvöld voru ítrekað vöruð við því að skerða mannréttindi með útlendingalögunum sem sett voru haust en yfirvöld ákváðu að hlusta ekki á gagnrýnisraddir. Nú geta íslensk stjórnvöld átt von á því að vera kærð og jafnvel sakfelld fyrir mannréttindabrot. Enn ein ástæða til þess að vera stoltur af því að vera Íslendingur, eða hvað?


Lesendur eru eindregið hvattir til að kynna sér umræðuna sem átti sér stað hér á www.skodun.is um útlendingalögin áður en þau voru samþykkt. Ljóst er að yfirvöld geta ekki sagt að þau hafi ekki verið vöruð við.

Af Skoðun:
Góður fundur í Iðnó um útlendingafrumvarpið

Rasistar styðja útlendingafrumvarpið

Þverpólitísk undirskriftasöfnun gegn breytingum á lögum um útlendinga

Verða mannréttindi skert með lögum?


Skoðun – Greinar um fjölmenningarlegt samfélag

Umsagnir:
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands

Umsögn Fjölmenningarráðs og W.O.M.E.N

Umsögn Mannréttindasamtaka innflytjenda

Greinar eftir Toshiki Toma (á Skoðun):

Útlendingalög og hjúskaparréttindi

Hjúskaparréttindi Íslendinga

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


4 athugasemdir

  1. Eigum við ekki að bíða og sjá hvort málið verði dómfest og hvernig það þróast þá fyrir rétti áður en við förum að fullyrða út í bláinn að ríkisstjórnin hafi brotið mannréttindi og að andmælendur frumvarpsins hafi eitthvað komið þeim til varnar.

  2. Ég get leyft mér að fullyrða að mannréttindi hafi verið skert með þessum lögum. Hvort stjórnvöld fái dóm á sig er annað mál.

  3. Þetta kemur allt saman í ljós. En hver sem niðurstaðan verður í þessum málum þá hafa ýmis mannréttindasamtök talað um meint mannréttindabrot danskra stjórnvalda í þessum efnum, og yfirvofandi málsóknir gegn þeim, allt frá því núverandi ríkisstjórn komst til valda í Danmörku í lok árs 2001. eða að verða 3 ár. Ekki veit ég hvað tekur svona langan tíma og hvers vegna ekki er löngu búið að kæra dönsk stjórnvöld fyrst um svona augljós mannréttindabrot er að ræða eins og sumir fullyrða að sé.

    Bendi annars á fróðlega frétt frá því í sumar sem tengist þessu þar sem Mannréttindadómstóll Evrópu (rétt að geta þess að dómstóllinn hefur ekkert með ESB að gera eins og sumir halda víst) komst að þeirri niðurstöðu að það bryti ekki í bága við mannréttindasáttmála Evrópu að banna múslimskum stúlkum að klæðast höfuðslæðum í ríkisreknum skólum. Óneitanlega áhugaverð niðurstaða.

  4. Gleymdi að láta fylgja tengil á umrædda frétt um dóm Mannréttindadómstólsins:

    http://www.euobserver.com/?aid=16778

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.