Viðburðarík jól
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Ummæli (
Þetta eru búin að vera undarlegustu jól sem ég hef upplifað. Fékk heiftarlegt botnlangakast aðfararnótt þriðjudagsins 23. og var sóttur af sjúkrabíl og sendur beint í skurðaðgerð. Ég var búinn að vera með verki í þrjá daga áður en ég hafði samband við lækni og því má í raun segja að ég hafi verið heppinn að hafa farið í aðgerð áður en botnlanginn sprakk, en það munaði víst ekki miklu.
Þvílíkan og annan eins sársauka hef ég að líkindum aldrei á lífi mínu upplifað. Þetta var svo sárt að þeir fjölmörgu skammtar af morfíni sem mér voru gefnir höfðu nánast engin áhrif.
Ég veit ekki hvar ég væri hefði Halli brósi ekki komið mér til hjálpar. Hann stóð sig eins og hetja. Hann fékk mig til að hafa samband við lækni, fór með mér í sjúkrabílnum upp á sjúkrahús og svo hefur hann verið afskaplega duglegur við að hjúkra mér. Hann meira að segja þvoði á mér hárið í gær
. Takk brósi!
Sem betur fer gekk aðgerðin vel og ég er nú allur að koma til. Fékk að fara heim fyrir mat á aðfangadag en gat þó ekki borðað nema mjög lítið, enda enginn jólamatur handa mér strax, bara bananar og jógúrt. Þvílík gleði! Ég stefni þó að því að stelast í smá kjöt í kvöld
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Hver er þín skoðun?