Áhugaverð heimildarmyndahátíð
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Utanríkismál
Viðbrögð: Engar athugasemdir
Félagsskapurinn Gagnauga stendur fyrir afar áhugaverðri heimildarmyndahátíð þessa dagana sem allir ættu að kíkja á. Gagnauga heldur úti vefnum www.gagnauga.net og þar segir að markmið félagsins sé að „koma á framfæri og kynna róttæk og gagnrýnin sjónarmið sem hefðbundnir fjölmiðlar hafa lítið fjallað um.“ Í myndunum er meðal annars fjallað um utanríkisstefnu Bandaríkjanna og hún harðlega gagnrýnd enda ljóst að þarlend stjórnvöld bera ábyrgð á miklum grimmdarverkum víðs vegar um heiminn.
Á vefsíðu Gagnauga segir enn frekar:
„Sannleikurinn er sjaldan hlutlaus en getur verið mjög pólitískur og viðkvæmur. Það er a.m.k. mjög sanngjarnt að fólk fái tækifæri til þess að kynna sér aðra sýn á heiminn en hefðbundnir fjölmiðlar bjóða upp á og geti tekið sjálfstæða afstöðu út frá því.“
Það er svo sannarlega hægt að taka undir þessi orð. Félagarnir í Gagnauga eiga hrós skilið fyrir að reyna vekja fólk til umhugsunar með þessum hætti. Hvet ég hér með alla sem hafa áhuga á alþjóðamálum og réttlæti í heiminum til að kíkja þessa hátíð, en henni líkur að öllu óbreyttu 26. nóvember.

Nánari upplýsingar eru að finna á vefnum www.gagnauga.net
Leita: Skoðun
Efnisorð
Nýlegar færslur
- Hot Yoga fyrir spýtukalla
- Skottulækningar í boði Reykjavíkurborgar?
- Gömul og ný umræða um aðskilnað ríkis og kirkju
- Aum viðbrögð biskups
- Sól og sumar
- Um ristilskolanir og geðsjúka gagnrýnendur
- Eineltisumræða
- Játning fábjána
- Að veðja á boð og bönn: Hugleiðingar um spilavíti
- Samhengi hlutanna: Ég er ríkur
Hver er þín skoðun?