Ungir framsóknarmenn á góðri leið
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ríki og trú, Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Framsóknarmenn hafa yfirleitt verið hörðustu andstæðingar þess að ríki og kirkja verði aðskilin. Fyrir nokkrum dögum benti undirritaður á ræðu Guðna Ágústssonar um stefnuræðu forsætisráðherra þessu til stuðnings. Þar tók Guðni það skýrt fram að Framsóknaflokkurinn vildi alls ekki aðskilja ríki og kirkju.
Í ágætri grein eftir Jón Einarsson, stjórnarmann í Félagi ungra framsóknarmanna á Skagafirði og varamanni í stjórn SUF, kemur fram að unga fólið í flokknum er ekki sammála varaformanni sínum.
Jón, sem styður aðskilnað ríkis og kirkju, segir meðal annars:
Eins væri ekki úr vegi að kirkjunnar menn, með herra biskupinn í broddi fylkingar, tækju nú á sig rögg og hættu að leggja stein í götu þeirra sem vilja vinna að aðskilnaði ríkis og kirkju. Þá fyrst þegar fólk getur notið raunverulegs trúfrelsis verður hægt að tala um að myrkrið sé að hopa.
Afstaða unga fólksins í Framsókn ætti að vera öllum þeim sem berjast fyrir trúfrelsi á Íslandi mikil gleðitíðindi.
Sjá grein Jóns:
Hvar skyldi nú mest myrkrið vera?
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Pólitísk átök snúast í dag yfirleitt um baráttu íhaldsmanna og frjálslyndra. Framsóknarflokkurinn hefur lengi verið talinn eitt helsta vígi íhaldsmanna hér á landi en nú er von til þess flokkurinn muni smá saman færast í frjálsræðisátt. Ný grein á vefriti ungra framsóknarmanna, www.maddaman.is vekur þessa von.
Hver er þín skoðun?